Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Valmundur Valmundsson: „Óþolandi að geta ekki samið við okkur um nokkrar helvítis krónur“

Valmundur Valmundsson: „Óþolandi að geta ekki samið við okkur um nokkrar helvítis krónur“

„Það er ekk­ert að ske; lausir samn­ingar,“ segir Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands, í við­tali við Reyni Trausta­son þegar hann er spurður hvernig slag­ur­inn sé.

Og eng­inn að tala við ykkur?

„Jú, við erum búin að vera að hitt­ast frá því að samn­ingar runnu út en það er ekk­ert komið út úr því ennþá.“

Hverjar eru kröf­urnar?

„Aðal­kröf­urnar núna eru að við fáum líf­eyr­is­sjóð­ina að fullu eins og aðrir, 15,5%. Við höfum ekki fengið þetta 3,5% eins og aðrir þjóð­fé­lags­þegnar á almenna mark­aðnum.“

Hvernig stendur á því?

„Útgerðin segir að við séum með svo hátt kaup að við þurfum þess ekki.“

Þetta er við­bót­ar­sparn­að­ur­inn?

„Já, þeir eru til­búnir til að láta okkur hafa þetta en þá þurfum við að lækka skipta­pró­sent­una á móti og borga þetta sjálfir. Það er díll­inn. En ég held að sjó­menn vilji það ekki. Frekar sleppum við þessu.“

Hvað með að sjó­menn virð­ast vera frekar klof­inn hópur; það er mik­ill munur á þeim sem eru með hæstu launin og þeim sem eru með lægstu launin. Er ekki erfitt að ná hópnum öllum saman um aðgerðir?

„Jú, ég held að það sé mjög erfitt. Ég er ekki viss um að upp­sjáv­ar­sjó­menn­irnir fari í verk­fall upp á að bæta kjör línu­sjó­mann­anna. Það hugsa ég ekki. Eða öfugt.“

Samn­ingar hafa verið lausir síðan í des­em­ber 2019. Getið þið haft það svo­leiðis?

„Nei, þetta er nátt­úr­lega óþol­andi ástand að vera með lausa samn­inga.“

Þor­gerður Katrín sýndi okkur vönd­inn.

Svo er alltaf verið að setja lög á ykkur.

„Já.“

Var þetta leyst síð­ast með lögum?

„Nei, en vönd­ur­inn var klár. Það var búið að sýna okkur vönd­inn. Þor­gerður Katrín sýndi okkur vönd­inn. Hann var klár ef á þyrfti að halda.“

Cheerios-pakki og vettlingar

Val­mundur var orð­inn for­maður SÍ þegar síð­asta verk­fall skall á.

„Það var harð­vít­ugt. Það stóð í 10 vikur og var mjög harð­vít­ugt. Ég lenti að vísu í veik­indum í miðju verk­falli; greind­ist með æxli í hausnum í des­em­ber og verk­fallið skall á þá. Það var góð­kynja. Það er þarna ennþá. Það er bara fylgst með.“

Hefur það engin áhrif á þig?

„Ég held ekki. Svo kom ég aftur rétt áður en var samið; um hálfum mán­uði áður. Það var búið að greina þetta og ég mátti fara að vinna aftur. Svo sömdum við 17. febr­úar 2019 og það var sam­þykkt með naumum meiri­hluta; það voru minnir mig 57% sem sögðu „já“.“

Svo fengu menn frían vinnu­fatnað líka.

10 vikna verk­fall. 10 vikna launa­leysi. Hvað fékkstu upp úr þessu?

„Menn sögðu Cheerios-pakka og vett­linga.“

En það er þó stórt mál Cheerios-pakk­inn; það þýðir að sjó­menn voru komnir með frítt fæði.

„Frítt fæði og þú borgar bara hlunn­inda­skatt af því. 500 eða 700 kall á dag. Svo fengu menn frían vinnu­fatnað líka. Það munar hell­ing að menn eru búnir að losna við þann kostnað. Það voru pínu hnökrar á þessu fyrst. Útgerðin var að reyna að spara og kaupa eitt­hvað lélegt en þá fer meira af þessu og það er jafn­dýrt.“

Sjó­manna­af­slátt­ur­inn var tek­inn af ykkur. Hann var bit­bein mjög lengi.

„Þetta var í rest­ina komið upp í 1200 millj­ónir.“

Er þetta með sjó­manna­af­slátt­inn búið? Það er engin bar­átta að taka hann upp aftur?

„Nei. Við vorum með þetta inni í kröf­unum okkar að útgerðin myndi bæta okkur þetta upp og þeir eiga í raun og veru eftir að gera það. Þeir skulda okkur það. Þetta var bara rík­is­styrkur sem þeir fengu á sínum tíma vegna þess að það var erfitt að ná í karla á sjó­inn. Þannig byrj­aði þetta.“

Vilja meira gagnsæi

Val­mundur er spurður hvað honum finn­ist vera brýn­ast hvað varðar sjó­menn í dag. Hver eru brýn­ustu málin að taka á?

„Við erum búin að vísa til sátta­semj­ara og erum búin að vera að funda þar núna með útgerð­ar­mönnum. Aðal­kröf­urnar okkar eru sem sé meira gagn­sæi í sam­bandi við fisk­verðið og við viljum fá meiri upp­lýs­ingar um afurða­verð og annað í sam­bandi við upp­sjáv­ar­fisk­inn og líka botn­fisk­inn sem við getum treyst. Og við viljum fá sömu líf­eyr­is­kjör og aðrir lands­menn á almenna mark­aðnum. Okkur vantar þetta 3,5% upp á. Það er ekk­ert í boði frá útgerð­inni nema að sjó­menn borgi fyrir það sjálfir með lækkun á skipta­pró­sentu.“

Við höfum haldið um 30 fundi hjá sátta­semj­ara og það er ekk­ert að ske.

Val­mundur er svo spurður hvernig hann ætli að leysa þetta núna með þessa kyrr­stöðu.

„Það er spurn­ingin. Þegar eins og sjó­menn núna hafa þokka­leg laun þá eru menn ekki til­búnir í að fara í harðar aðgerðir. Það er nú ýmis­legt sem hægt er að gera. Við höfum til dæmis núna ekki skrifað undir neina sér­kjara­samn­inga síðan í vor eins og við höfum oft gert, til dæmis varð­andi mak­ríl­inn, en þá eru menn í sam­vinnu. Sjó­manna­fé­lögin hafa ekki und­ir­ritað neina slíka samn­inga þó svo að menn séu að vinna í þeim. Og ef ein­hver fer í fílu um borð þá getur hann náð sér í meiri aur með því að fara í mál við útgerð­ina. En við nennum ekki að standa enda­laust í ein­hverju þrasi um allt og ekki neitt ef ekk­ert kemur út úr því. Við höfum haldið um 30 fundi hjá sátta­semj­ara og það er ekk­ert að ske.“

Það kemur í ljós á næst­unni hvort eitt­hvað verði eða hvort þið verðið samn­ings­lausir í sjö ár.

„Sjö ár eins og síð­ast. Ég vona nú ekki. Það er óþol­andi að geta ekki samið við okkur um nokkrar hel­vítis krónur.“

Dallurinn fór alveg á hliðina

Val­mundur er sjó­manns­sonur en faðir hans, Val­mundur Sverr­is­son, sem var frá Akureyri, drukkn­aði þegar son­ur­inn var þriggja daga gam­all.

„Hann var að róa frá Reykja­vík á litlum þil­fars­bát; eig­in­lega bara trillu, og féll útbyrðis. Þeir voru tveir á. Hinn tók ekki eftir því; hann var frammi í en pabbi var á stím­inu. Eitthvað hefur skeð sem eng­inn veit og hann fannst aldrei. Það hefur örugg­lega mótað mikið afa minn og ömmu, for­eldra hans. Ég fann það í mínum sam­skiptum við þau.“

Val­mundur yngri ólst upp frá eins árs aldrei hjá móð­ur­ömmu sinni og -afa á Siglu­firði. „Þau voru orðin rúm­lega sex­tug þegar þau tóku mig.“

Val­mundur fór á sjó­inn 16 ára gam­all. Fór fyrst á túr á tog­ara. Það var Stálvík sem var fyrsti nýsmíð­aði skut­tog­ar­inn á Íslandi. „Þá var Hjalti Björns­son skip­stjóri; sá mikli eðal­kapteinn.“

Og unga mann­inum leist vel á sjó­mennsk­una.

„Ég var að vísu svo­lítið sjó­veikur í nokkra daga en síðan hefur sjó­veiki ekki hrjáð mig. En maður var ekki upp­burð­ar­mik­ill innan um þessa jaxla sem voru þarna. Þvílíkir gúbbar. En mér var tekið vel og sér­stak­lega af einum, Sigurði Jónssyni sem var kall­aður Siggi drumbur. Hann er ennþá lif­andi og ég á honum mikið að þakka. Og undir hans vernd­ar­væng kenndi hann mér; ég hafði að vísu þrætt nálar og kunni það en hann sé um að ég væri mér ekki að voða þarna.“

Val­mundur seg­ist ekki hafa farið marga túra á Stálvík. Hann fór síðan í Iðn­skól­ann um vet­ur­inn og ætl­aði að verða raf­virki „en það var ekki stuð fyrir því hjá mér. Ég fann að það átti ekki við mig að vera að læra mikið meira. Ég hafði engan áhuga á að læra. Þó þurfti ég ekki að hafa fyrir því þannig. Ég fór aftur á sjó­inn og end­aði á Sigluvík hjá Budda Jó. Sonur hans plat­aði mig í túr og þá var ekk­ert aftur snúið.“

Þar voru margir kjarna­karlar.

Við fengum brot á okkur úti í Víkuráli.

„Já, margir góðir þarna á Siglu­vík­inni. Ég held að Buddi sé var­kár­asti skip­stjóri sem ég hef verið með upp á mann­skap­inn að gera. Hann hugs­aði um okkur eins og börnin sín. Tók aldrei neina sénsa á neinu. Ég held það hafi verið 1984 eða 1985 sem við fengum brot á okkur úti í Víkuráli. Við vorum að taka inn fyrir í kol­vit­lausu veðri. Vorum á grá­lúðu. Um nótt­ina heyrðum við hel­vítis læti og dall­ur­inn fór alveg á hlið­ina. Þá kom brot á brúna og fóru nokkrir gluggar. Stýri­mað­ur­inn var uppi og hann var hepp­inn að drepa sig ekki af því að það var radar í loft­inu sem sjór­inn tók sem fór í stól­inn og tók hauspúð­ann af honum. Stýri­mað­ur­inn náði að henda sér á stöng­ina til að slá af og hann slapp út af því.“

Það hefði ekki þurft að binda um þau sár.

„Nei, ekki ef hann hefði fengið hel­vítis rad­ar­inn í haus­inn. Það hefði ekki verið gott. En þetta bjarg­að­ist. Það drapst líka á hjá okkur. Það fóru loft­t­úð­urnar á vél­inni.“

Hann hefur farið alveg á hlið­ina.

„Nánast. En við náðum að loka gluggum. Það náð­ist að setja í gang en stýrið var farið út. Við þurftum að stýra niðri í stýr­is­vél með talíu. Það var hægt að hand­stýra með talíu.“

Fór í land

Val­mundur hefur búið í Vest­manna­eyjum um ára­bil en hann fór í Stýri­manna­skól­ann í Eyjum og varð stýri­maður og skip­stjóri.

Af hverju flutti hann til Eyja?

„Ég fór í land 1987 þegar sonur minn fædd­ist, seinna barnið okkar. Ég var búinn að vera áður í neta­gerð­inni hjá Venna Haf­liða­syni sem átti Neta- og veið­ar­færa­gerð Siglu­fjarðar og var að spá í að fara að læra neta­gerð en svo var ekk­ert að gera þarna. Það var vit­laust að gera þegar rækjan var þarna sem mest fyrir norðan. Þá var verið að setja upp 20-30 troll yfir sum­arið á neta­verk­stæð­inu og við­halds­vinna sem fylgdi því öllu. Svo var rækjan búin og það var ekk­ert að gera þarna og fisk­verðið lágt á tog­ur­unum á þessum tíma, 1988/1989.“

Þannig að það var dauði og djöf­ull eins og það stendur.

„Já. Svo átti ég fullt af fólki í Eyjum á þessum tíma; móð­ur­systur mínar voru þarna og öll þeirra börn. Og megnið af þessu fólki var sjó­menn. Ég hringdi í einn sem ég þekkti sem var kvæntur móð­ur­systur minni og spurði hvort hann gæti ekki reddað mér plássi í Eyjum. Það var komið dag­inn eftir.“

Þú fórst með börn og bú?

„Þau komu aðeins seinna. Um vorið.“

Hvernig er að búa í Eyjum?

„Það er frá­bært.“

Stundum hvasst.

„Já.“

Skip­stjóri og stýri­maður sem heyrir undir Far­manna­sam­bandið. Svo dróst Val­mundur ein­hvern veg­inn inn í það að verða for­svars­maður háseta.

Ég fór aldrei í stýri­manna­fé­lagið.

„Ég var kom­inn inn í stjórn sjó­manna­fé­lags­ins Jötuns í Eyjum 1992-3. Elías Björns­son, sem þá var for­maður, kom að máli við mig. Ég hafði komið á nokkur sjó­manna­sam­bands­þing með Hafþóri Rós­munds­syni frá Siglu­firði; hann var for­aður verka­lýðs­fé­lags­ins Vöku þar og ég var þar í sjó­manna­deild­inni. Og Elías fékk mig til að koma í stjórn­ina í Jötni. Svo fór ég í Stýri­manna­skól­ann í Eyjum árið 1997 og varð svo stýri­maður eftir skól­ann. Þá var ég ennþá með­stjórn­andi í Jötni og hélt því áfram og borg­aði alltaf þangað mína skatta og skyldur. Ég fór aldrei í stýri­manna­fé­lagið. Svo varð ég for­maður Jötuns 2007 þegar Elías hætti. Ég ætl­aði að vera í eitt eða tvö ár en svo þurfti ég að hætta á sjó vegna þess að konan mín er lög­blind og ég gat ekki hugsað mér að skilja hana eftir þegar hún missti sjón­ina svona mikið; að hún væri ein heima og eng­inn að hugsa um hana. Þannig að ég fór í land 2008 og tók þá alveg við sjó­manna­fé­lag­inu.“

Hægt er að horfa á við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ