Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Áhrifavaldar gagnrýndir: Ásakanir um að selja vörur frá AliExpress á margföldu verði

Áhrifavaldar gagnrýndir: Ásakanir um að selja vörur frá AliExpress á margföldu verði

Líkt og fjallað var um fyrir stuttu þóttu sól­gler­augu frá Moxen Eyewear nauða­lík sól­gler­augum sem fást á Ali­Ex­press og Alibaba. Net­verjar bentu bæði á hve lík gler­augun voru og verð­mun­inn, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem neyt­endur reka augun í slíkt hér á landi. Áhrifa­vald­arnir og stjörnuparið Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir og Guð­mundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, er fólkið á bak við Moxen Eyewear en þau sögðu rangt að vörur þeirra væru frá net­versl­unum vin­sælu. Gler­augun sem þykja svo lík kosta nokkur hund­ruð krónur á vef­verslun Ali­Ex­press og Alibaba, en á bil­inu 7.990 til 8.990 krónur hjá Moxen Eyewear. Þrátt fyrir að parið hafi vísað ásök­un­unum á bug, án ítar­legra skýr­inga, virð­ast net­verjar enn tor­tryggnir.

Fjögur ár eru síðan Óli Geir var sagður selja úr frá vef­versl­un­inni Gear Best á upp­sprengdu verði undir merki sínu, Nora-Watches. Þá hefur áhrifa­vald­ur­inn Tanja Ýr einnig kom­ist í fjöl­miðla vegna skart­gripa sem hún seldi undir vöru­merk­inu Bossbabe. Listinn er ekki tæm­andi af þeim aðilum sem sagðir eru hafa keypt vörur af Ali­Ex­press og selt þær undir sínu eigin vöru­merki á allt að átt­falt hærra verði. Það hefur reynst erfitt að sann­reyna hvaðan vör­urnar koma í raun og er það því undir neyt­endum komið, hverjum skal trúa.

Mannlíf ræddi við Bryn­hildi Pét­urs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Neyt­enda­sam­tak­anna, sem segir svona mál geta verið flókin og það skipti auð­vitað máli hvort verið sé að stela hönnun eða ekki. „Fram­leið­anda sem fjölda­fram­leiðir ein­hverja vöru gæti verið nokk sama þótt eitt­hvert fyr­ir­tæki setji lím­miða á vör­una eða breyti henni og selji áfram á hærra verði,“ segir Bryn­hildur. Hún segir hins vegar mik­il­vægt að neyt­endur séu gagn­rýnir og spyrji sig alltaf hve mikið þeir séu til­búnir að borga fyrir vör­una eða vöru­merkið og geri verð­sam­an­burð.
„Ef það er verið að stela hönnun geta fram­leið­endur brugð­ist við því, en ef fram­leið­and­anum er sama, eins og gæti verið til­fellið í gler­augna­mál­inu, þá er lítið hægt að gera, annað en að upp­lýsa neyt­endur sem fjöl­miðlar hafa einmitt gert. Þegar um „alvöru“ vöru­merki er að ræða eru fyr­ir­tæki yfir­leitt stolt af fram­leiðsl­unni og viljug til að upp­lýsa neyt­endur um sög­una og bak­grunn­inn. Ef upp­lýs­ingar um vöru­merkið eru í skötu­líki er rétt að spyrja spurn­inga. Aðspurð hvort hver sem er geti keypt tonna­vís af ódýrum vörum og selt þær á upp­sprengdu verði, án eft­ir­lits, sagði Bryn­hildur svo vera. „Já, í raun­inni. Verðlag fer að miklu leyti bara eftir því hvað við erum til­búin að borga, frekar en hver fram­leiðslu­kostn­að­ur­inn er.“ Sagði hún hátt verð í sumum til­fellum vera hluta af mark­aðs­setn­ing­unni. „Við höldum oft að ef eitt­hvað sé dýrt þá sé það vand­aðra.“ Að lokum sagði Bryn­hildur mik­il­vægt að neyt­endur væru vel vak­andi: „Neyt­endur eiga að spyrja spurn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ