Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kári við Guðna: „Það er ekki sjúkdómur auminginn þinn! Þú getur læknað þig sjálfur“

Kári við Guðna: „Það er ekki sjúkdómur auminginn þinn! Þú getur læknað þig sjálfur“
Sölvi Tryggva­son, hlað­varps­stjórn­andi og Guðni Ágústs­son. Samsett mynd.

„Við erum allt of gjörn á að kenna stjórn­völdum eða öðrum um það sem gengur illa hjá okkur. Við verðum að læra að taka ábyrgð á okkur sjálfum og hætta að kenna öðrum um í tíma og ótíma. Við þurfum að koma saman, vera dug­leg að vera innan um fólk, hreyfa okkur og njóta lífs­ins. Ham­ingjan er undir okkur sjálfum komin. Auðvitað er fólk sem á mjög erfitt og þeim þarf að hjálpa, en það eiga ekki allir erfitt.”

Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Guðni er á því að stjórn­málin hafi breyst í gegnum tíð­ina og að þó að fólk hafi oft verið ósátt við gjörðir þing­manna og haft ólíkar skoð­anir hafi virð­ingin verið meiri áður en hún er nú.

Það á að banna símana í þingsal

„Það að starfa á Alþingi var einn stærsti heiður sem hægt var að upp­lifa. Jóm­frú­ar­ræðan er stund sem maður gleymir aldrei, en í dag finnst mér nán­ast að þetta sé orðið eins og hvert annað djobb. Auðvitað er mik­ill munur á milli þing­manna, en sumir nenna ekki að vera vel til hafðir og virð­ast ekki hafa áhuga á að við­halda virð­ingu þings­ins. Lítið dæmi er að þing­menn sitja núna í þing­sal og eru oft bara í sím­anum. Það er leið­in­legt að sjá þing­menn­ina og ráð­herrana grúfa sig ofan í sím­ann í sölum Alþingis. Gemsana á að banna í þing­sal. Þetta er eitt af því sem dregur úr virð­ingu þings­ins,” segir Guðni sem er líka á því að þing­menn séu oft of upp­teknir af almenn­ings­á­liti og í vin­sælda­keppni. Hann er ekki sáttur við þá þróun að krefj­ast afsagna þing­manna og ráð­herra vegna allra mögu­legra hluta:

„Það er nátt­úru­lega mjög algengt og orðin algjör della hér á Norð­ur­lönd­unum hvernig ráð­herrar og þing­menn segja af sér. Það má ekk­ert koma upp og jafn­vel 30-40 ára gömul mál valda því að þeir eru að segja af sér. Fólk er orðið hrætt við að segja satt af ótta við að þessi verði kraf­ist að það segi af sér, þannig að það er orðið mjög erfitt að velja sér þetta starf.”

Fallegasti miðbær heims er á Selfossi

Guðni, sem bjó um tíma á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er alsæll að vera aftur fluttur austur fyrir fjall:

„Nú bý ég á Selfossi í glæsi­leg­asta miðbæ heims­ins, þennan nýja miðbæ sem er orð­inn algjört augna­yndi. Gömul og sögu­fræg hús og ég bý í einu þeirra. Sagan drýpur af hverju strái á Selfossi og þarna er líka risið Mjólk­urbú Flóa­manna og ég kann hvergi betur við mig. Ég er enda alinn upp á Brúna­stöðum, sem eru þarna rétt hjá og ég á mikið af frá­bærum minn­ingum frá þessu svæði.”

Guðni segir í þætt­inum frá því tíma­bili í lífi sínu þegar heils­unni var farið að hraka mikið og hann hlust­aði ekki á síð­ustu skila­boð föður síns.

„Faðir minn hafði varað mig við, eftir að hafa sjálfur farið inn á Alþingi árið 1956 um fimm­tugt. Hann var þá tágrannur, en menn fitna gjarnan í þessu starfi, enda óreglu­legt líf. Hann var þéttur á velli og þegar hann var búinn að fá hjarta­á­fall og ég nýbú­inn að vinna próf­kjör fór ég til hans og margir voru að kveðja pabba. Hann var þá spurður hvernig honum lit­ist á að ég væri að fara á þing. Hann svar­aði þá: „Hann klórar sig fram úr því dreng­ur­inn. Ég hef engar áhyggjur af því, en ég hef áhyggjur af því að hann verði of feitur…. Margrét mín (eig­in­kona Guðna), sjáðu nú um að halda í við hann í mat og drykk.”

En ég hlýddi ekki þessu síð­asta heil­ræði og var á end­anum orð­inn rúm­lega 105 kíló. Þá fara meinin að koma og ég var við það að fá syk­ur­sýki. Þegar ég fékk þær fréttir fór ég til Kára Stef­áns­sonar og sagði honum að ég væri lík­lega að fara að drep­ast og væri kom­inn með syk­ur­sýki. Kári svar­aði strax: „Það er ekki sjúk­dómur aum­ing­inn þinn! Þú getur læknað þig sjálfur. Þú ferð að borða hollan mat, minnkar við þig og ferð að ganga og æfa.” Ég hlýddi þessum heil­ræðum Kára og fór undir 90 kíló og hef haldið mig þar. Ef ég hefði ekki gert þetta væru lík­lega hné og mjaðmir búin að gefa sig og mögu­lega fleira líka,” segir Guðni og bætir við:

„Það var erf­ið­ast að losa sig við syk­ur­inn. Á meðan ég var að venja lík­amann af sykrinum og bjór­þambi var eins og ég væri í afvötnun. Það var mikið átak og það var eins og lík­am­inn öskr­aði á meiri sykur. Fyrsti mán­uð­ur­inn var hval­ræði.”

Guðni hefur síðan haldið sig við reglu­lega hreyf­ingu og holl­ara mat­ar­ræði og er enn í kjör­þingd að eigin sögn. Hann er ekki hrif­inn af fórn­ar­lamba­væð­ingu sam­fé­lags­ins:

Hægt er að nálg­ast þátt­inn með Guðna og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ