Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Kr. ætlar að eiga látlausan afmælisdag: „Þekki ekki Bíldudal fyrir sama Bíldudal og ég þekkti“

Jón Kr. ætlar að eiga látlausan afmælisdag: „Þekki ekki Bíldudal fyrir sama Bíldudal og ég þekkti“
Jón Kr. Ólafsson Mynd: Facebook

Afmæl­is­barn dags­ins er stór­söngv­ar­inn frá Bíldudal, Jón Kr. Ólafsson. Er hann 82 ára í dag þó ekki beri hann ald­ur­inn með sér.

Jón Kr. sló í gegn í hljóm­sveit­inni Falcon, árið 1962. Starfaði hljóm­sveitin næstu sjö árin en þekktasta lag þeirra er stórslag­ar­inn Ég er frjáls. Árið 1983 gaf svo SG-hljóm­plötur út LP-plöt­una Ljúfþýtt lag þar sem Jón Kr. söng þekkt ein­söngs­lög við und­ir­leik Ólafs Vignis Alberts­sonar. Í gegnum árin hefur afmæl­is­barnið sungið inn á þónokkrar hljóm­plötur og komið víða fram við góðar und­ir­tektir.

Þann 17. júní árið 2000, opn­aði Jón Kr. safnið Melódíur minn­ing­anna, heima hjá sér á Bíldudal en þar er að finna margar af ger­semum tón­list­ar­sögu Íslands. Enn þann dag í dag, rekur Jón Kr. safnið en árið 2021, gaf hann Rokksafni Íslands part af Melódíu minn­ing­anna við hátíð­lega athöfn.

Mannlíf heyrði í afmæl­is­barn­inu í til­efni dags­ins og lá for­vitni á að vita hvort og þá hvernig hann ætl­aði að fagna deg­inum.

„Ég segi nú bara eins og vinur minn Raggi Bjarna heit­inn, þú ert nice!“ svar­aði Jón Kr. þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í hann og sagði honum að hann væri afmæl­is­barn dags­ins. Svo svar­aði hann spurn­ing­unni og reyndar gott betur: „Nei, ég ætla ekki að fagna deg­inum, ég á bara einn hérna vin heima á Bíldudal, karl­inn minn og það er ein kunn­ingja­kona mín í Reykja­vík búin að hringja í dag en það er góð vin­kona mín sem hringir annað slagið hingað vestur og athugar hvort allt sé í lagi með mig. Svo á ég nú reyndar annan kunn­ingja í Reykja­vík sem hringir oft í mig en hef ekki heyrt í honum síðan á fimmtu­dag en er svona að láta mér detta það í hug að hann hringi í dag. Þó ég vildi fá mér, að gamni mínu í lítið hvítvíns­glas, þá geri ég það ekki, því ég á ekk­ert slíkt og ég veit ekki með hverjum ég ætti að fá mér það hér á Bíldudal. Ég botna bara ekki í því, skil­urðu. Þannig að ætli ég verði ekki að láta þennan dag líða, eins og svo sem alla aðra daga, eins fyr­ir­hafn­ar­laust og ég get. Ég er nú búinn að reka hér tón­list­ar­safn á Bíldudal í 23 ár og á nú 60 ára söng­feril, sem er eng­inn smá tími, en það er eng­inn að spá í það á Bíldudal í dag. Ég verð að segja alveg eins og er, ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn við þig, þá þekki ég ekki Bíldudal fyrir sama Bíldudal og ég þekkti. Það eina sem ég virki­lega þekki á Bíldudal í dag, sjáðu til, það eru fjöllin. Þau breyt­ast ekki.“

Vill Jón Kr., sem ekki er þekktur fyrir að liggja á skoð­unum sínum, meina að nú snú­ist allt á Bíldudal um lax­eldi og kalk­þör­unga. „Ég hitti útlend­ing í bað­hús­inu hér sem ég gat reyndar lítið talað við en hann spurði mig strax um lax. Bíddu við, það er bara talað um lax­eldi og kalk­þör­unga­verk­smiðju á Bíldudal í dag. Það er eins og það hafi ekk­ert skeð á Bíldudal áður. Bíldu­dalur var hér með hell­ing af vinnu og var hér með fræg­ustu nið­ur­suðu­verk­smiðju þjóð­ar­innar sem var vígð 1939. Svo var hér hell­ings tón­list­ar­líf og svo var hér öfl­ugt leik­fé­lag. Núna er þetta allt dautt. Þetta er allt dautt. Það er ekk­ert að ske, það er ekki einu sinni kven­fé­lag hérna.“

Þetta þótti blaða­manni Mannlífs leitt að heyra en spurði Jón Kr. hvort hann væri enn að koma fram og syngja, ver­andi eins hress og hann hljóm­aði í sím­anum.

„Veistu drengur minn, raun­veru­lega er ég hættur og er það ekk­ert skrítið enda þetta full­orð­inn, ekki það að vinur minn Raggi Bjarna hætti aldrei. En ég get sagt þér að ég var með kunn­ingja mínum á tón­leikum í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn síð­ast­lið­inn 17. júní. Ég söng reyndar bara þrjú lög en það gekk vel. Og var rosa­lega gaman. Þetta eru þriðju tón­leik­arnir sem ég held úti í Kaup­manna­höfn og geri aðrir betur, ég hugsa að það hafi ekki allir gert það, svona af alþýðu­fólki.“

Mannlíf óskar hinum síunga Jóni Kr. inni­lega til ham­ingju með afmælið og vonar að ein­hver laumi á hvítvíns­flösku handa honum og félags­skap á Bíldudal!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ