Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristinn Erling Jónsson: „Bjargið okkur, bjargið okkur“

Kristinn Erling Jónsson: „Bjargið okkur, bjargið okkur“

„Ég verð nú að segja frá því að mitt mesta lán eftir að ég byrj­aði með Víði þá lenti ég í því að bjarga þremur mönnum úr sjáv­ar­háska. Það var mjög sér­stakt. Við vorum úti í Hóla­kanti sem var um tveggja til þriggja kortéra stím frá Sand­gerði með lín­una og það spáði illa og byrj­aði að ganga upp í vestan leið­indi. Þegar við vorum að draga síð­asta bjóðið þá kom það fjór­falt þannig að við vorum miklu fljót­ari en ella að draga. Við kláruðum að draga og svo setti ég stefn­una á land. Hefðin var sú að skip­stjór­inn á línu­bát­unum stóð á úts­tími og stýri­mað­ur­inn á landstími,“ segir Kristinn Erling Jónsson í við­tali við Reyni Trausta­son.

Eini mögu­leik­inn til að bjarga mönn­unum var að leggja að stefn­inu.

„Þegar við vorum búnir að sigla í um tvo tíma þá kom stýri­mað­ur­inn og spurði hvort það ætti að vera bauja þarna. Ég sagði „nei, það á ekki að vera“. Ég sagði „fylgstu vel með hvað þetta er“. Hann kom aftur eftir stutta stund og sagði að sér fynd­ist þetta vera mastur. Ljós í mastri. Ég stökk fram og við nálg­uð­umst þetta og ég sló nátt­úr­lega af. Þá heyrðum við öskrað „bjargið okkur, bjargið okkur“. Þarna var komið skíta­veður, sjö átta vind­stig. Þá voru nú góð ráð dýr .Við höfðum ekki neinn bát til að setja út og eini mögu­leik­inn til að bjarga mönn­unum var að leggja að stefn­inu; bát­ur­inn flaut bara á lúk­arnum.“

Og stefnið upp úr.

Ef það hefði ekki heppn­ast hefði ég getað stein­drepið þá.

„Eini mögu­leik­inn til að bjarga og ná til mann­anna var að reyna að leggja að stefn­inu en það var nátt­úr­lega mikil áhætta. Ef það hefði ekki heppn­ast hefði ég getað stein­drepið þá. En fyrir ein­hverja guðs lukku þá heppn­að­ist það og við náðum þeim inn á dekk. Þeir voru þrír á. Þegar síð­asti mað­ur­inn var kom­inn á dekk þá stökk ég upp á báta­pall til að tékka á hvar þetta flak væri svo ég fengi nú ekki skrúf­una. Hann var bara horf­inn.

Það ömur­leg­asta í þessu var að þegar hann fékk brotið á sig þessi bátur og lagð­ist þá stökk skip­stjór­inn upp á stýr­is­hús og los­aði líf­bát­inn og los­aði fanga­lín­una líka; henti bátnum til þeirra sem voru fram á. Þeir náðu honum ekki þannig að það blasti ekk­ert við þeim annað en bara dauð­inn.“

Þá komst þú.

„Þá kom ég.“

Þetta er magnað.

„Þetta er magnað. Þetta er stærsti róður sem ég hef nokkurn tím­ann fengið.“

Er nokkuð til betra en akkúrat þetta?

„Nei, ekk­ert.“

Voruð þið heiðraðir fyrir vikið?

„Já, það var gert á sjó­manna­dag­inn í Sand­gerði.“

Þetta er mikil gæfa.

„Þetta er ólýs­an­leg gæfa.“

Fórst í sjóslysi

Kristinn Erling Jónsson er sjó­manns­sonur.

„Pabbi heit­inn var sjó­maður, Jón Björgvin Sveins­son, og var einn af þeim sem drukkn­uðu með Rafnkeli 1960. Þetta var 4. jan­úar og ég var á níunda ári.“

Kristinn seg­ist hafa verið mikið hjá ömmu sinni í Sand­gerði og hafði móðir hans farið um morg­un­inn með rútu til Reykja­víkur, langt gengin með þriðja barn þeirra hjóna. Systir Kristins átti afmæli þennan dag.

Þegar útgerð­ar­mað­ur­inn og prest­ur­inn komu til að til­kynna að báts­ins væri saknað.

„Mamma heyrði menn fyrir aftan sig í rút­unni tala um að lík­lega hafi Rafnkell farist. Um leið og hún kom til Reykja­víkur tók hún leigu­bíl á BSÍ og beint suður eftir. Hún var rétt komin í Sand­gerði aftur þegar útgerð­ar­mað­ur­inn og prest­ur­inn komu til að til­kynna að báts­ins væri saknað. Þetta var nú frekar ömur­legt.“

Móðir og amma Kristins sögðu honum síðan tíð­indin. Hann er spurður hvernig hann hafi brugð­ist við.

„Ég man það ekki þannig. Allavega þagði ég og beið. Vonaði alltaf að hann kæmi aftur. Það var búið að vera vesen með raf­magnið í bátnum og voru ein­hverjar get­gátur um að hann hefði farið inn til Hafn­ar­fjarðar til við­gerðar. En svo þegar leið á dag­inn kom í ljós að það var ekki. Þetta var fyrsti línuróð­ur­inn á ver­tíð­inni.“

Sex manns fór­ust með bátnum.

Bara krakki

Það kom ekk­ert annað til greina en að fara á sjó­inn.

„Ég var á bryggj­unni öllum stundum.“

Kristinn fór sinn fyrsta túr sem laun­þegi í maí árið 1964. Báturinn hét Ingólfur GK.

„Skip­stjór­inn sem átti hann í Sand­gerði, Bragi Björns­son, var mik­ill öðlings­maður. Hann féllst á að taka mig um borð og annan strák líka, son vél­stjór­ans. Móð­ur­bróður minn var stýri­maður á bátnum.“

Kristinn varð kokkur um borð.

Ég varð 13 ára tveimur vikum eftir að við fórum af stað.

„Jú, það bless­að­ist. Auðvitað fékk maður hjálp; það segir sig alveg sjálft. Ég varð 13 ára tveimur vikum eftir að við fórum af stað.“

Kristinn seg­ist hafa farið í einn vetur í skóla eftir þetta áður en hann fór svo í Stýri­manna­skól­ann; hann var ekki orð­inn 19 ára þegar hann útskrif­að­ist þaðan árið 1970. Hvað var fyrsta plássið eftir það?

„Það var á báti í Sand­gerði sem hét Álaborg sem var 100 tonna austur-þýskur stál­bátur. Það var virki­lega gott pláss og besta pláss sem maður gat fengið í Sand­gerði þá. Það var mikil gæfa að fá stýri­manna­pláss þar.

Við vorum á trolli yfir sum­arið og svo á netum nátt­úr­lega á ver­tíð­inni.“

Svo var Ála­borgin seld.

„Skip­stjór­inn sem var með Ála­borg­ina tók Straum­nesið ÍS. Það var annar svona 100 tonna bátur og ég fór með honum þangað.“ Straum­nesið var gert út frá Hafn­ar­firði.

Kristinn ók í ver­tíð­ar­lok eitt vor­kvöldið til Reykja­víkur og niður á tog­ara­bryggju.

„Þá hafði Sigl­firð­ingur verið að landa þar. Ég þekkti stýri­mann­inn um borð úr Stýri­manna­skól­anum.“ Úr varð að hann bauð Kristni pláss um borð. Honum var síðar boðið að verða fyrsti stýri­maður á Sigl­firð­ingi sem var fyrsti skut­tog­ari Íslend­inga, rúm 200 tonn. Kristinn var á Sigl­firð­ingi í eitt ár og þar fékk hann tæki­færi að leysa af sem skip­stjóri.

„Auðvitað fannst manni það upp­hefð að manni skyldi vera treyst fyrir þessu.“

Sigl­firð­ingur var síðan seldur og þá réð Kristinn sig sem annan stýri­mann á Guðbjart Kristján. Þar var hann í tæpt ár.

„Þá flutti ég suður og tók við skip­stjórn á Víði II.“

Því fræga afla­skipi.

„Já.“

Þessa fyrstu ver­tíð vorum við hæsti bát­ur­inn á Suð­ur­nesjum.

Það hefur nú verið eitt­hvað.

„Já, já, þetta var góður bátur og við rerum á línu. Og þessa fyrstu ver­tíð vorum við hæsti bát­ur­inn á Suð­ur­nesjum.“

Og ekki gam­all skip­stjór­inn.

„Nei, hann var bara krakki. En þetta gekk mjög vel.“

Kristinn var einmitt á Víði þegar mönn­unum var bjargað úr sjónum sem þegar hefur verið sagt frá. Og Kristinn seg­ist muna hverja mín­útu frá þeirri björgun.

Þetta mun ég aldrei fyrirgefa

Kristinn fór til Miðness í Sand­gerði sem seinna rann inn í HB. Og rann svo inn í Granda.

Tíminn leið og í árs­byrjun 1977 varð Kristinn skip­stjóri á Ólafi Jónssyni, 25 ára gam­all.

„Það gekk alltaf vel á Ólafi. Auðvitað gat verið mis­jafnt frá túr til túrs; það er bara eins og gengur. En yfir höfuð gekk mjög vel á honum.“

Varstu hávær?

„Já, já.“

Þú lést menn alveg heyra það á dekk­inu.

„Já, maður gerði það. Auðvitað oft að til­efn­is­lausu. Maður hefði betur þagað. Það er bara eins og það er. Það voru margir menn sem voru mjög lengi með mér þannig að það hafa greini­lega margir fyr­ir­gefið mér.“

Það sat ekk­ert í þeim.

„Nei, stýri­mað­ur­inn var með mér í 16 ár.“

Ef maður þarf að kynna sig segir maður Kiddi á Ólafi Jónssyni.

Gekk þetta bara snuðru­laust? Og þú varst alsæll á Ólafi Jónssyni. Þú ert yfir­leitt kenndur við hann.

„Ef maður þarf að kynna sig segir maður Kiddi á Ólafi Jónssyni,“ segir Kristinn sem var í 21 ár karl­inn í brúnni.

Svo var það sam­ein­ingin við Akranes. Hvernig gekk það?

„Það voru bara svik á svik ofan. Það stóð ekki steinn yfir steini. Þetta var í lok árs 1996 en þá voru áhafn­irnar á Ólafi Jónssyni og Sveini Jónssyni boð­aðar á fund uppi á Akranesi.“

Miðnes í Sand­gerði átti Ólaf Jónsson og það var Haraldur Böðv­ars­son sem var að taka yfir.

„Á þessum fundi var verið að kynna þetta og þá spurði einn áhafn­ar­með­limur á Sveini Jónssyni hvort þetta yrði ekki eins og aðrir samn­ingar; þetta myndi enda allt uppi á Skaga og allt yrði bara gleymt og grafið í Sand­gerði. Þá var hann áminntur af fram­kvæmda­stjóra HB að menn ættu ekki að vera með svona dylgjur og kjaftæði; það stæði ekki til að minnka neina starf­semi í Sand­gerði heldur ætti að efla hana. Hvað gerð­ist? Þegar við komum til lönd­unar 22. des­em­ber 1977 þá komu Rússar um borð að skoða skipið,“ segir Kristinn og bætir við að þeir hafi verið að kaupa skipið.

Þetta var einu ári eftir sam­ein­ing­una.

Og þar með voru menn orðnir atvinnu­lausir eins og hann spáði dreng­ur­inn á Sveini Jónssyni.

„Já, hann var ekk­ert að fara með fleipur. Þetta var hár­rétt.“

Þetta var nátt­úr­lega ömur­legt.

Hvernig varð þér við? Hvernig var að upp­lifa þetta?

„Þetta var nátt­úr­lega ömur­legt. Ég var búinn að vera með skipið frá upp­hafi og búinn að fara með hann í gegnum breyt­ingar í Póllandi. Hann var lengdur og end­ur­byggður. Hann var í mjög góðu standi, Ólafur.“

Þá var mark­miðið að þurrka upp allan kvóta í Sand­gerði og fara með hann?

„Já, þeir gerðu það. Þeir fóru með úr Sand­gerði rúm 5000 þorskígildi.“

Ertu reiður út af þessu?

„Já, þetta mun ég aldrei fyr­ir­gefa.“

Að átta sig

Kristni bauðst til að fara á önnur skip eftir þetta en hann hafði ekki áhuga á því. Hann seg­ist hafa farið að bar­dúsa í fisk­vinnslu og rak hann sitt eigið fyr­ir­tæki.

„Ég byrj­aði á því 1998 strax eftir að ég hætti á Ólafi og rak það þangað til ég fór til Afríku. Þegar ég kom frá Afríku 2005 fór ég að vinna hjá flug­mála­stjórn við eft­ir­lit á flug­braut­unum.“

Kvóta­kerfið átti ekki við mig.

Þú varst alveg búinn að fá nóg af sjónum þá.

„Já, kvóta­kerfið átti ekki við mig.“

Þú áttir erfitt með að taka við svona fyr­ir­skip­unum.

„Já, þetta var ekki fyrir mig. Þetta var ekki ég. Mér leidd­ist þetta mjög.“

Kristinn réð sig til Súða­víkur í tvö ár til að stýra þar harð­fisk­vinnslu en árin urðu fjögur og hann er nýhættur.

Svo ertu að fara þangað á morgun.

„Að tína ber.“

Afla­skip­stjór­inn sem tíndi ber.

„Já.“

Er það ekki bara eins skemmti­legt og að veiða karfa?

„Jú, jú, það er bara mjög gaman. Og ynd­is­legt að vera í Súðavík. Það er staður sem ég myndi vilja eyða ell­inni á.“

Er ekki tæki­færi til þess?

„Jú, við höfum hús þarna,“ segir Kristinn sem stundar golf og syndir á morgn­ana.

Það er um að gera að fóta sig í til­ver­unni.

„Maður er bara að átta sig á hlut­unum. Maður hefur alltaf verið í hell­ings aksjón og svo allt í einu þá er bara ekki neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ