Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Okrið í Leifsstöð komið út fyrir allan þjófabálk: „Þetta er svívirða“

Okrið í Leifsstöð komið út fyrir allan þjófabálk: „Þetta er svívirða“
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, virð­ist hafa fengið sig fullsaddan af verð­lag­inu í Leiðs­stöð. Í leið­ara blaðs­ins í dag bölvar hann okr­inu í Frí­höfn­inni í sand og ösku. Hann segir það bæta gráu ofan á svart að okur­kaup­mað­ur­inn sé íslenska ríkið.

„Það er eftir öðru á Ís­landi að sjálft ríkis­valdið fari á undan með vondu for­dæmi og okri svo á lands­mönnum í opin­berum versl­unum að líkja verður við arg­asta arð­rán.Í fréttum blaðs­ins á síð­ustu dögum hefur verið fjallað um gegndar­lausa á­lagn­ingu Frí­hafn­ar­innar í Leifs­stöð á nokkrum al­gengum teg­undum sem fást jöfnum höndum á Kefla­víkur­flug­velli og í lág­vöru­verðs­versl­unum á höfuð­borgar­svæð­inu og leiðir ný­leg verð­könnun í ljós að ríkis­versl­unin leggur í öllum til­vikum meira á vörur sínar, enda þótt hún þurfi ekki að standa skil á 24,5 pró­senta virðis­auka­skatti sem einka­reknar versl­anir fá ekki um­flúið,“ segir Sig­mundur.

„Þetta er sví­virða. Og heitir ekki annað en skatt­svik. Ríkið stelur niður­fell­ingu á­lag­anna af al­menn­ingi og stingur í eigin vasa. Og sama al­þýða manna gengur í góðri trú inn í þessa ein­okunar­verslun yfir­valds­ins og telur sig geta gert þar betri kaup en í bænum, enda búðin merkt á kant og kima með þeim hætti, en hefði betur verslað heima hjá þeim sem borga þó skatt­inn sinn.“

Sig­mundur segir þessa álagn­ingu óverj­an­lega. „Auð­vitað er það rétt hjá for­manni Neyt­enda­sam­tak­anna sem sagði í frétta­flutn­ingi af mál­inu að þessi gífur­lega á­lagn­ing af hálfu hins opin­bera væri al­ger­lega út úr korti. Og er nema von að mað­ur­inn segi það. Dæmi eru um vin­sælar sæl­gætis­vörur sem eru fimm­tíu pró­sentum dýr­ari í Leifs­stöð en í Bónus, Krónunni eða Costco í bænum. Á­lagn­ingin er því í raun­inni jafnt yfir­gengi­leg og hún er ó­fyrir­leitin. Og enn ein gildran sem neyt­endur á Ís­landi þurfa að gæta sín á að falla ekki ofan í, eins og for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna benti enn fremur á í um­ræddri frétt,“ segir Sig­mundur.

Íslend­ingar verði að hætta með­virkni með þessu okri. „Verð­lag á Ís­landi er hátt. Það er ó­hemju­hátt miðað við það sem gengur og ger­ist víða í Evrópu. Munar þar miklu um veikan gjald­miðil sem fæst ekki að láni nema á breyti­legum vöxtum sem engir þekkja til nema Ís­lend­ingar. Og háa verð­lagið verður væntan­lega líka rakið til skorts á sam­keppni á­samt lang­var­andi með­virkni lands­manna í þá veru að það sé bara allt í lagi að bíta á jaxl­inn í þessum efnum.

En ríkið á ekki að kynda þetta bál. Það á ekki að kynda nokk­urt bál til að belgja verðið út. En ríkið gerir það samt. Og ekki bara í Leifs­stöð eins og dæmin sanna, heldur í lát­lausri launa­þenslu og upp­kaupum á sér­fræð­ingum hjá einka­fyrir­tækjum – á meðan það biður aðra um hóf­semd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ