Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Léttir þegar einhverfan var staðfest því við vitum oft ekki sjálf hvað við erum að díla við“

„Léttir þegar einhverfan var staðfest því við vitum oft ekki sjálf hvað við erum að díla við“
Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dóttir Mynd: Eva Agusta Aradottir

„Þetta var mik­ill léttir. Mikil jarð­teng­ing. Maður féll í réttar skorður,“ segir Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dóttir um það þegar hún fékk það stað­fest að hún væri á ein­hverfu­róf­inu en í dag starfar Guðlaug, sem er sjúkra­þjálf­ari að mennt, sem verk­efna­stjóri og ráð­gjafi hjá Ein­hverfu­sam­tök­unum.

„Fyrst fylgdi þessu ótrú­leg gleði en svo upp­lifði ég eins og margir aðrir í sömu sporum svolitla dep­urð og sorg við að hugsa til baka. Okkur finnst við kannski hafa misst af ein­hverju í gegnum árin og að við hefðum getað gert hlut­ina á annan hátt. Þannig að margir fara í pínu blús eftir gleð­ina.“

Þess má geta að Guðlaug á börn á ein­hverfu­róf­inu og segir hún að í öllum til­fellum hafi það verið jákvætt og til góðs þegar ein­hverfu­grein­ing lá fyrir.

„Líðan okkar hefur alltaf batnað í kjöl­farið.“

Einhverfukulnun

Guðlaug talar um hve hún á margt sam­eig­in­legt með öðrum á ein­hverfu­róf­inu.„Við erum út um allt. Við vitum oft ekki sjálf hvað við erum að díla við og þar af leið­andi fáum við ekki stuðn­ing.“

Hún seg­ist hafa verið engla­barn í skóla, nörd og „proffi“ en að hún hafi talað mikið í tímum.

„Ég sótt­ist eftir að vera í hópum og ég hef verið í for­ystu víða en svo hef ég alltaf verið mjög orku­laus inn á milli. Ég var lögð í ein­elti í 10 ára bekk og hélt lengi að það hefði verið af því að ég væri ný í skól­anum og þess vegna ekki með bak­land. Fyrsta sam­bandið sem ég var í var and­legt ofbeld­is­sam­band. Ég fatt­aði oft ekki hvað fólk var að segja þegar það tal­aði undir rós og þá tók ég því bara bók­staf­lega. Þó ég væri líf­leg og í sam­skiptum þá hélt ég ekki endi­lega sam­bandi við þetta fólk; okkar stíll virð­ist ekki vera að hringja og tékka á fólki þannig að maður dettur úr sam­bandi við marga.“

Hún talar svo um melt­ing­ar­vanda­mál og maga­verki og liðugan band­vef hjá mörgum.

Svo hrundi ég end­an­lega.

„Svo er það kulnun sem við upp­lifum mörg á róf­inu sem hefur svo dúkkað upp aftur og aftur í mínu lífi. Þegar ég lít til baka þá veit ég í raun ekki hversu oft ég hef upp­lifað þetta ástand. Svo hrundi ég end­an­lega árið 2018. Ég fékk bara grein­ing­una „kulun“ en þetta er í raun­inni ein­hverfukulnun sem er hug­tak sem er að ryðja sér til rúms og lýsir sér í langvar­andi örmögnun. Þetta lýsir sér meðal ann­ars í minni færni til að vera innan um annað fólk og vera í sam­skiptum við aðra. Snert­iskyn verður við­kvæmt því erfitt er að ganga í óþægi­legum fötum. Svo getur til dæmis verið erfitt að hafa útvarpið í gangi og vera í birtu. Ég var alger­lega jafn­væg­is­laus á þessu tíma­bili og gat ekki lesið í marga mán­uði. Færnitap fylgir okkar kulnun.“

Guðlaug er spurð um aðstoð­ina sem hún fékk í kjöl­farið og segir hún að best hafi verið að hvíla sig.

„Það er eitt; maður á erfitt með að leita sér hjálpar og biðja um aðstoð. Ég fer mjög sjaldan og helst ekki til lækna og frá því ég var lítil hef ég verið sjálf­bjarga. Svo þegar maður er heil­brigð­is­starfs­maður þá er kannski gert ráð fyrir að maður viti hlut­ina sjálfur.“

Gangast við sjálfum sér

Þó nokkuð er um að full­orðnir leiti til Ein­hverfu­sam­tak­anna og leiti eftir grein­ingu. Guðlaug segir að á meðal þess sem fólk sem fái grein­ingu eigi sam­eig­in­legt geti verið saga um kvíða, dep­urð, félags­forðun og ýmsar geð­grein­ingar og einnig almennt heilsu­leysi eða kulnun eins og þegar hefur verið minnst á.

„Það er mjög algengt að það sé ein­hver aðdrag­andi sem teng­ist fyrri grein­ingum. Fólk hefur kannski verið greint með geð­hvörf eða annað en ein­hvern veg­inn er aldrei neitt sem virkar og fyrri með­ferð gerir það jafn­vel veik­ara. Svo fær fólk sam­visku­bit yfir því að það skuli ekki ganga þannig að van­líðan þess eykst.“

Eitt af því sem ýtir undir kuln­un­ina er að vera að feika að maður sé ekki ein­hverfur.

Guðlaug segir að sér líði svo­lítið eins og hún hafi fundið ætt­boga sinn.

„Nú er ég á réttu „ætt­ar­móti“ og nú skil ég fólkið sem ég er að tala við. Þess vegna mæli ég alltaf ein­dregið með því að fólk láti vita af ein­hverf­unni sinni og sé ekki að pukrast með þetta vegna þess að eitt af því sem ýtir undir kuln­un­ina er að vera að feika að maður sé ekki ein­hverfur; að ganga með svo­kall­aða grímu. Þannig að partur af bat­anum er að gang­ast við sjálfum sér og vera sáttur í eigin skinni. Ég hef eign­ast fullt af vinum „á réttum for­sendum“; vinir sem ég átti áður eru auð­vitað áfram góðir vinir. Við þessi ein­hverfu hitt­umst til dæmis  í „ein­hverfu­kaffi“ eða það eru aðrir hitt­ingar og fólk upp­lifir þá ekki þessa félags­legu þreytu eins og maður gerir svo oft. Það er eitt­hvað áreynslu­leysi í sam­skipt­unum.

Það má líkja þessu við að maður hitti Íslend­inga í útlöndum og þá er eins og því fylgi afslöppun. Maður veit að fólk skilur mann. Við erum ekki með skerta færni til sam­skipta; við erum með öðru­vísi sam­skipta­stíl.

Hingað til hefur alltaf verið lögð áhersla á að við lærðum að haga okkur eins og við værum ekki ein­hverf en það er leið sem gerir okkur í raun og veru lasin til lengri tíma litið. Við veikj­umst og upp­lifum kulnun. Flott kona sem fékk greinin­una sína um sex­tugt orð­aði þetta þannig að það væru mann­rétt­indi að þekkja sjálfan sig. Það er djúp setn­ing.

Ég heyri því miður af því ennþá að sumir for­eldrar leyni grein­ing­unni fyrir börn­unum sínum; ein­hverfa barnið fær ekki að vita að það sé ein­hverft.

Það má kannski ekki ræða um þetta í skól­anum og þá eru það for­eldr­arnir sem stjórna því. Þetta er ekki algengt en þetta er því miður ennþá að ger­ast. Málið er að við vitum alveg og aðrir vita alveg að við erum ekki eins og hinir. Og á meðan við vitum ekki af hverju það er þá gefum við okkur bara ein­hverjar aðrar skýr­ingar. Maður er bara kall­aður félags­skítur ef maður hefur ekki gaman af því að vera í hávaða.

Ein­hverfa er eng­inn aga­legur dómur að fá. Þetta er bara skýr­ing og skiln­ingur. Það sem hjálpar manni að ná bata er að maður er ekki að ætl­ast til ein­hvers af sér sjálfum sem maður getur ekki gert. Ég nota til dæmis net­versl­anir í stað þess að fara út í búð. Áður hugs­aði ég með mér hvers vegna ég færi ekki út í búð eins og venju­leg mann­eskja. Í dag hugsa ég með mér að ég ætli frekar að nota ork­una til að tala við fólkið mitt. Þegar maður veit hvernig maður er og hver maður er þá getur maður betur mætt sínum eigin þörfum.“

Ein­hverfa er eitt af því síð­asta sem er svo­lítið að koma út varð­andi það að fólk þori að segja frá.

Hvað með for­dóma í garð ein­hverfra?

„Það er inn­gróið í mörg sam­fé­lög að við eigum öll að vera normal og í 100% vinnu og þar fram eftir göt­unum. Þannig að það að vera ekki normal hefur verið litið horn­auga. Ein­hverfa er eitt af því síð­asta sem er svo­lítið að koma út varð­andi það að fólk þori að segja frá.“

Guðlaug segir að það sé þó vakn­ing í heim­inum varð­andi ein­hverfu.

„Við erum byrjuð að tala sjálf og lýsa okkar veru­leika. Þegar ég fékk mína grein­ingu þá fannst mér skipta miklu máli að segja frá; tala og tjá mig vegna þess að það var sú leið sem varð til þess að ég fann mig. Ég hugs­aði með mér að ef ég gæti sagt mína sögu og það væri ein stelpa sem fatt­aði og fengi stuðn­ing þá væri mínu verki lokið. Þá væri ég búin að gera mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ