Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir þátt Bjarna Ben í málinu grafalvarlegan: „Hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“

Segir þátt Bjarna Ben í málinu grafalvarlegan: „Hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“
Þórður Snær Júl­í­us­son.

Rit­stjóri Kjarnans, Þórður Snær Júl­í­us­son, hefur birt grein á frétta­vef sínum um rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á fjórum blaða­mönnum – umfjöllun fjöl­miðla um hana; og aðkomu stjórn­mála­manna; kemur Þórður meðal ann­ars kemur inn á þátt Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins:

„Þann 14. febr­úar 2022 fékk ég sím­tal frá lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra. Ég var boð­aður í skýrslu­töku fyrir að hafa mót­tekið gögn og skrifað fréttir upp úr þeim hluta þeirra sem ég og sam­starfs­menn mínir töldum frétt­næma og ættu erindi við almenn­ing,“ ritar Þórður og bætir við:

„Umræddar fréttir birt­ust í maí 2021 í umfjöllun sem kennd hefur verið við „Skæru­liða­deild Sam­herj­a“. Með þessu var ljóst að ég hafði stöðu sak­born­ings í mál­inu. Þrír aðrir blaða­menn fengu einnig stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins, þeirra á meðal Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður á Kjarn­an­um.“

Hann nefnir að „ekk­ert í umfjöll­un­inni hefur verið hrakið og við­brögð við henni voru nær öll á þann veg að það atferli sem lýst var, og byggði á umræddum gögn­um, var for­dæmt.

Sam­herji baðst í kjöl­farið afsök­unar á við­brögðum sínum við fréttaum­fjöllun um meint lög­brot fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem það réðst með offorsi gegn nafn­greindum blaða­mönn­um.“

Bjarni Bene­dikts­son.

Þórður segir að „degi eftir boðun okkar til skýrslu­töku birti Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til næstum 14 ára og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, langa færslu á Face­book þar sem hann varði og studdi þessar aðgerðir lög­regl­unnar gagn­vart blaða­mönn­um, en lög­reglu­stjór­inn sem ber ábyrgð á þeim, Páley Berg­þórs­dótt­ir, var áður bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum um margra ára skeið og um tíma for­maður bæj­ar­ráðs sem full­trúi flokks­ins.“

Páley Borg­þórs­dóttir lög­reglu­stjóri.

Þórður full­yrðir að „færsla Bjarna var for­dæma­laus og grafal­var­leg, enda öllu skyn­sömu fólki ljóst að þar var valda­mik­ill stjórn­mála­maður að skipta sér af lög­reglu­rann­sókn á blaða­mönnum og koma vilja sínum um fram­gang hennar skýrt til skila. Í færsl­unni sagði Bjarni að engar fréttir hefðu verið fluttar af því sem mestu máli skipti varð­andi þetta mál og flesta þyrsti að vita hvað lög­­reglan kunni að hafa undir höndum sem gefi til­­efni til rann­­sókn­­ar:

„Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­­sókn­­ar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru get­­gátur um það hvað lög­­reglan muni mög­u­­lega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin get­­gátum um það. Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa frétt­­ir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“

Áður­nefnda færslu Bjarna í fullri lengd má lesa neðst í grein­inni.

En Þórður færir það í tal að „það sem ég vissi á þessu stigi máls, um miðjan febr­úar og degi eftir að okkur var til­kynnt um sak­born­inga­stöðu, var hvað mér var gefið að hafa gert. Það er að brjóta gegn 228. og 229. greinum almennra hegn­ing­ar­laga sem snú­ast um frið­helgi einka­lífs. Þetta stað­festi lög­regla við mig við fyrstu hring­ingu og einnig að ég væri ekki til rann­sóknar vegna nokk­urra ann­arra brota. Sömu sögu er að segja um hina þrjá blaða­menn­ina sem settir voru á saka­manna­bekk. Þetta var allt fram komið í opin­berri umræðu áður en Bjarni birti færslu sína.“

Bætir þessu við:

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri.

„Ekk­ert okkar er grunað um að hafa tekið síma ófrjálsri hendi eða fyrir að hafa eitrað fyrir Páli Stein­gríms­syni, skip­stjóra hjá Sam­herja, líkt og haldið hefur verið fram í opin­berri umræðu og sumum fjöl­miðl­um. Það sem okkur var gefið að hafa gert er að taka við gögn­um, beita hefð­bundnum starfs­að­ferðum og við­miðum blaða­mennsku, innan ramma þeirra siða­reglna og laga sem okkur er gefið að starfa, leggja mat á frétta­gildi hluta þeirra og skrifa upp úr þeim frétt­ir.“

Færsla Bjarna Bene­dikts­sonar frá 15. febr­úar:

„Í okkar góða landi er þrí­skipt­ing rík­is­valds. Það felur meðal ann­ars í sér að Alþingi setur lög, fram­kvæmda­valdið fylgir lögum eftir og sjálf­stæðir dóm­stólar leysa úr laga­legum ágrein­ingi.

Oft er sagt að fjórða valdið liggi hjá fjöl­miðlum sem horfa yfir sviðið og upp­lýsa almenn­ing um gang mála.

Nú ber­ast fréttir af því að lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi tekið mál til rann­sóknar og með sím­tali í gær boðað fjóra frétta­menn til yfir­heyrslu. Það eina sem fram er komið frá lög­regl­unni er að emb­ættið sé með brot á frið­helgi einka­lífs til rann­sóknar. Við höfum mátt venj­ast því í frétta­flutn­ingi af lög­reglu­málum þegar almennir borg­arar eiga í hlut að fjöl­miðlar beini sjónum sínum að því hvað hinn grun­aði kunni að hafa unnið til saka.

Iðulega er mikið á sig lagt til að graf­ast fyrir um það og eng­inn vafi að almenn­ingur kann vel að meta vand­aða rann­sókna­blaða­mennsku. Mál sem eru til rann­sóknar fá reglu­lega umfjöllun í frétta­tímum og fram­vindu mála er fylgt eftir frá rann­sókn til ákæru og dóms eða nið­ur­fell­ingar máls eftir atvikum.

Það verður að segj­ast eins og er að svo virð­ist sem þessi hefð­bundu vinnu­brögð og lög­mál eigi ekki við, að minnsta kosti ekki að öllu leyti, í til­viki blaða­mann­anna sem fengu sím­tal í gær. Engar fréttir hafa verið fluttar af því sem mestu máli skiptir og flesta þyrstir að vita hvað lög­reglan kunni að hafa undir höndum sem gefi til­efni til rann­sóknar. Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­sóknar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru get­gátur um það hvað lög­reglan muni mögu­lega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin get­gátum um það.

Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls? Rík­is­út­varpið tók málið skref­inu lengra og fékk lög­mann til að lýsa því yfir að ef málið sner­ist um það sem blaða­menn­irnir sjálfir telja, þá sé nær úti­lokað að ákæra verði gefin út og svo les maður fréttir af dómafor­dæmum um að slík mál séu von­laus frá upp­hafi. „Afar ólík­legt að blaða­menn­irnir fjórir verði ákærðir,“ segir í fyr­ir­sögn fréttar á ruv.is.

Þetta er áður en nokkur maður veit hvaða gögn lög­reglan hefur eða hvaða spurn­inga hún leitar svörum við. Eru ein­hver for­dæmi fyrir svona vinnu­brögðum frétta­stofu? Öll fréttin er að gefnum for­sendum þeirra sem fengu sím­tal í gær. Hefði Rík­is­út­varpið ekki mátt láta þess getið að sumir þeirra sem eru með kenn­ingar um það hvað málið snýst hafa starfað á Rík­is­út­varp­inu. Hefði það ekki sýnt lág­marks við­leitni til að gæta hlut­leysis í máli sem virð­ist á algjöru byrj­un­ar­stigi?

Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins hefur kom­ist að því að máið sé alvar­legt og óskilj­an­legt. Gott ef ég heyrði ekki að það væri búið að senda bréf til útlanda til að vekja athygli á þessu alvar­lega máli. Ég get ekki varist því að spyrja nokk­urra spurn­inga þegar maður les, heyrir og sér hverja frétt­ina á eftir annarri vegna sím­tals­ins frá lög­regl­unni í gær.

Eru fjöl­miðla­menn of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar?

Hvernig getur það talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?

Ef fjöl­miðla­menn­irnir eiga þann lögvarða rétt sem þeir gefa sér að eigi við í þessu máli, að svara ekki spurn­ingum lög­regl­unnar, vilja þeir þá ekki bara gera það, neita að svara. Er það mjög íþyngj­andi? Meira íþyngj­andi en almennir borg­arar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lög­reglu?

Eru ekki öll for­dæmin sem rakin eru í fjöl­miðlum og frétta­tíma Rík­is­út­varps­ins einmitt til sönn­unar um að við búum í rétt­ar­ríki og að þeir sem telja sig hafa hreinan skjöld geta mætt óhræddir til lög­regl­unnar og treyst því að rétt­ar­kerfið á Íslandi virki.

Má ekki bara hafa það í huga að sum mál eru felld niður. Önnur fara í ákæru. Í sumum er sak­fellt, í öðrum sýknað.

Þarf öll þessi stór­yrði áður en lög­reglan spyr fyrstu spurn­ing­ar­innar undir rann­sókn máls­ins?

Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lög­unum.

Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ