Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýr forseti Ferðafélags Íslands: „Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta“

Nýr forseti Ferðafélags Íslands: „Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta“
Sigrún Val­bergs­dóttir.

Nýr for­seti Ferða­fé­lags Íslands, Sigrún Val­bergs­dóttir, hefur sent frá sér til­kynn­ingu sem stíl­aða á félaga í FÍ; kemur þar fram meðal ann­ars að vegna ólýð­ræð­is­legra vinnu­bragða Önnu Dóru Sæþórs­dóttur hafi öll stjórnun innan félags­ins verið komin í óefni:

„Kæri félagi í Ferða­fé­lagi Íslands, Starf­semi Ferða­fé­lags Íslands hefur verið í miklum blóma und­an­farin ár, félags­menn hafa aldrei verið fleiri, félags­starfið öfl­ugt og fjár­hag­ur­inn sterkur. Und­an­farið ár hefur hins vegar hvílt skuggi yfir starfi stjórnar félags­ins vegna alvar­legs sam­skipta­vanda á milli for­seta og stjórn­ar­fólks ann­ars vegar og for­seta og fram­kvæmda­stjóra hins vegar.“

Hún nefnir að „fram til þessa hefur stjórnin talið rétt að greina félags­fólki ekki frá þessum vanda­málum í þeirri von að þau væri hægt að leysa með far­sælum hætti og með hags­muni félags­ins að leið­ar­ljósi. Því miður er ljóst eftir til­kynn­ingu Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, um að hún segði af sér sem for­seti Ferða­fé­lags Íslands, að svo verður ekki. Stjórn Ferða­fé­lags­ins telur rétt að bregð­ast við þessu með því að upp­lýsa félaga um aðdrag­anda afsagnar for­seta.“

Bætir við að „í kjöl­far þess að Anna Dóra var kosin for­seti var ljóst að henni fylgdi kraftur og áhugi á að setja mark sitt á starf­semi félags­ins. Naut hún í upp­hafi stuðn­ings og trausts allra í stjórn. Meðal ann­ars var ráð­ist í stefnu­mót­un­ar­vinnu fyrir Ferða­fé­lag Íslands til næstu fimm ára, verk­lags­reglur um góða stjórn­ar­hætti end­ur­bættar og verk­ferlar er snerta ein­elti, kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni og ofbeldi upp­færðir.

Fljót­lega tók að bera á ólýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum for­seta og mik­il­væg mál ekki borin undir stjórn eins og vera ber. Stærsti ásteyt­ing­ar­steinn­inn var þegar for­seti vildi ein­hliða skipta út fram­kvæmda­stjóra okkar, Páli Guð­munds­syni, án þess að fyrir því lægju mál­efna­legar ástæður og engin form­leg til­laga um slíkt hefði verið borin undir stjórn.

Án sam­ráðs ákvað for­seti engu að síður að hefja við­ræður um starfs­lok við fram­kvæmda­stjór­ann og það án vit­undar stjórnar.“

Sigrún segir að „þegar stjórnin komst að því, og lýsti sig ósam­mála, urðu öll sam­skipti við for­seta mjög erfið. Í fram­haldi tók við tíma­bil þar sem fram­koma for­seta gagn­vart fram­kvæmda­stjóra gerði honum erfitt að sinna starfi sínu. Í byrjun júní sl., á háanna­tíma félags­ins, varð stjórn ljóst að ekki yrði búið við óbreytt ástand, enda hags­munir félags­ins í húfi. Stjórn lagði því fram til­lögu við for­seta þar sem óskað var eftir því að hún héldi sig til hlés um stund­ar­sakir á meðan leit­ast væri við að leysa sam­skipta­vand­ann. Forseti hafn­aði því líkt og til­lögu stjórnar um að leita til utan­að­kom­andi ráð­gjafa til að bæta sam­skiptin.“

Hún nefnir að „á sama tíma hafði fram­kvæmda­stjóri lagt fram form­lega kvörtun vegna ein­eltis af hálfu for­seta og voru nýupp­færðar verk­lags­reglur Ferða­fé­lags­ins í ein­elt­is­málum því virkj­aðar og leitað aðstoðar utan­að­kom­andi sér­fræð­inga. Í kjöl­far þess barst stjórn tölvu­póstur frá for­seta með ávirð­ingum um að rekstur félags­ins væri í ólestri. Þessar full­yrð­ingar voru alveg á skjön við ræðu for­seta á aðal­fundi í mars sl. og árs­skýrslu stjórnar sem sam­þykkt var á sama fundi, en þar kom einmitt fram að rekstur félags­ins stæði ein­stak­lega vel. Til þess að bregð­ast við þessum athuga­semdum for­seta ákvað stjórn að fá álit end­ur­skoð­anda sem stað­festi að rekst­ur­inn væri traustur og fjár­hags­staða sterk og þau gögn lögð fyrir á stjórn­ar­fundi þann 28. júní sl. Forseti kom einnig með athuga­semdir við það hvernig haldið hefði verið á málum sem upp hafa komið innan félags­ins í sam­skiptum ein­stak­linga, og varða m.a. kyn­ferð­is­legar áreitni. Gagn­rýndi hún ýmist að fram­kvæmda­stjóri hefði eytt of miklum tíma í að sinna þeim málum eða að of lítið væri gert. Á sama stjórn­ar­fundi var því lögð fram grein­ar­gerð um hvernig tekið hefði verið á slíkum málum hjá félag­inu und­an­farin fimm ár. Þar kom m.a. fram:

„Alls hafa komið upp sex mál á sl. fimm árum hjá Ferða­fé­lagi Íslands sem varða kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundið ofbeldi eða ein­elti. Öllum mál­unum er lokið nema eitt er í skoðun hjá fag­legum utan­að­kom­andi aðila. Málin voru ýmist leyst með sátt á milli aðila, afsögn, skrif­legri áminn­ingu, til­tali og til­færslu í starfi eða sam­starfi var hætt eða það ekki end­ur­nýjað. Af þessum sex málum voru fjögur á vett­vangi félags­ins og tvö utan starf­semi félags­ins. Ferða­fé­lag Íslands er með við­bragðs­á­ætlun vegna áreit­is­mála og er hún hluti af stjórn­kerfi félags­ins og er virkjuð ef mál eru til­kynnt til félags­ins.“

Sigrún ljær máls á því í til­kynn­ing­unni að „allt þetta ár hefur stjórn Ferða­fé­lags­ins leitað allra leiða til að leiða þessi sam­skipta­mál við for­seta til lykta með far­sælum hætti fyrir félagið. Okkur þykir miður að það tókst ekki. Stjórnin mun engu að síður halda áfram að leita leiða til þess að tryggja frið um starf­semi félags­ins og verða þessi mál tekin til umræðu á næsta aðal­fundi þess. Í stóru félagi eins og FÍ geta komið upp ýmis álita­mál í sam­skiptum ein­stak­linga og í þeim til­vikum sem borist hafa kvart­anir hefur verið tek­ist á við þær með fag­legum hætti og í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun. Stjórn Ferða­fé­lags Íslands er skipuð fjöl­breyttum hópi sjálf­boða­liða úr ólíkum áttum, bæði konum og körlum. Það er ósk okkar að blóm­leg starf­semi FÍ fái áfram að vaxa og dafna með sam­ein­uðum kröftum okkar allra. Virð­ing­ar­fyllst Reykja­vík, 28. sept­em­ber 2022. Fyrir hönd stjórnar Ferða­fé­lags Íslands, Sigrún Val­bergs­dóttir for­seti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ