Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Frumvarp Jóns: „Nafnlaus ábending dugar lögreglu sem rökstuðningur um að grunur sé um afbrot”

Frumvarp Jóns: „Nafnlaus ábending dugar lögreglu sem rökstuðningur um að grunur sé um afbrot”
Jón Gunn­ars­son Mynd: Rúv-skjáskot

„Ég hlust­aði á hv. þing­mann í spjall­þáttum helg­ar­innar í sjón­varps­stöðvum og útvarps­stöðvum og síðan í frétta­tíma þar sem farið var mjög frjáls­lega með allar stað­reyndir í þessu máli. Það er alvar­legt þegar þing­menn taka til máls og hafa ekki kynnt sér málið betur en raun ber vitni eða eru vís­vit­andi að tala í þessa átt.” segir þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, í aðsendri grein, sem ber yfir­skrift­ina For­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Hann bætir við:

„Svona byrjar dóms­mála­ráð­herra svar sitt við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu og hvort það þurfi ekki að efla eft­ir­lit með störfum lög­reglu fyrst.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

Í seinna svari sínu leggur dóms­mála­ráð­herra Þórhildi Sunnu orð í munn og ásakar hana um dylgjur þess vegna.

Þór­hildur Sunna vísar í umfjöllun ráð­herra sjálfs um ósk hans til þess að auka eft­ir­lits­heim­ildir lög­reglu; sú ósk ráð­herra er mjög vel skjal­fest í við­tölum og í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Orðrétt segir ráð­herra:

„Lög­reglan hefur varað við þessu mjög lengi. Til þess að lög­reglan geti haldið uppi eðli­legu sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd erlendis þarf hún víð­tæk­ari heim­ildir til að geta fylgst með mögu­legum brota­mönnum.“

Einnig segir ráð­herra að: „Heim­ildir lög­reglu eru í dag mjög tak­mark­aðar, þær mið­ast við að grunur sé um ákveðið brot.” Í sam­ráðs­gátt er sú útgáfa af frum­varp­inu sem dóms­mála­ráð­herra óskar eftir umsögnum um og eru mark­mið frum­varps­ins sögð vera: “Að skýra heim­ildir lög­reglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrota­varna, einkum hvað varðar afbrot eða athafnir sem raskað geta öryggi borg­ar­anna og rík­is­ins, afbrot sem tengj­ast skipu­lagðri brota­starf­semi og afbrot sem framin eru á net­inu”.

Það er því mjög stór spurn­ing hver er að snúa hverju á hvolf í þess­ari umræðu, hvort það sé ekki einmitt ráð­herra sjálfur sem getur ekki geng­ist við því sem hans eigið frum­varp segir, en frum­varpið bætir ýmsu við í vopna­búr lög­regl­unnar:

* Aukinn vopna­burður:

„Lög­reglu­stjórar geta gefið fyr­ir­mæli um að lög­reglu­menn skuli vopn­ast í sam­ræmi við reglur þar um.”

* Almenn heim­ild til þess að njósna um net­notkun fólks:

„Í því skyni að stemma stigu við afbrotum er lög­reglu heim­ilt að nýta, þ.m.t. til grein­ingar, allar þær upp­lýs­ingar sem hún býr yfir eða aflar við fram­kvæmd almennra lög­gæslu­starfa og frum­kvæð­is­verk­efna, þar á meðal sam­skipti við upp­ljóstr­ara, eft­ir­lit á almanna­færi og vöktun vef­síðna sem opnar eru almenn­ingi.”

* Víðtæk heim­ild til eft­ir­lits: „Hafi lög­regla upp­lýs­ingar um að til­tek­inn ein­stak­lingur eða hópur ein­stak­linga hafi tengsl við skipu­lagða brota­starf­semi eða af þeim kunni að stafa sér­greind hætta fyrir almanna­ör­yggi er lög­reglu heim­ilt að hafa eft­ir­lit með við­kom­andi.”

Frum­varpið er ekk­ert rosa­lega fyr­ir­ferða­mikið, það eru heilar fimm greinar og fimmtán blað­síður í heild,“ segir Björn og bætir við að „það tekur til­tölu­lega stuttan tíma að lesa þessar til­lögur ráð­herra. Þetta eru stað­reyndir máls­ins, beint úr frum­varpi ráð­herra.“

Hann vill að fólk spyrji spurn­inga um málið:

„Spyrjum okkur þá, viljum við ekki einmitt að lög­reglan hafi víð­tækar heim­ildir til þess að fylgj­ast með fólki með tengsl við skipu­lagða brota­starf­semi? Það hljómar ekk­ert hættu­legt fyrir almenna borg­ara, er það? Svarið við því er tví­þætt:

í fyrsta lagi þýðir það ekki sjálf­krafa að svarið við skipu­lagðri glæp­a­starf­semi sé að lög­reglan fari í eitt­hvað vopna­kapp­hlaup. Rann­sóknir hafa sýnt að auk­inn vopna­burður lög­reglu eykur ofbeldi. Þetta er vel þekkt fyr­ir­bæri sem heitir vopna­á­hrif (e. weapons effect).

Í öðru lagi er heim­ildin til þess að vakta vef­síður og við­hafa eft­ir­lit með fólki á almanna­færi ekki með neinum fyr­ir­vörum um skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Hér er nauð­syn­legt að hafa í huga að slíkar eft­ir­lits­heim­ildir eru yfir­leitt frekar not­aðar gegn jað­ar­settum hópum og leiðir til enn frek­ari jað­ar­setn­ingar. En hvað með ef almennu eft­ir­lits­heim­ild­irnar væru teknar úr frum­varp­inu og eftir stæði bara eft­ir­lit með fólki með tengsl við skipu­lagða glæp­a­starf­semi, væri það þá í lagi? Nei, nefni­lega ekki.“

Björn segir að „við eigum að gera ráð fyrir mis­tökum, þannig verðum við einmitt betri í að koma í veg fyrir þau. Þess vegna spyr Þór­hildur Sunna hvort það verði ekki að koma á eft­ir­liti með störfum lög­regl­unnar fyrst, áður en við ræðum mögu­legar auknar vald­heim­ildir lög­reglu.

Í umfjöllun máls­ins á und­an­förnum dögum hefur dóms­mála­ráð­herra hins vegar sagt að þetta aukna eft­ir­lit sé í frum­varp­inu og end­ur­tók það í lok svars síns á þingi með því að segja: „Við þurfum að auka eft­ir­lit með störfum lög­reglu. Það verður vel útfært í þessu frum­varpi og öll sú starf­semi verður styrkt.”

Segir Björn einnig að „Píratar hafa lengi barist fyrir sjálf­stæðu ytra eft­ir­liti með störfum lög­reglu og þó ein­hverri nefnd hafi verið komið á, með síma­tíma á milli 10 og 11 á virkum dögum, er enn langt í land með að ná nágranna­þjóðum okkar í þeim málum, þrátt fyrir ýmis orð ráða­manna … eins og þetta svar dóms­mála­ráð­herra. Stað­reyndir máls­ins eru hins vegar að í frum­varps­drögum ráð­herra er eft­ir­litið í formi til­kynn­inga­skyldu lög­reglu til þess­arar svoköll­uðu eft­ir­lits­nefndar. Til­kynn­ing­ar­skyldu en ekki eft­ir­lits­skyldu.

Frum­varps­drögin segja: „Sé eft­ir­liti skv. 2. mgr. 15. gr. a. hætt án þess að grunur sé um afbrot skal lög­regla til­kynna nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu um aðgerð­ina eins fljótt og unnt er […] eft­ir­lit með ein­stak­lingi hafi verið við­haft að ósekju getur nefndin beint því til lög­reglu­stjóra að til­kynna við­kom­andi um að hann hafi sætt eft­ir­liti.”

Hér er gott að hafa í huga að nafn­laus ábend­ing dugar lög­reglu sem rök­stuðn­ingur um að grunur sé um afbrot. Ég skil það mjög vel að lög­reglan þurfi heim­ildir til þess að fylgj­ast með fólki sem er tengt skipu­lagðri glæp­a­starf­semi vegna ábend­inga frá sam­starfs­að­ilum í Evrópu og ann­ars­staðar.“

Tekur fram að „gagn­rýnin á þetta frum­varp snýst ekki um nauð­syn þess. Gagn­rýnin snýst um að til­efnið er notað til þess að gera úlf­alda úr mýflugu og mun víð­tæk­ari heim­ild er gefin í lögum en nauð­syn er til, einmitt án við­eig­andi var­úð­ar­ráð­staf­anna vegna mögu­legrar mis­beit­ingar.

Í víð­ara sam­hengi þurfum við að spyrja okkur hvort fyrri ákvarð­anir lög­gjafans hafa einmitt ekki valdið þessum vanda.“

Segir að lokum að „skipu­lögð glæp­a­starf­semi er til vegna þess að vímu­efni og vændi eru gerð ólög­leg. Þar er verið að skipta einum vanda, fíkn og nauð­ung fyrir annan vanda – skipu­lagða glæp­a­starf­semi. En skipu­lagðri glæp­a­starf­semi fylgir einnig fíkn og nauð­ung og mun meira ofbeldi að auki. Fíknin hvarf ekki þegar hún var gerð ólög­leg. Vændið ekki heldur. Við fengum lög um þessi mál og sem afleið­ingu af þeim, skipu­lagða og vopn­vædda glæp­a­starf­semi. Er ekki kom­inn tími til þess að finna aðrar lausnir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ