Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Ingibjörg um Jón: „Velur bráð sína af kostgæfni – oft einstakling sem er ekki með sterkt bakland“

Ingibjörg um Jón: „Velur bráð sína af kostgæfni – oft einstakling sem er ekki með sterkt bakland“
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir fyrr­ver­andi ráð­herra skrifar á Facebook-síðu sína um Jón Baldvin, hennar fyrrum félaga í stjórn­mál­unum.

Þar gerir hún mál Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar að umtals­efni, en kveikjan að skrifum hIngi­bjargar Sólrúnar eru dag­bók­ar­færslur Þóru Hreins­dóttur; fyrrum nem­anda Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar í Mela­skóla árið 1970, sem birt­ust í for­síðu­út­tekt Stund­ar­innar, en blaðið kom úr prentun fyrir helgi.

Jón Baldvin Hanni­bals­son.

Ingi­björg Sólrún byrjar færsl­una svona:

„Jón Baldvin Hanni­bals­son ekki meir, ekki meir, hugs­aði ég þegar ég frétti af þessu máli í síð­ustu viku og beitti mig eig­in­lega hörðu til að lesa þessa frá­sögn. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að dag­bók­ar­færslur Þóru Hreins­dóttur, 15 ára nem­anda JBH í Mela­skóla 1970, eru ótrú­lega merki­leg heim­ild um aðferðir JBH við að ná tökum á Þóru og hvaða afleið­ingar það hafði fyrir hug­ar­á­stand hennar. Í fram­hald­inu ákvað ég að lesa aftur allar þær 23 sögur sem safnað hefur verið saman af kyn­ferð­is­brotum og áreiti JBH á ára­tuga tíma­bili og í ljós kom ákveðið munstur sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

JBH hagar sér eins og rán­dýr sem velur bráð sína af kost­gæfni – oftar en ekki ein­stak­ling sem er ekki með sterkt bak­land – sækir að henni með skipu­lögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafn­vel trúnað, ving­ast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eft­ir­leik­ur­inn auð­veldur.“ skrifar Ingi­björg Sólrún og bætir við:

„Þetta er lýs­ing á ótrú­lega ljótum og ójöfnum leik þar sem kenn­ar­inn, skóla­meist­ar­inn, ráð­herr­ann og sendi­herr­ann mis­beitir valdi sínu og sækir að ung­lings­stúlkum. Ég fékk vit­neskju um eitt þessar mála árið 2007 þegar ég var for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og það varð til þess að ég ræddi í trún­aði við JBH og bað hann að segja sig frá heið­urs­sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir þing­kosn­ing­arnar vorið 2007.

Hann varð við þess­ari ósk minni en í stað þess að láta þar við sitja og sýna svolitla iðrun og hug­ar­angur vegna fram­ferðis síns fór hann rak­leiðis í Silfur Egils og vældi yfir því að ég hefði hafnað honum í heið­urs­sætið á póli­tískum for­sendum. Þetta gerði hann vit­andi að ég gæti aldrei sagt opin­ber­lega hver var hin raun­veru­lega ástæða fyrir því að ég vildi hann ekki í heið­urs­sætið.“

Hún færir í tal að „það var svo ekki fyrr en 5 árum síðar, þegar Guðrún Harð­ar­dóttir steig fram, sem ástæðan varð heyr­in­kunn. En af hverju er ég að skrifa um þetta núna? Er ekki nóg komið? Ég skrifa þetta vegna þess að Jón Baldvin Hanni­bals­son hefur aldrei við­ur­kennt mis­gjörðir sínar og enn láta margir þær sér í léttu rúmi liggja af því þeim finnst JBH hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri póli­tík.

Það kemur þessu máli hins vegar ekk­ert við og menn kom­ast aldrei fram­hjá þeirri stað­reynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum póli­tíska vett­vangi hefur hann sjálfur lít­ils­virt með því að mis­beita því valdi sem honum var falið gagn­vart fjöl­mörgum ung­lings­stúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Hún segir einnig að „ég skrifa þetta líka vegna þess að mál JBH er ekk­ert eins­dæmi. Oft ber­ast sögur af kyn­ferð­is­áreitni og nauð­ung af hálfu karla sem eru vel liðnir, hæfleik­a­ríkir, vel metnir og hátt á kvisti í verð­leika­sam­fé­lag­inu.

Við eigum mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar mis­beiti valdi sínu gagn­vart ungum konum og körlum. En það ger­ist nú samt og ef við neitum að horfast í augu við það þá er okkur líkt farið og fólki fyrri alda sem þagði yfir eða lét kyrrt liggja að heldri menn og valds­menn mis­not­uðu und­ir­sáta sína.

Takk Val­gerður Þor­steins­dóttir fyrir að birta dag­bók­ar­færslu móður þinnar og takk Bjarni Frímann Bjarna­son fyrir þinn kjark. Við hin verðum að hafa kjark til að taka á þessum málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum