Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hælisleitendur kvarta undan stöðugum hávaða: „Mér líður í raun hræðilega“

Hælisleitendur kvarta undan stöðugum hávaða: „Mér líður í raun hræðilega“
Hótel Saga við Hagatorg.

Hæl­is­leit­endur á Hótel Sögu eru lang­þreyttir á stans­lausum hávaða en fram­kvæmdir standa þar yfir. Þá fer bruna­varna­kerfið ítrekað í gang á öllum tímum.

Hæl­is­leit­andi að nafni Anton dvelur ásamt hópi fólks á Hótel Sögu og hefur gert það síð­asta tæpa hálfa árið. Flúði Anton Rússland við upp­haf stríð­is­ins í Úkraínu en vegna mót­mæla á hann fang­els­is­dóm yfir höfði sér.

Hætt að kippa sig upp við brunabjölluna

Segir hann í sam­tali við Mannlíf að Hótel Saga sé frá­bær staður til að dvelja á í stuttan tíma en nú sé hann búinn að vera þar í fimm og hálfan mánuð og finnst komið gott. Frá því að hann flutti inn hafa bygg­ina­verka­menn unnið við húsið með til­heyr­andi hávaða frá 7:40 til 17:00, mánu­daga til laug­ar­daga. Þá segir Anton að hávær bruna­bjalla fari reglu­lega í gang á öllum tímum sól­ar­hrings­ins. Allt þetta segir hann vera afar íþyngj­andi en Anton er greindur með þung­lyndi og segir hann hávað­ann gera illt mun verra. Segist hann hafa sent bæði Útlend­inga­stofnun og Katríni Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra póst þar sem hann kvart­aði yfir ástand­inu á Hótel Sögu en ekki fengið svo mikið sem einn staf til baka.

Anton segir að fólk sé hætt að kippa sér upp við bruna­varn­ar­bjöll­una: „Þegar bruna­bjallan hringir, eigum við að drífa okkur út um neyð­ar­út­gang­inn en núna er okkur orðið sama. Ef það yrði hér alvöru eldur, myndum við senni­lega öll brenna inni.“

Upplifir sig í hættu

Hinn rúss­neski Anton seg­ist ekki hafa nákvæma tölu yfir fjölda þeirra sem dvelja á Hótel Sögu en heldur að það sé um 100 – 150 manns. Lang­flestir séu frá Úkraínu og Venes­ú­ela en þeir séu tveir Rúss­arnir, hann og annar maður. Aðspurður hvort það sé ein­hver tog­streita á milli Úkra­ínu­mann­anna og Rússanna tveggja segir Anton það að hluta til rétt. „Við reynum að vera ekk­ert að gaspra því að við séum Rússar. Við upp­lifum okkur í nokk­urri hættu vegna þess. Auðvitað getum við ekki haldið því algjör­lega leyndu að við séum Rússar, til dæmis þegar við eldum mat með öðru fólki í sam­eig­in­legu eld­húsi, þá höfum við sagt þeim að við séum frá Rúss­landi. Og það er ómögu­legt að spá fyrir um við­brögðin en í eitt skipti öskr­aði ein kona frá Úkraínu á okkur og sögðu okkur óvini sína sem ættu ekki að vera nálægt þeim,“ sagði Anton og bætti því við að í hans huga séu Úkra­ínu­búar ekki óvinir sínir enda er afi hans frá Úkraínu. „Ég er mann­eskja sem mót­mælti í Rúss­landi, árásinni á Úkraínu. Mér líður í raun hræði­lega og finnst ég í hættu þegar mann­eskja sem býr í sömu bygg­ingu og ég, álítur mig óvin sinn og segir að ég eigi að vera ein­hvers­staðar ann­ars­staðar.“

Mannlíf sendi tölvu­póst á Útlend­inga­stofnun varð­andi hávaðan sem hæl­is­leit­end­urnir þurfa að búa við og fékk svar sam­dæg­urs en þar var sagt að Vinnu­mála­stofnun sé með hýs­ingu hæl­is­leit­enda á sinni könnu og var póst­ur­inn áfram­sendur á þá stofnun. Engin svör hafa borist í dag.

Hér fyrir neðan má heyra í hávað­anum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ