Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brynhildi var nauðgað af vini sínum í MH: „Passið ykkur á þessum“

Brynhildi var nauðgað af vini sínum í MH: „Passið ykkur á þessum“

Bryn­hildur Karls­dóttir sýndi mikið hug­rekki í gær þegar hún steig fram og lýsti líðan sinni eftir að henni var nauðgað í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð, MH, fyrir 10 árum síðan. Þá mættu henni lok­aðar dyr hjá skóla­yf­ir­völdum og kvíða­köst, ótti og áfallastreita urðu til þess að Bryn­hildur flosn­aði upp úr námi.

Bryn­hildur segir sögu sína í pistli, sem hún ritar eftir að sjá sama uppi á ten­ingnum í MH þar sem allt logar inn­an­hús vegna meintra kyn­ferð­is­brota og afskipta­leysi skóla­yf­ir­valda.

Hér fyrir neðan má sjá pistil Bryn­hildar í heild sinni:

„Þegar ég var sautján ára nem­andi í MH var mér nauðgað af vini mínum og skóla­bróður. Þegar ég safn­aði loks­ins kjarki til að segja skóla­yf­ir­völdum frá því mættu mér lok­aðar dyr. Kvíða­köst, ótti og áfallastreita breyttu því ekki að ég hafði aldrei kært atvikið til lög­reglu og skóla­stjórn­endur gátu ekki boðið mér betur en að skipta um skóla. Drauma­skól­inn MH var í bak­sýn­is­spegl­inum og fljót­lega hætti ég að mæta í MK, þar sem ég þekkti engan, og flosn­aði upp úr námi.

Á svip­uðum tíma var besta vin­kona mín hún Elísabet í svip­uðu stríði. Hún kærði hrotta­lega nauðgun og studdi mál sitt með veiga­miklum sönn­unum. Samt þurfti hún að rekast á ofbeld­is­mann­inn á göngum skól­ans og sitja með honum í dönsku­tímum. Elísabet fékk hvergi rétt­læti, eng­inn pass­aði upp á hana og hún ein var látin axla ábyrgð á því ofbeldi sem hún varð fyrir, sautján ára gömul. Hún framdi sjálfs­morð árið 2019. 

Nú, meira en tíu árum síðar, tekur nem­andi í MH af skarið, tekur sér rauðan vara­lit í hönd og notar hann sem skrif­færi, skrifar skila­boð sín stórum stöfum á spegil í skól­anum. „Af hverju er ég að labba á sömu göngum og nauð­garar?“ Þetta veit ég vegna þess að ég á bæði systur og mág­konu í MH, þær lýsa hálf­gerðri bylt­ingu meðal nem­enda, hríf­andi mót­mæla­gjörn­ingi og áhrifa­mik­illi aðgerð. Þær lýsa nöfnum sem letruð eru á spegl­ana, eins og til að segja: „Passið ykkur á þessum“. Allt inni­ber þetta skýra kröfu nem­enda um rétt­læti. 

Það er síðan lýsandi að heyra um við­brögð skóla­stjórn­enda. Fyrstu við­brögð starfs­manna sem mæta á svæðið eru að afskrifa upp­á­tækið sem múgæs­ing eða „fjölda­hy­steríu“. Strax er hanskinn tek­inn upp fyrir strák­ana og ekk­ert mark tekið á þolendum, meira að segja spegl­arnir fengu meiri samúð en þær! Einn starfs­mað­ur­inn hróp­aði upp yfir sig að nú væri hrein­lega búið að taka þessa drengi „af lífi“. Svona gíf­ur­yrði eru reyk­sprengja enda kostar kyn­ferð­is­of­beldi vissu­lega manns­líf, það eru þolendur sem láta lífið, þolendur eins og Elísabet. 

Þetta fyllir mig reiði.

Það mætti halda að stefna skól­ans sé vís­vin­tandi að klúðra við­kvæmum málum á kostnað þolenda, sama stefna og þegar ég var nem­andi, fram­fylgt af sama starfs­fólki.

Í skóla sem hefur það orð á sér að vera fram­sýnn og opinn sýn­ist mér ekk­ert hafa breyst, heilli Metoo bylt­ingu síðar. Ef við getum ekki kennt strák­unum okkar að hætta að nauðga þá verðum við að verja stelp­urnar okkar fyrir þeirri lít­ils­virð­ingu að skóla­yf­ir­völd taki ekki mark á þeim. Höfundur er móðir, lista­kona og fyrrum nem­andi í MH.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ