Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Valgerður gagnrýnd fyrir dagbók móður sinnar: Jón Baldvin mætti í kaffi til barnsföðurins

Valgerður Þorsteins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur, sem afhenti Stundinni dagbók móður sinnar hefur verið gagnrýnd harkalega af fjöl­skyldu sinni. Systir hennar Soffía Þorsteins­dóttir, Þorsteinn Eggertsson, barns­faðir Þóru heitinnar, og Fjóla Ólafs­dóttir, núverandi kona hans sendu frá sér yfir­lýsingu í gær sem birtist á mbl.is.

Mannlíf leitaði til Valgerðar í kjölfar yfir­lýsingar fjöl­skyldu hennar. Valgerður segir að Jón Baldvin Hannibalsson hafi kíkt í kaffi til pabba hennar, Þorsteins Eggerts­sonar, og sambýlis­konu hans, Fjólu Ólafs­dóttur á laugar­daginn var. „Pabbi sagði mér það í gær, þegar ég spurði hvort Bryndís Schram og/eða Jón Baldvin hefðu mikið hringt,“ og stað­festir Valgerður að Þorsteinn og Jón Baldvin séu mátar. „Veit ekki hvenær þeir urðu svona bestu vinir, en þeir voru engir sérstakir vinir þegar ég var krakki.“

„Ég ætla ekki að taka á mig þeirra skömm“

Valgerður lýsir því hvernig hún hafi verið með öllu grunlaus um afstöðu fjöl­skyldu sinnar: „Ég sá yfir­lýsingu þeirra ekki á Facebook, þar sem ég hef verið með Soffíu blokkaða frá 2010.“ Valgerður segir jafnframt frá því að í gær hafi fjöl­skyldan verið saman­komin á ættarmóti og þar hafi hún setið með föður sínum og rætt við hann. „Ekki eitt orð um þessa grein í Morgun­blaðinu.“

Valgerður ber systur sinni ekki fagra söguna og lýsir henni sem sjálf­hverfum einstaklingi og að faðir hennar og kona hans séu meðvirk með henni.

„Ég ætla ekki að taka á mig þeirra skömm,“ segir Valgerður þegar hún er innt eftir leyfi á birtingu. „Ef þessari kynslóð er svona annt um þöggun, held ég að það færi þeim best að þegja bara áfram.“

Val­gerður var grun­laus um yfir­lýs­ing­una á ætt­ar­móti fjöl­skyld­unar um helg­ina. Mynd/aðsend

Í fésbókar­færslu frá Valgerði segir hún: „ Það er engin virðing fólgin í því að taka afstöðu með lygurum og barna­perrum.

Ég lét

Þorsteinn Eggertsson

vita að ég hefði farið með dagbækur móður minnar til Stundarinnar u.þ.b. tveimur vikum áður en greinin (um dagbækur mömmu og JBH) birtist. Ég sagði honum líka hversvegna ég gerði það.Í dag hitti ég pabba og konuna hans í fyrsta sinn síðan greinin var birt, í Stundinni. Þá höfðu þau ekki gert neina tilraun til að hafa samband við mig. Þau sögðu ekki orð um þessa grein í morgun­blaðinu.Team JBH má vinsamlegast henda mér af vina­listanum sínum. Það sparar mér vinnu.“

Í yfir­lýsingunni frá systur Valgerðar, pabba hennar og sambýlis­konu hans segir meðal annars: „ Við undir­rituð hörmum það, að friðhelgi einkalífs Þóru Hreins­dóttur hefur verið rofin og vanvirt með þessum hætti. Við beinum því til fjölmiðla og svokallaðra álits­gjafa að virða friðhelgi einkalífs hinnar látnu konu. Einnig að láta ógert að leiða hana fram sem vitni í sakamáli, sem henni er óviðkomandi.“

Hér að neðan má sjá færslu Valgerðar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram