Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Haffi stendur með sjálfum sér: „Ég er blússandi samkynhneigður og trúaður, og vil fá Trump aftur”

Haffi stendur með sjálfum sér: „Ég er blússandi samkynhneigður og trúaður, og vil fá Trump aftur”

Haf­steinn Þór Guð­munds­son, eða Haffi Haff, eins og hann er ávallt nefndur, var í afar skemmti­legu og fróð­legu við­tali hjá Sölva Tryggva­syni – og lét bara allt flakka, eins og hans er von og vísa:

„Ég vil lifa eftir því mottói að vera alltaf ég sjálfur. Það þýðir líka að þora að segja skoð­anir sínar án þess að skamm­ast sín fyrir þær. Ég er blússandi sam­kyn­hneigður maður sem vill fá Trump aftur, sem fer í kirkju og eltir Jesú; klæði mig í sund­bol þegar ég fer í sund; það er ég að vera algjör­lega ég sjálfur; stend með sjálfum mér, óháð hvað öðru fólki finnst. Ég hef alltaf verið öðru­vísi; ætla að halda því áfram – ef það þýðir að ég sé sam­kvæmur sjálfum mér.”

Haffi ólst upp í Banda­ríkj­unum; hefur ávallt verið með annan fót­inn þar – og Haffi er ekki spenntur fyrir núver­andi stjórn­völdum:

„Ég get í það minnsta sagt að ég var blekktur. Þetta er ekki það sem ég ætl­aði að kjósa. Þessi rík­is­stjórn er slæm og ég er eig­in­lega far­inn að grát­biðja um app­el­sínugula slæma kall­inn aftur. Ég vil ein­hvern sem getur komið saman heilum setn­ingum. Joe Biden er bara partur af gömlu góðu elít­unni sem reynir að höfða til fólks með því að lofa hinu og þessu; ganga í augun á fólki með alls konar slag­orðum. En svo eru aðgerð­irnar allt aðrar en það sem var lofað fyrir kosn­ingar. Við erum komin þangað að fólk verður að fara að vakna og spyrja spurn­inga.”

Og Haffi trúir á Guð og vill Donald Trump aftur:

„Orðin Trump og Jesús eru mest pól­ariser­andi orðin í heim­inum í dag. En ég er til­bú­inn að tala um Trump og Jesú, af því að ég vil vera og er heið­ar­legur við sjálfan mig og aðra. Ég virði að annað fólk hafi aðrar skoð­anir en ég, en að sama skapi finnst mér ég hafa fullan rétt á mínum skoð­unum; við eigum að virða rétt allra til ólíkra skoð­ana; við lifum saman á þess­ari jörð; eigum margt sam­eig­in­legt. Það að við séum með ólíkar skoð­anir á ein­stökum málum á að vera eðli­legt og það þýðir ekki að okkur geti ekki þótt vænt um hvort annað.”

Eins og áður var nefnt er Haffi trú­aður maður – hann er messu­þjónn í Hall­gríms­kirkju. En fjöldi fólks gefur af tíma sínum í Hall­gríms­kirkju og eru messu­þjónar sjálf­boða­liðar sem taka þátt í öllum messum kirkj­unnar; lesa Bibl­íu­texta, útdeila í alt­ar­is­göngum og fleira.

„Ég man þegar ég byrj­aði að fara í kirkju var ég alltaf að bíða eftir því að ég ætti að finna fyrir skömm, en svo kom það ekki; bara fal­leg tón­list – góður boð­skapur og fólk að koma saman í ein­lægri orku. Ég tók ákvörðun um að læra meira og taka trúna alvar­lega. Fékk Nýja Testa­mentið gefið og byrj­aði að lesa. Það tók mig heil fjögur ár að klára að lesa það og ég sá hvergi í bók­inni að ég mætti ekki vera eins og ég vildi vera. Nú er trúin og kirkjan stór hluti af lífi mínu; ég er messu­þjónn í Hall­gríms­kirkju; sem að mínu mati er fal­leg­asta bygg­ing Norð­ur­landa. Það eru allir vel­komnir í kirkju og ég hef tekið þá ákvörðun fyrir mig að kirkjan verði hluti af mínu lífi.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ