Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrottalegasti ástríðuglæpur Íslandssögunnar: Morðinginn gengur laus

Hrottalegasti ástríðuglæpur Íslandssögunnar: Morðinginn gengur laus
Mynd úr mynda­banka

Sunnu­dag­inn 15.ágúst árið 2010 fannst 37 ára karl­maður lát­inn á heim­ili sínu í Hafn­ar­firði. Strax þótti aug­ljóst að mann­inum hafði verið ráð­inn bani. Enginn í nágrenn­inu varð var við neitt óeðli­legt þessa örlaga­ríku nótt.

Gunnar Rúnar Sig­ur­þórs­son var 22 ára þegar hann birti mynd­band þar sem hann ját­aði ást sína á vin­konu sinni á miðl­inum Youtube, hún var þó í föstu sam­bandi og sagði honum að til­finn­ing­arnar væru ekki end­ur­goldnar.

Vin­skap­ur­inn hélt þó áfram og fóru þau stundum saman út að skemmta sér, oft með Hannesi, unnusta vin­kon­unnar. Gunnar var vel­kom­inn á heim­ili pars­ins og fékk stundum gist­ingu hjá þeim, aldrei hafði neinn grunað hvað byggi innra með Gunnari.

Hannes var dug­legur og vina­margur, hann starf­aði sem for­stjóri sæl­gæt­is­verk­smiðj­unnar Góu ásamt því að reka KFC veit­inga­staði í Litháen. Mikil sorg ríkti þegar fréttir sögðu frá því að hann hafi hlotið hrotta­leg örlög; hann var stung­inn til bana á heim­ili sínu. Enginn gat hugsað sér að neinn vildi gera Hannesi eitt­hvað illt – þar til leiðin lá að Youtube mynd­bandi Gunnars Rúnars.

Tveimur dögum eftir morðið, þann 17 ágúst, var Gunnar hand­tek­inn; honum var haldið næt­ur­langt, en sleppt að loknum yfir­heyrslum. Það var síðan tíu dögum síðar sem Gunnar var hand­tek­inn aftur; og í þetta sinn var kraf­ist fjög­urra vikna gæslu­varð­halds yfir honum: En ný gögn í mál­inu sýndu að rök­studdur grunur var fyrir hendi um að hann ætti aðild að morð­inu á Hannesi.

Gunnar neit­aði sök og áfrýj­aði gæslu­varð­hald­inu til Hæsta­réttar. Hann var síðar fluttur á Litla-Hraun í ein­angrun. Greint var frá því í fjöl­miðlum að blóð­ugur skór Gunnars hafi passað við skófar sem fannst á vett­vangi.

Laug­ar­dag­inn 4.sept­em­ber 2010 ját­aði Gunnar að hafa orðið Hannesi að bana; morðið var framið á milli klukkan fimm og tíu, 15.ágúst, og þótti ljóst að um ástríðu­glæp væri að ræða.

Að mati geð­læknis var Gunnar tal­inn sak­hæfur. Í ský­slu lækn­is­ins kom þetta meðal ann­ars fram:

„Gunnar Rúnar er með vissa þrá­hyggju­þætti, stífur á sinni mein­ingu og á erfitt með að aðlag­ast vissum reglum. Hann er mark­viss og vel með­vit­aður um hvað hann vill og hvað hann ætlar sér. Athygli vekur hversu fljótt ást hans til D hvarf, en slíkt er yfir­leitt á skjön við raun­veru­lega ást­sýki (erotom­aniu), slíkt hverfur yfir­leitt aldrei nema með lyfja­með­ferð eða annarri mjög langvar­andi með­ferð.“

Gunnar var dæmdur í 16 ára fang­elsi – en gengur nú laus, aðeins 12 árum eftir morðið.

„Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­ness kom fram að Gunnar Rúnar sé tal­inn hættu­legur og hafi sjálfur lýst ofbeld­is­fullum hugs­unum gagn­vart fanga, meðan hann hefur sætt gæslu­varð­haldi.

Því þótti nauð­syn­legt vegna réttar­ör­yggis, að hann sæti strangri örygg­is­gæslu auk með­ferðar.

Hann var dæmdur í hér­aði til að greiða for­eldrum Hannesar hvoru um sig átján hund­ruð þús­und krónur í bætur og tæpar þrettán hund­ruð þús­und krónur í útfar­ar­kostnað,“ sagði í frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ