Í dagbók lögreglunnar kemur fram að umferðaróhapp varð klukkan rúmlega sjö í morgun. Þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni í hálku með þeim afleiðigum að hún endaði út í Reykjavíkurtjörn; engin slys urðu á fólki. Og hefur engin mengun fundist í tjörninni vegna þessa óhapps.
Þess má geta að töluverð hálka var á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið; var tilkynnt um eitt óhapp þar sem aðili féll á rafmagshlaupahjóli, og var viðkomandi fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið, þar sem hann er mögulega fótbrotinn.































Athugasemdir