Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðmundur Kristjánsson, Muggi, hættir sem hafnarstjóri: Vildi verða kokkur en varð skipstjóri

Guðmundur Kristjánsson, Muggi, hættir sem hafnarstjóri: Vildi verða kokkur en varð skipstjóri
Guð­mundur Krist­jáns­son

Guð­mundur Krist­jáns­son, hafn­ar­stjór­inn á Ísafirði, á að baki langan og áhuga­verðan sjó­manns­feril.

Hvernig byrj­aði þetta?

„Ég fædd­ist og ólst upp í Bol­ung­ar­vík og byrj­aði snemma að beita og þvæl­ast í kringum bát­ana,“ segir Guð­mundur í við­tali við Sjóarann.

„15 ára var ég orð­inn atvinnu­sjó­maður.“

Það er nú svo­lítið.

„Það bara þótti á þeim tíma ekk­ert sér­stakt. Allir ungir strákar fóru bara á sjó­inn og ég var einn af þeim. Ólík­legur samt.“

Varst þú ekki típan í það?

„Ég veit það ekki. Allavega lík­aði mér alltaf vel eftir að ég byrj­aði á sjó. Ég hef aldrei þurft að þjást af sjó­veiki og þetta var mér auð­velt.“

Hann ætl­aði aldrei að verða skip­stjóri eins og síðar varð heldur ætl­aði hann að verða kokkur. „Svo atvik­að­ist það að ég fór í Stýri­manna­skól­ann eins og margir ungir menn.“

Helvítis bræl­urnar voru leið­in­legar.

Hann seg­ist hafa byrjað á hand­færum með góðum manni, Ella Ketils. „Margir ungir drengir byrj­uðu sinn sjó­manns­feril hjá honum. Hann er góður maður og það var gott að byrja hjá honum. Hann fór vel með bát og mann­skap og að vera ung­lingur á sjó með honum var góður skóli og ég á ljúfar minn­ingar frá því. Það var svo­lítið fram­andi fyrir ungan mann að draga fisk úr sjó.

Svo fór ég á línu með Jóni, frænda mínum. Jóni Egils. Hann var þá skip­stjóri á Hugrúnu og ég byrj­aði sem háseti hjá honum og eftir fyrstu línu­ver­tíð­ina gaf ég sjálfum mér alltaf lof­orð um að fara aldrei aftur á línu og velja ein­hvern skemmti­legri veiði­skap heldur en það.“

Var ekki skemmti­legt að vera á línu?

„Æi, þú veist hvernig þessar vetr­ar­ver­tíðir voru; hel­vítis bræl­urnar voru leið­in­legar. Svo komu góðu dag­arnir og þá gleymdi maður vonda veðr­inu. Og svo á haustin sagði Jón frændi: „Jæja, frændi, eigum við ekki að fara að útbúa?“ Jú, auð­vitað fórum við að útbúa og ég var mættur á næstu ver­tíð.“

Hvert var fyrsta plássið sem stýri­maður?

„Það var hjá Hálfdáni Ein­ars­syni, hinum mikla afla­skip­stjóra. Þá var hann útgerð­ar­stjóri hjá Einari Guð­finns­syni. Þetta var um sum­ar­tíma og ég var 17-18 ára. Þá vant­aði stýri­mann og það var farið til Símons Helga­sonar á Ísafirði einn eft­ir­mið­dag og þar kenndi Símon mér að stinga út í kort og á kompás og þar með var ég kom­inn með þessi svoköll­uðu 30 tonn og út á það fékk ég und­an­þágu á stærri skip og þá byrj­aði minn stýri­manna­fer­ill.“

Hér má horfa á við­talið við Guðmund í heild sinni.

Mugison

Svo fór Guð­mundur suður með æsku­vini sínum, Olgeiri Hávarð­ar­syni.

„Ég ætl­aði eig­in­lega að skrá mig í kokka­skól­ann sem var á fyrstu hæð­inni í Sjó­manna­skól­anum en við byrj­uðum á að fara upp á 3. hæð og þá sagði Jónas skóla­stjóri: „En þú, ungi maður; hefur þú ekk­ert hug á því að skrá þig?“ Og ég er svo með­virkur í öllu sem ég geri og er áhrifa­gjarn.“ Og Guð­mundur skráði sig í skól­ann og útskrif­að­ist árið 1977.

Honum höfðu leiðst línu­veið­arnar.

„En samt ekki meira en svo að ég réði mig beint á línu­bát sem stýri­maður. Þegar ég kom úr skól­anum fór ég með Jóni, frænda mínum sem var þá að taka við nýjum báti, Flosa, sem var 30 tonn og smíð­aður á Akureyri. Þetta var splunku­nýr tré­bátur og ég byrj­aði á honum haustið 1977 og reri með honum í nokkrar ver­tíðir.“

Guð­mundur bjó í Bol­ung­ar­vík og var þegar þarna var komið við sögu kom­inn með fjöl­skyldu en sonur hans, Örn, fædd­ist árið 1976. Flestir þekkja hann sem tón­lists­armann­inn Mugison.

„Hann heitir Örn Elías í höf­uðið á móð­urafa sínum sem var merki­legur kall. Góður maður.

Síðan fór ég í afleys­inga­t­úra á Guð­bjarti; skut­tog­ara á Ísafirði. Svo þegar Einar Guð­fins­son fór í loðnu­út­gerð á Hafrúnu þá fór ég þar sem 2. stýri­maður á Hafrúnu sem var gamla Eld­borgin. Þar var skip­stjóri Lárus Grímsson; ákaf­lega fisk­inn, fylg­inn sér og lunk­inn. Hann var harður hús­bóndi en við áttum far­sæla sam­veru á sjó. Ætli ég hafi ekki verið hjá honum í eitt ár.“

Ég hætti þegar mér bauðst til að fara til Afríku.

Svo bauðst Guð­mundir pláss sem afleys­inga­stýri­maður á Guð­bjarti.

„Það var gott pláss og ég var þar í fjögur ár og átti far­sælan feril þar. Ég hætti þegar mér bauðst til að fara til Afríku,“ segir Guð­mundur sem fór þangað á vegum Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar Íslands.

Hann notar þann stökk­pall til að æfa sig á harm­on­ikk­una.

Aðeins að Mugison.

„Hann hefur ein­hverja sér­gáfu sem aðrir hafa ekki. Þetta liggur létt fyrir honum. Hann er til dæmis ekk­ert mennt­aður sér­stak­lega sem tón­list­ar­maður en hann hefur hæfi­leika til þess að spila og semja. Hann spilar á mörg hljóð­færi. Ég fór ungur í tón­list­ar­skóla í Bol­ung­ar­vík til að læra á básúnu og hætti þegar ég var 13 ára en hyggst núna 67 ára halda áfram þar sem frá var horfið þegar ég var 13 ára. Ég ætla að fara í tón­list­ar­skól­ann á Ísafirði og halda áfram að læra að blása,“ segir Guð­mundur sem seg­ist spila með nokkrum körlum einu sinni í viku og vera í lúðra­sveit og karla­kór.“

Þið fegð­arnir hafið verið svo­lítið verið að leika ykkur saman.

„Já, hann er til dæmis í þess­ari hljóm­sveit með okkur. Hann notar þann stökk­pall til að æfa sig á harm­on­ikk­una.“

Til Grænhöfðaeyja

Hvernig datt þér í hug að fara til Afríku?

„Við vorum að byggja í vík­inni á þessum tíma og verð­bólgan var 100%.“

Bara hörm­ung.

„Bara örm­ung. Það var eilíft djöf­uls­ins basl en það var ekki endi­lega það sem ýtti á það að ég sótti um. Það var aug­lýst starf; stýri­maður á skipi sem átti að fara til Græn­höfða­eyja, Fengi sem var í smíðum á Akureyri. Og í ein­hverju bríaríi sótti ég bara um og ég þekkti hvorki per­sónur né leik­endur í því batt­eríi sem þar réðu.

Þá stóð ég á kross­götum í mínu lífi þannig að ég hugs­aði með mér að það væri djöf­ull gott að kom­ast frá þessu hel­vítis basli og fara eitt­hvert langt út í geim þar sem eng­inn næði í mann. Ég gat losað mig út úr öllum mínum skuldum, losnað við húsið og við keyptuml litla íbúð í Reykja­vík, í Breið­holt­inu, og fórum til Afríku. Krakk­arnir voru litlir; Örn var þá sjö ára og systir hans, Erla Sonja, hefur verið fjög­urra til fimm ára.“

Ég hef aldrei verið greindur en ég er ábyggi­lega með svona gríð­ar­legan athygl­is­brest.

Hann segir að þetta hafi verið fram­andi ver­öld. „Þetta var spenn­andi og við vorum að gera eitt­hvað allt annað heldur en við vorum vanir. Ég hef aldrei verið greindur en ég er ábyggi­lega með svona gríð­ar­legan athygl­is­brest og er fljótur að setja mig inn í aðstæður hvar sem ég er og hvað sem ég er að gera. Ég hef alltaf átt auð­velt með að kynn­ast fólki, ræða við fólk og ég á mjög auð­velt með að læra tungu­mál og setja mig inn í hug­ar­heim og aðstæður. Það var það sem ein­hvern veg­inn dreif mig áfram.“

Áhafn­irnar voru tvær og var Guð­mundur ráð­inn í sex mán­uði til að byrja með.

„Þetta var fínn byrj­un­ar­tími og svo eftir þessa sex mán­uði þarna úti var komið að lokum hjá okkur í þessu tíma­bundna per­íódi sem var lagt upp með og þá var verk­efnið stokkað upp,“ segir Guð­mundur og fór hann til Lissabon til að læra portú­gölsku og fleira. Þeir voru síðan end­ur­ráðnir í verk­efnið; frá haustinu 1984 til vors 1985.

„Þá fór ég aftur til baka og var ráð­inn skip­stjóri.“

Var gert mikið gagn fyrir íbúa Græn­höfða­eyja?

Guð­mundur segir að Fengur hafi verið meira heldur en bara fiski­skip. „Við vorum að búa til sjó­kort og við vorum í sjó­mæl­ingum,“ segir hann og einnig var um að ræða haf­rann­sóknir. „Við vorum á tún­fisk­veiðum og við vorum að veiða humar í gildrur og það var eitt­hvað sem heima­menn voru að gera líka; við vorum að reyna þetta á annan hátt og vorum kannski afkasta­meiri með öfl­ugri spil og annað. Við leyfðum okkur að vera með humar­gildrur í lengri trossum. Það var ákaf­lega gaman.“

Það var vissu­lega breyt­ing á högum og lífs­gæðum.

Guð­mundur er spurður hvernig hafi verið að flytja með fjöl­skyld­una til Græn­höfða­eyja.

„Börnin voru komin á skóla­aldur þannig að við fórum með náms­efni með okkur og kon­urnar voru að kenna börn­unum. Þegar ég lít til baka þá held ég að þau hafi ekk­ert skað­ast á þessu. Þetta er allt ágætis vel gert fólk sem upp úr þessu stóð. En jú, það var vissu­lega breyt­ing á högum og lífs­gæðum.“

Voru börnin eins frjáls og í Bolugn­ar­vík?

„Þetta var alls ekki síðra. Þau voru út um allt. Þetta var mjög frið­samt sam­fé­lag og Örn fór út eftir morg­un­mat­inn í fót­bolta með strák­unum og þeir þvæld­ust um allt. Í sjálfu sér þurftum við aldrei að hafa áhyggjur af því.“

Þarna bjuggu þau þar til verk­efnið var stokkað upp í kringum 1987 og þá var siglt heim.

KEA

Guð­mundur réð sig til Kaup­fé­lags Eyfirð­inga eftir Afr­íku­dvöl­ina. „Ég var síð­asti skip­stjóri hjá útgerð­ar­fé­lagi KEA; KEA hætti síðan rekstri og seldi útgerð­ar­deild­ina til Samherja.“

Hann segir frá upp­haf­inu.

„Þegar ég kom heim frá Afríku fór ég í eina loðnu­ver­tíð. Þá var Lárus Grímsson skip­stjóri á Hilmi II og ég fór með honum sem fyrsti stýri­maður. Svo um vorið hafði Jóhann Þór Hall­dórs­son sam­band; þá var hann úti­bús­stjóri KEA, Kaup­fé­lags Eyfirð­inga, í Hrísey. Hann hafði frétt af mér og spurði hvort ég væri til í að skoða það að verða skip­stjóri hjá KEA.“

Sólfell var fyrsti bát­ur­inn sem Guð­mundur var með hjá KEA og segir hann að það hafi verið ann­álað skip. Þar varð hann skip­stjóri.

„Við vorum á Síðunni og vorum á rækju og fiski­trolli sitt á hvað.“

Þá var tíska að landa í gáma og senda út.

Guð­mundur var með þrjú skip hjá KEA. „Ég byrj­aði á Sólfelli. Síðan stóð KEA frammi fyrir því að fara að gera eitt­hvað meira; þetta gekk mjög vel og KEA vildi halda mér og halda mér ánægðum og það var alltaf verið að spá í að kaupa ný skip,“ segir hann og var gamli Sigl­firð­ingur keyptur. „Þeir keyptu hann og skírðu Súlna­fell. Ég var með hann í nokkur ár. Þetta var skemmti­legur bátur; Sigl­firð­ingur hafði verið fyrsti skut­tog­ari Íslend­inga. Það gekk alltaf vel að fiska og vorum við ýmist á rækju eða fiski­trolli. Þetta var áfalla­laust og við lentum aldrei í neinu og það gekk vel að halda mann­skap. Við lönd­uðum yfir­leitt í Hrísey og ein­stöku sinnum lönd­uðum við í gáma hér og þar en þá var tíska að landa í gáma og senda út.“

KEA bað Guðmund um að taka við Snæ­fell­inu síð­ustu mán­uð­ina sem þeir áttu það og seg­ist hann síðan hafa farið aftur á Súlna­fell.

„Svo kláraði ég minn feril á Súlna­fell­inu og KEA ákvað að hætta rekstri í útgerð.“

Guð­mundur var síðan skip­stjóri á frysti­tog­ar­anum Stak­felli í um tvö ár. „Það var svo­lítið sér­stakt. Þá var mikil áhersla hjá íslenskum útgerð­ar­mönnum að halda skipum sínum á þessum alþjóða haf­svæðum; við vorum norður í Smugu, við vorum vestur á Flæm­ingja­grunni og lönd­uðum á Nýfundna­landi. Þetta var öðru­vísi sjó­mennska.

Guð­mundur og núver­andi eig­in­kona hans, Halldóra Magn­ús­dóttir.

Falklandseyjar

Svo hófst nýtt ævin­týri.

„Stefán Þór­ar­ins­son hafði sam­band við mig og þá var hann með í und­ir­bún­ingi að stofna útgerð­ar­fyr­ir­tæki með Granda og Krist­jáni Guð­munds­syni á Rifi; KG, Grandi og Nýsir. Þá voru þeir að fara í útrás með tvö skip. Það var Engey og línu­veið­ar­inn Tjaldur og þeir voru að fara að huga að útgerð á Falklandseyjum. Stefán spurði hvort ég myndi hafa hug á því að vera útgerð­ar­stjóri á Falklandseyjum og ég ræddi þetta við þáver­andi kon­una mína.

Þessi úthafs­sjó­mennska var þreyt­andi. Hún reyndi mikið á mann sem ein­stak­ling en ég held ég hafi sloppið vel frá því. En þetta er langur tími í fjar­visum; við vorum að landa fjarri heima­hög­unum. Það var þannig lagað séð ekk­ert í píp­unum á Stak­fell­inu þannig að ég var alveg til í það að skoða eitt­hvað annað. Og hvers vegna ekki að verða útgerð­ar­stjóri á Falklandseyjum? Það voru traustir aðilar sem stóðu að þessum rekstri og launin sem þeir buðu voru ágæt og það var í sjálfu sér ekk­ert flókið eða erfitt að ákveða að söðla um.“

Og Falklandseyjar urðu það.

„Und­ir­bún­ingur stóð yfir í nokkra mán­uði hér heima. Engey, tog­ari Granda, og svo Tjald­ur­inn fóru að veiða Pata­gon­ian toothfish sem er kall­aður tann­fiskur – mjög verð­mætur fiskur. “

Og Engey fór á smokk­fisk­veiðar.

„Hlutverk mitt var að vera í landi; á skrif­stofu. Á Falklandseyjum er það þannig að menn stofna fyr­ir­tæki og fá úthlutuð veiði­leyfi sem þeir síðan leigja áfram til útgerða. Það eru margir sem hafa atvinnu af þessu á Falklandseyjum að vera bara veiði­leyf­is­hafar og leigja áfram út og fá eitt­hvað af því í eigin vasa. Og þannig var þetta fyr­ir­tæki í raun­inni sett upp – í sam­vinnu við nokkra aðila eða fyr­ir­tæki á Falklandseyjum sem útveg­uðu veiði­leyfin. Íslend­ing­arnir sköff­uðu skipin og að hluta til áhafnir en yfir­menn­irnir voru íslenskir. Við náðum í sjó­menn til Chile og starf mitt fólst í að ráða og reka og sjá til þess að sjó­menn­irnir fengju vistir og veið­ar­færi fyrir næstu veiði­ferð og að taka á móti afla og koma honum í frysti­geymslu og síðar frankt­ara eða þá að landa beint í frakt­ara. Þarna var ég í eitt og hálft ár og þá ákváðu þessir aðilar að slíta sam­starf­inu; kalla skipin heim. Ég held að árang­ur­inn hafi ekki verið nægur. Þeir fisk­uðu greini­lega ekki nógu mikið en verð­mætin eins og í þessum tann­fiski voru alveg lygi­leg.“

Þá voru með­eig­end­irnir búnir að skipta um lás og búnir að taka tölv­una.

Það var ákveðið að Guð­mundur færi sem skip­stjóri í síð­ustu veiði­ferð­ina á Engey.

„Á meðan ég var í þess­ari veiði­ferð þá gerð­ist eitt­hvað sem ég veit ekki hvað var. Ég ætl­aði á skrif­stof­una mína þegar ég kom í land en þá voru með­eig­end­irnir búnir að skipta um lás og búnir að taka tölv­una. Útgerðin hafði skaffað mér nýjan Land Rover þegar ég kom fyrst og þeir voru búnir að fjar­lægja hann.“

Hann segir að heima­menn­irnir hafi gefið skít í sig þannig lagað séð og hann gat ekki borgað áhöfn­inni laun en Íslend­ing­arnir fengu laun í gegnum Ísland.

„Eitt mjög krítískt móment var þegar ég var heima í stofu að pakka búslóð­inni okkar til að að koma um borð í Engey var að allir sjó­menn­irnir frá Chile voru komnir á glugg­ann hjá mér.“

Viðtalið í heild sinni er hér.

Fram­haldi í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina