Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sveppirnir hjálpa Gústa kokki í daglegu lífi: „Ég sat bara með þennan sársauka í fjóra klukkutíma“

Sveppirnir hjálpa Gústa kokki í daglegu lífi: „Ég sat bara með þennan sársauka í fjóra klukkutíma“
Gústi Mynd: Svavar Burgundy

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­hús­inu er eng­inn annar en kokk­ur­inn, lífskúnstner­inn, alkinn og fyrrum áhrifa­vald­st­vítar­inn Gústi „Chef“ Eyrún­ar­son. Hér er brot úr við­tal­inu.

Enginn vímaður af míkróskömmtum

Það verður að vera skýrt þegar fólk er að taka míkró­skammta af sveppum að það sé þannig að fólk finni engin áhrif. Gústi komst að því að 0.2 grömm er hans skammtur því í um leið og hann fór upp fyrir hann þá fór hann að finna fyrir kitli og að tauga­kerfið væri tekið við. Í fyrsta skiptið sem hann tók stóran skammt gerði hann það einn og þá eitt gramm. Í því ferða­lagi seg­ist hann hafa farið inn í sárs­auk­ann sem knúði hann í þetta ferða­lag. Þar fékk hann að upp­lifa þennan nístandi ótta við höfnun og sárs­auk­ann sem hlýst af því að vera dæmdur. Í kjöl­farið seg­ist hann vera far­inn að upp­lifa sárs­auka á allt annan hátt en hann hefur áður gert, með meira hlut­leysi, sjálf­bærni og næmni.

„Það kom eitt­hvað sem olli mér mjög miklum sárs­auka og ég fór að hugsa „af hverju er þetta að meiða mig svona mikið? Einhver segir eitt­hvað og ég er bara miður mín“,“ útskýrði Gústi og hélt áfram: „Þannig að ég fór heim og tók eitt gramm af sveppum og svo sat ég bara með þennan sárs­auka í fjóra klukku­tíma.“ Gunnar spurði hann hvað hefði komið út úr því. „Sko, ég hef verið mik­ill aðdá­andi Trent Reznor síðan ég var 17 ára, sér­stak­lega eitt lag með honum. Og ég fór bara í þann ung­ling sem er svona ofboðs­lega sann­færður um að sárs­auk­inn sé bla dí bla og höfn­unin sé enda­laus. Þá var ég að sann­færa mig um að ekk­ert skipti máli en núna, hérna meg­inn er ég alveg jafn sann­færður um að ekk­ert skipti máli af því að allt skiptir máli, eða svona, já,“ sagði Gústi og brosti en hann er þarna að tala um hið ódauð­lega lag Hurt með Nine Inch Nail en Johnny Cash gerði lagið að sínu seinna meir. „Það skiptir engu máli hvað fólki finnst um þig og skiptir engu máli hvað þú ert að gera og hver þú ert. Og það skiptir engu máli þegar ein­hver sé reiður við þig ef þú gerðir ekk­ert af þér, skil­urðu.“

Sambandið við pabba betra

Hann seg­ist svo síðan þetta fengið að prófa nokkur efni og svona serómón­íur tengdar þeim og upp­lifir mikið þakk­læti tengt því. Í einni athöfn­inni drakk hann katkus en fann í raun aldrei neitt nema að heila fimm daga á eftir fann hann á maga­svæð­inu, svona frá hjart­anu og niður í maga, til­finn­ing­ar­svið sitt vakna. Hann fór að upp­lifa þenna ólýs­an­lega kær­leik í garð pabba síns sem hann hafði haft í erf­iðum sam­skiptum við lengi vel. Upp frá þessu fór viss heilun af stað í sam­skiptum hans við pabba hans sem varð til þess að þau fóru batn­andi.

Gústi seg­ist hafa upp­lifað alveg stór­kost­legar upp­lifarnir í þessum ferða­lögum sínum. Hann segir að í augna­blik­inu sem hann fær þær sé hann alveg berg­num­inn en sam­tímis séu þær sjálf­sagðar og eðli­legar og ekk­ert merki­legar án þess að hann sé til í að gera lítið úr þeim. Gunnar spyr hann hvort honum finn­ist að hafi verið á þessum slóðum áður og Gústi svarar því ját­andi hik­laust.

Alveg sama um álit annarra

Mamma Gústa hefur fengið að sjá og upp­lifa breyt­ing­arnar á Gústa og hann segir að hún ein­fald­lega geti ekki annað en grátið yfir breyt­ing­unum sem hann hefur orðið fyrir síðan hann fór að nota svepp­inn. Gústi seg­ist upp­lifa mikið þakk­læti og að hann hafi ekk­ert að fela, for­eldrar hans vita hvað sé í gangi sem og barns­mæður hans. Gunnar spyr hann hvort hann ótt­ist ekki að verða dæmdur fyrir þessi ferða­lög hans á hug­víkkak­andi efnum og hlæj­andi svarar Gústi því þannig að hann haldi að hann hafi verið dæmdur fyrir miklu verra hluti en þetta fram að þessu. „Ég sat fyrir á klám­blaði um ald­ar­mótin, skil­urðu. Mér er alveg sama. Það kemur stundum svona „ætti ég að vera að pæla í því?“ en svo bara nei, mér er alveg sama.“

Hvað varðar síend­ur­tekin ferða­lög á mis­mun­andi efnum ólíkt kannski hvernig þetta fer fram í afmörk­uðum sellum víðs­vegar um heim­inn seg­ist Gústi vera afar þakk­látur fyrir að hafa fengið að taka þátt í hinum og þessum athöfnum með ýmsum efnum en haldi að svepp­ur­inn sé komin til að vera lífi sínu.

Þennan ljúfa og upp­lýsandi þátt má sjá í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ