Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þorsteinn hjá RKÍ: „Að öðlast félagslegt net hefur mikið að segja um líðan fólks í umsóknarferli“

Þorsteinn hjá RKÍ: „Að öðlast félagslegt net hefur mikið að segja um líðan fólks í umsóknarferli“
Þor­steinn Valdi­mars­son

Borg­ar­leik­húsið hefur frestað sýn­ingum á leik­rit­inu Snákur vegna þess að leik­ara úr sýn­ing­unni, sem sótt hafði um hæli hér á landi, var vísað úr landi eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum.

„Leik­sýn­ingin Snákur var frá­bært dæmi um það gras­rót­ar­starf sem getur sprottið upp í því félags­starfi sem Rauði kross­inn skipu­leggur með umsækj­endum um vernd. Í þessu til­felli fengum við síð­ast­liðið vor dríf­andi og skap­andi sjálf­boða­liða, Elisa­beth Nienhuis, til okkar sem lang­aði til þess að vera með viku­lega leik­list­arsmiðju fyrir flótta­fólk. Eftir að hafa gengið úr skugga um að hún ylli því hlut­verki sem fylgir sjálf­boða­starfi gáfum við henni dag­skrár­valds hóps­ins, hjálp­uðum henni að aug­lýsa við­burð­ina og útveg­uðum hús­næði. Þarna fékk hluti skjól­stæð­inga okkar, þeir sem hafa áhuga á þess­ari til­teknu smiðju, tæki­færi til að iðka áhuga­mál sitt, þroska hæfi­leika sína, mynda félags­auð og hafa eitt­hvað fyrir stafni meðan á umsókn­ar­ferli þeirra um vernd stendur,“ segir Þor­steinn Valdi­mars­son, verk­efna­stjóri mál­efna umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hjá Rauða kross­inum.

„Við vorum mjög ánægð með þetta verk­efni bara sem viku­lega smiðju en þegar á leið kom í ljós að hóp­ur­inn sem mynd­að­ist var til­bú­inn í stærri áskorun. Lisa, umsjón­ar­maður hóps­ins, hafði sam­band við Borg­ar­leik­húsið, þau tóku vel í hug­mynd­ina og áður en við vissum af var sýn­ing sett á dag­skrá sem sýnd var við góðan orð­s­týr í júní síð­ast­liðnum. Verk­efnið fékk einnig styrk úr Hverf­is­sjóði Reykja­vík­ur­borgar til að standa styr af kostn­aði við hana. Við í Rauða kross­inum vinnum með umsækj­endum um vernd á meðan umsókn­ar­ferli þeirra stendur og reynum að gera okkar hlut til að gera þann erf­iða tíma í lífi fólks bæri­legri. Umsókn­ar­ferl­inu getur lokið á tvenna vegu og við vitum að ein­hverjum þeirra sem tóku þátt í leik­hús­verk­efn­inu hefur verið vísað af landi brott.“

Venesúala, Sýrland og Úkraína

Þor­steinn segir að í hinu fjöl­breytta félags­starfi sem RK býður umsækj­endum um vernd og flótta­fólki taka mánuð hvern hund­ruðir þátt:

„Í leik­hús­verk­efn­inu er fasti kjarn­inn sem hefði stigið á svið í sýn­ing­unni um 15 manns en stærri hópur hefur tekið þátt viku fyrir viku í við­burð­unum. Það er fjöl­breyttur hópur sem tekur þátt í félags­legum verk­efnum okkar og end­ur­speglar hverju sinni þau lönd sem umsækj­endur um vernd og flótta­fólk koma frá. Und­an­farið eru þátt­tak­endur til dæmis frá Venes­ú­ela, Sýrlandi og Úkraínu.

Að öðl­ast félags­legt net getur haft mikið að segja um líðan fólks í umsókn­ar­ferli.

Í þeirri óvissu sem fylgir umsókn­ar­ferli um alþjóð­lega vernd er mik­il­vægt fyrir ein­stak­linga að hafa nóg fyrir stafni og vera virkir. Að öðl­ast félags­legt net getur haft mikið að segja um líðan fólks í umsókn­ar­ferli og hvernig þau upp­lifa dvöl sína á land­inu meðan þau bíða eftir úrlausn sinna mála. Öflugt félags­starf getur skapað þetta net með vett­vangi þar sem umsækj­endur geta styrkt bönd við hvern annan í öruggu umhverfi ásamt því að kynn­ast sjálf­boða­liðum verk­efn­is­ins sem ásamt því að vera þjálfaðir í sál­fé­lags­legum stuðn­ingi veita mik­il­væga teng­ingu inn í íslenskt sam­fé­lag. Við teljum starfið því einnig stuðla að því að ein­stak­lingar verði betur í stakk búnir að umsókn­ar­ferl­inu loknu.“

Áhugi á mannúðarmálum

Þor­steinn segir að hlut­verk sitt hjá Rauða kross­inum felist fyrst og fremst í að eiga sam­skipti við þá sjálf­boða­liða sem sinna félags­starf­inu:

„Við erum sam­tals rúm­lega þrjú stöðu­gildi sem sinnum þeim verk­efnum bæði í Reykja­vík og Reykja­nesbæ en á átt­unda tug sjálf­boða­liða sjá um að reka verk­efnin dags dag­lega. Við erum með fasta viku­lega hópa allan árs­ins hring, Opið hús, Kvenna­hóp, Ung­menna­hóp, Fót­bolta­hóp og fleira. Sjálf­boða­liðar okkar sinna einnig stóran hluta árs­ins tungu­mála­kennslu á íslensku og ensku og svo erum við alltaf opin fyrir því sem ein­stak­lingar hafa fram að færa. Þar geta fal­legir hlutir átt sér stað; við höfum rekið tón­list­arsmiðjur með atvinnu­tón­list­ar­mönnum sem sjálf­boða­liðum, boðið upp á inn­an­hússklifur og blaktíma svo ekki sé minnst á leik­hús­verk­efnið okkar.“

Lærði Þró­un­ar­fræði við Háskóla Íslands.

Þor­steinn seg­ist vera búinn að hafa áhuga á mann­úð­ar­málum frá ung­lings­aldri:

„Ég var 18 ára þegar ég fór í áhrifa­ríka heim­sókn til Suður-Indlands að sjá skóla­starf sem Hjálp­ar­starf kirkj­unnar styrkti á þeim tíma. Ég tók lengi þátt í ung­menna­starfi hjá þeim sam­tökum, lærði Þró­un­ar­fræði við Háskóla Íslands í kjöl­farið og fékk tæki­færi til að starfa með Rauða kross­inum nokkrum árum seinna.“

Hvað gefur það Þor­steini að vera í svona starfi og hvað tekur það frá honum?

„Það getur verið álag og stress í öllum störfum og það sem ég fæ út úr þessu eru góð sam­skipti við mikið af frá­bæru fólki. Sjálf­boða­liðar okkar eru til þess komnir að skapa eins gott og vina­legt umhverfi og þeir geta og þátt­tak­endur í verk­efn­inu eru langoft­ast komin til okkar til þess að eiga góða stund saman og við finnum það. Það gefur mér mikið að vita að verk­efnin sem við setjum á dag­skrá geta skipt máli og lífgað upp á daga fólks í erf­iðri stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ