Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Góð vika / Slæm vika

Góð vika / Slæm vika
Jón Bjarki Magn­ús­son.

Í góðum málum – Jón Bjarki Magn­ús­son

Jón Bjarki Magn­ús­son gerði frá­bæra heim­ild­ar­mynd, þar sem hann var í raun líkt og fluga á vegg á heim­ili ömmu sinnar og afa, á síð­asta hluta ævi­skeiðs þeirra; útkoman varð heim­ild­ar­myndin Hálfur álfur, þar sem segja má að drama­tík hvers­dags­leik­ans hjá hverf­andi kyn­slóð komi ber­lega í ljós:

„Í stuttu máli fór ég í meist­ara­nám í sjón­rænni mann­fræði í Berlín og þegar ég fór að hugsa um loka­verk­efni þá kall­aði þetta mikið á mig, að fylgja þeim gömlu eftir,“ sagði Jón Bjarki á sínum tíma um heim­ild­ar­mynd­ina.

Kóvid setti mörg strik í reikn­ing­inn hjá Jóni Bjarka og frum­sýn­ingu mynd­ar­innar var frestað aftur og aftur. En Jón Bjarki gafst aldrei upp og hélt ótrauður áfram með seiglu og dugn­aði í bland við mikla hæfi­leika og kom mynd­inni á legg.

Frábær mynd.

Nú er svo komið að heim­ild­ar­mynd Jóns Bjarka, hálfur álfur, hefur verið tekin til sýn­inga á Netflix, sem er ekki lít­ill árangur.

Eftir erf­iða fæð­ingu getur nú Jón Bjarki notið upp­sker­unnar af öllu erf­ið­inu og ástæða til að hrósa honum fyrir að gef­ast aldrei upp.

Í slæmum málum – Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Hrylli­legar aðfarir íslenskra stjórn­valda gegn flótta­fólki í neyð hafa vakið athygli langt út fyrir land­stein­ana. Leitað er að fólki út um allan bæ og það hirt upp og borið inn í lög­reglu­bíla og síðan er fólk­inu hent upp í vél sem fer með það á göt­una til Grikk­lands.

Hvort þú sért fatl­aður eða veikur á ein­hvern hátt skiptir engu máli – burt frá Íslandi skulið þið fara og það strax.

Það vita allir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með Bjarna Bene­dikts­son og Jón Gunn­ars­son í broddi fylk­ingar stendur fyrir þessum hreins­unum, en þeir myrkra-kump­ánar Bjarni og Jón eru ekki einir sem bera ábyrgð – alls ekki.

Fólkið í VG og Fram­sókn­ar­flokknum er líka ábyrgt fyrir þess­ari hrein­rækt­uðu illsku, því þótt þú kjósir að forð­ast sviðs­ljósið og segja lítið þá ertu sam­sekur ef þú sam­þykkir með þögn þinni og aðgerð­ar­leysi.

Katrín Jak­obs­dóttir.

Katrín Jak­obs­dóttir er for­sæt­is­ráð­herra og ber því mesta ábyrgð í þessu við­bjóðs­lega máli; hún hefur kosið að sitja áfram í kolsvörtum skugga Bjarna, sem ásamt skó­sveini sínum, Jóni Gunn­ars­syni, vilja gera Ísland hreint af stór­hættu­legu og fötl­uðu fólki – þeir vilja Ísland fyrir Íslend­inga, og eru stoltir af gjörðum sínum eins og skýrt kom fram á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokkisns nýverið; þar var klappað fyrir þjóð­ern­is­hyggju og útlend­inga­andúð; þar var klappað fyrir ofbeldi gegn fötl­uðu og fátæku fólki sem getur ekki varið sig; þar var klappað fyrir hatri og hinni íslensku Krist­alsnótt.

Ef Katrín er ánægð með aðgerð­irnar mun stjórnin halda, ef hún er mann­eskja til að standa í lapp­irnar þá slítur hún þessu stjórn­ar­sam­starfi; hver sem nið­ur­staðan verður hjá henni er það alveg klárt mál að Katrín Jak­obs­dóttir er ábyrg fyrir gjörðum Bjarna og Jóns. Hún er verk­stjór­inn.

Telst Katrín því í slæmum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ