Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð“

„Hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð“
Her­mundur Sig­munds­son.

Börnin okkar og á­byrgð RÚV! er yfir­skrift greinar sem þau Vil­hjálmur Hjálm­ars­son og Gyða Har­alds­dóttir rita fyrir hönd ADHD sam­tak­anna, en Vil­hjálmur er for­maður og Gyða vara­for­maður:

„Um þessar mundir sýnir RÚV þátta­röð­ina „Börnin okkar“ sem byggir á hug­mynd Gunn­þór­unnar Jóns­dóttur og Her­mundar Sig­munds­sonar. Fjórði þáttur [frum­sýndur 6. nóv­em­ber] bar heitið „Grein­ingar“ og reynd­ist svo stút­fullur af ein­hliða full­yrð­ingum og áróðri gegn grein­ingum og lyfja­með­ferð að mér varð orða vant.“

Þau segja að „hvergi í þætt­inum er rætt við fag­að­ila sem fram­kvæma grein­ingar eða taka ákvörðun um lyfja­með­ferð, heldur byggt á sam­tölum við ýmsa aðila sem flest virð­ast eiga það sam­eig­in­legt að telja grein­ingar rót alls ills. Greining séu „bara útlistun á þínum tak­mörkum,“ skila­boð til barns séu röng og verið sé að stimpla það. Orðræða af þessu tagi sýnir fátt annað en van­þekk­ingu við­mæl­enda á fram­kvæmd og til­gangi grein­inga.

Greining á vanda sem upp er kom­inn hjá barni felst í yfir­grips­mik­illi skoðun á þroska-, heilsu- og félags­legum bak­grunni barns­ins, þróun og umfangi vand­ans, svo og ítar­legri kort­laggn­ingu á styrk­leikum barns­ins og veik­leikum þess. Nið­ur­stöður grein­ingar gefa leið­bein­ingu um hvaða með­ferðir eða önnur úrræði séu lík­leg­ust til að skila árangri.

Jafn­framt á nið­ur­staða að minnka líkur á að gripið sé til gagns­lausra úrræða.“

Þau nefna einnig að „ef ein­hver telur þetta vera stimplun og röng skila­boð til barns, þá þarf við­kom­andi kannski fyrst og fremst að líta í eigin barm.

Að byggja ákvarð­anir á þekk­ingu á aldrei að vera nei­kvæð staða. Um þver­bak keyrir þó þegar fjallað er um lyf. Þar nota við­mæl­endur orð á borð við „ofvirkn­is­lyf,“ eins og ADHD lyfja­með­ferð snúi ein­göngu að lík­am­legri ofvirkni, sem fer fjarri. Í annan stað er full­yrt að ADHD lyf eigi að „draga úr t.d. hvat­vísi — dempar þig,“ sem klár­lega stað­festir að við­mæl­andi hefur engan skiln­ing á út á hvað ADHD gengur né virkni ADHD lyfja.

Ítrekað er minnst á lyf vegna kvíða og þung­lyndis, en hvergi tæpt á þeim mögu­leika að skortur á grein­ingu geti leitt til rangrar lyfja­með­ferðar, til dæmis þegar ein­kenni þung­lyndis og/eða kvíða séu í raun merki um ógreint ADHD, ein­hverfu eða annað sem í raun er und­ir­liggj­andi ástæða.“

Að mati Vil­hjálms og Gyðu und­ir­byggir „þátta­gerð­ar­fólk þessar rang­hug­myndir svo með ítrek­aðri notkun á nær­myndum af marg­litum lyfja­hylkjum sem flæða um eins og sæl­gæti; gam­alt og ódýrt trix í sjón­varps­þátta­gerð – iðu­lega notað til að vekja nei­kvæð hug­hrif hjá áhorf­endum – það er hrein­lega spurn­ing hvort RÚV sæmi slík vinnu­brögð.“

Bæta þessu við:

„Her­mundur kemur svo fram í ein­hvers lags vís­inda­horni, vitnar til kenn­inga Gilbert Gottlieb um stöðugt sam­spil þroski, vaxtar, reynslu og náms. Jafn­framt að þroski ein­stak­lings sé sam­spil erfða, tauga­kerfis, atferlis og umhverfis. Ég enga ástæðu til að draga þetta í efa, enda vel þekkt að t.d. ógreint eða van­með­höndlað ADHD – þar með talið við­brögð innan skóla­kerf­is­ins – hefur mikil áhrif á and­legan og félags­legan þroska barns.

Því miður kýs Her­mundur og hans sam­starfs­fólk að hunsa þessa hlið með öllu. Þess í stað spyr þátta­ferð­ar­fólk hvort lyf séu alltaf lausnin og ýjar þess í stað að því að „reglu­leg og góð hreyf­ing og hreint mat­ar­ræði [geti] t.d. breytt ýmsu til hins betra.“ Eða eins og einn við­mæl­andi segir, að „[…] mæta bara [barni] með virð­ingu og ást …!“

Hvað ADHD varðar þá er hreyf­ing vissu­lega eitt lyk­il­at­riða – og reyndar gildir það um alla, börn og full­orðna, rétt eins og kemur skýrt fram í fimmta þætti sem frum­sýndur var viku síðar.“

Þau spyrja:

„En hvað er átt við með „hreinu“ matar­æði og hvers vegna telst sjálf­sögð ‘virð­ing og ást’ sem ein­hver töfra­lausn. Það sem okkur fannst kannski und­ar­leg­ast er að í seinni hluta þáttar bentu við­mæl­endur á ýmsa þætti sem vissu­lega útskýra hvar hinn raun­veru­legu vandi liggur. Í mis­tökum við fram­kvæmd og skort á fjár­magni. En á síð­ustu metr­unum drukknar sú umfjöllun í fabúler­ingum um lyf og fal­legri dæmisögu um mann í frakka, sem túlka má á ólíkan máta.

Fyrir hönd ADHD sam­tak­anna viljum við árétta að nið­ur­stöður fjölda rann­sókna stað­festa gagn­semi og mik­il­vægi grein­inga, með­ferðar og lyfja vegna ADHD. Ómál­efna­leg umfjöllun og fram­setn­ing efnis sem er til þess fallið að ala á for­dómum í garð grein­inga, með­ferðar og notk­unar lyfja fyrir fólk með ADHD, líkt og gert var í þessum þætti á RÚV er afar skað­leg og í full­kominni and­stöðu við nið­ur­stöður rann­sókna.

Grein­ingar, með­ferð og lyf bjarga lífum! Þátta­röðin er fram­leidd fyrir RÚV, undir dag­skrár­stjórn Skarp­héð­ins Guð­munds­sonar og liggur því bein­ast við að spyrja dag­skrár­stjóra RÚV hvort efn­is­tök og fram­setn­ing í þessum þætti sam­ræm­ist gæða­kröfum þess­arar mik­il­vægu menn­ing­ar­stofn­unar, sem Rík­is­út­varpið sann­an­lega er?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ