Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bragi Valdimar hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: „Má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó“

Bragi Valdimar hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar: „Má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó“

Bragi Valdimar Skúlason, tón­list­ar­maður og texta­smiður, hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hall­gríms­sonar. Verð­launin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim ein­stak­lingi sem hefur með sér­stökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáld­skap, fræði­störfum eða kennslu og stuðlað að efl­ingu hennar, fram­gangi eða miðlun til nýrrar kyn­slóðar. Sérstaka við­ur­kenn­ingu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni verk­efnið Tungu­mála­töfrar á Ísafirði sem býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skap­andi kennslu­að­ferðir fyrir fjöl­tyngd börn.

„Í dag kynn­ast börn, ung­menni, nýir mál­hafar og aðrir um allt land deg­inum og tungu­mál­inu á nýjan og ólíkan hátt. Deginum sem fagnar tungu­máli okkar allra. Tungu­málið er lyk­ill­inn að sam­fé­lag­inu, hvort sem er í lestri bóka, í sam­fé­lags­um­ræðu, á net­miðlum eða í leik og starfi,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra.

„Íslenskan er í fyr­ir­rúmi í dag, en hún á alltaf að vera það. Við skulum fagna þessum degi saman og standa saman vörð um íslensk­una. Við skulum þróa hana saman og kæt­ast yfir því að hún á bjarta fram­tíð fyrir sér ef rétt er haldið á spöð­unum. Íslenskan er okkar allra. Til ham­ingju með dag­inn í dag.“

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Bragi Valdimar Skúlason hlýtur verð­launin í þetta skipti. Í rök­stuðn­ingi ráð­gjafa­nefnd­ar­innar segir:
Tungumál slitna ekki við notkun heldur styrkj­ast. Til þess að íslenska haldi velli þarf að pönk­ast í henni, leika sér með hana, snúa upp á hana og út úr henni. Verðlaun Jónasar Hall­gríms­sonar hlýtur að þessu sinni skáld, grínisti, aug­lýs­inga­maður og upp­fræð­ari. Textar hans eru sungnir við brúð­kaup, jarð­ar­farir og skírnir, kyrj­aðir í tjaldúti­legum og eru jafn ómissandi hluti af jóla­haldi Íslend­inga og ítölsk dæg­ur­lög. Hann er eft­ir­læti ung­linga og vinnu­staða­grín­ara, kenn­ara og kaffi­brúsa­k­arla.

Bragi Valdimar ásamt Lilju Alfreðs

Um hann má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó, það sé mikið í hann lagt! Verð­launin í ár hlýtur Bragi Valdimar Skúlason sem hefur unnið mark­visst að því að vekja áhuga fólks á íslenskri tungu og ræktað hana á óvenju­mörgum sviðum. Hann er ekki aðeins skáld, texta­höf­undur og þýð­andi heldur hefur hann gert vin­sæla sjón­varps­þætti þar sem við­fangs­efnið er tungu­málið er sjálft. Að auki hefur hann lagt til efni á vef Baggalúts og unnið að aug­lýs­inga­gerð.

Viðurkenning Jónasar Hallgrímssonar

Í rök­stuðn­ingi ráð­gjafa­nefndar segir um Tungu­mála­töfra:

„Tungu­mála­töfrar, Tungu­mála­töfrar, í takti tölum við saman,“ má heyra sungið af kór barna og full­orð­inna á mynd­bandi sem finna má á net­inu. Það var tekið upp á sum­ar­nám­skeiði fyrir börn á Ísafirði en þar saman komu krakkar á aldr­inum 5–11 ára til að læra íslensku í gegnum list­sköpun og leik. Nám­skeiðið hefur verið haldið frá árinu 2017 og er ætlað íslenskum börnum sem hafa fæðst erlendis eða flutt til ann­arra landa og börnum af erlendum upp­runa sem hafa sest að hér á landi. Börnin eiga það því sam­eig­in­legt að vera fjöl­tyngd og um leið og þau eru örvuð til að nota íslensku er þeim bent á þann styrk sem felst í því að kunna fleiri tungu­mál en eitt. Í lok nám­skeiðs­ins hefur verið gengin tungu­mála­skrúð­ganga á Ísafirði en einnig hafa aðstand­endur þess staðið fyrir mál­þingum. Komið hefur fram að þeir von­ist eftir því að Tungu­mála­töfrar á Ísafirði verði upp­spretta þekk­ingar sem geti nýst við þróun náms­efnis víðar á land­inu.

Við­ur­kenn­ing­ar­hafar ásamt Lilju Alfreðs.

Tungu­mála­töfrar hljóta sér­staka við­ur­kenn­ingu fyrir stuðn­ing við íslenska tungu vegna frum­kvöðla­starfs á sviði íslensku­kennslu. Um leið á við­ur­kenn­ingin að vera Tungu­mála­töfrum hvatn­ing til frek­ari rann­sókna og upp­bygg­ing­ar­starfs.

Hlýjar móttökur í Fellaskóla

Börnin í Fella­skóla í Reykja­vík, tóku á móti ráð­herra og verð­launa­höfum og voru við­stödd hátíð­lega athöfn í dag. Nemendur sýndu verð­launa­at­riði sitt af sviðs­lista­há­tíð­inni Skrekk, en þau urðu í öðru sæti á hátíð­inni. Í Fella­skóla hefur verið unnið að fyr­ir­mynd­ar­verk­efn­inu Okkar mál-sam­starf um menn­ingu, mál og læsi í Fella­hverfi. Verk­efnið hefur það að meg­in­mark­miði að auka sam­starf skóla í Fella­hverfi og stofn­ana í Breið­holti. Leið­ar­ljósið er að efla félags­legan jöfnuð, náms­ár­angur og vellíðan barna í hverf­inu.

Krakk­arnir í Fella­skóla í Breið­holt­inu stóðu sig með prýði.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ