Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dómi Landsréttar að vænta í máli skotmannsins á Héraði – Ágreiningur um frásögn lögreglunnar

Dómi Landsréttar að vænta í máli skotmannsins á Héraði – Ágreiningur um frásögn lögreglunnar
Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunn­ars­son. Mynd: Gunnar Gunnarsson.

Vænta má dóms Lands­dóms í skotárás­ar­mál­inu á Egils­stöðum, eftir tvær vikur en málið var flutt fyrir dómnum í vik­unni.

Fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar að hinn ákærði, Árnmar Guð­munds­son hafi skotið mál­inu til Lands­dóms síð­ast­liðið vor eftir að hafa verið dæmdur í átta ára fang­elsi af Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands. Var hann sak­felldur af helstu ákæru­at­riðum, meðal ann­ars tveimur til­raunum til mann­dráps. Neitaði hann því bæði fyrir Hér­aðs­dómi og Lands­dómi.

Skotárásin gerð­ist að kvöldi 26. ágúst í fyrra. Dæmdi Hér­að­dómur Árnmar fyrir að hafa ógnað þáver­andi sam­býl­is­konu sinni með skamm­byssu á heim­ili þeirra í Fellabæ. Eftir það keyrði hann yfir í Egils­staði að húsi barns­föður sam­býl­is­kon­unnar þar sem hann réð­ist inn í húsið með hlaðið skot­vopn. Árnmar sagði fyrir rétti hafa ætlað að hræða mann­inn sem reynd­ist ekki heima. Synir hans tveir voru það hins vegar en þeim tókst að sleppa út en Árnmar skaut tvisvar sinnum úr byssu sinni í hús­inu. Lög­reglan mætti á svæðið fljót­lega og varð um klukku­tíma umsátur við húsið þar til Árnmar kom í dyra­gætt húss­ins og skipt­ist á skotum við lög­regl­una allt þar til lög­reglan hæfði hann í kvið­inn. Var hann fluttur með flýti með flugi á bráða­mót­tök­una í Reykja­vík þar sem tókst að bjarga lífi hans.

Fram kemur í fréttum Frétta­blaðs­ins og Mbl.is af rétt­ar­höldum vik­unnar að engin ný gögn hafi verið lögð fram í Lands­rétti. Á mið­viku­dag­inn voru spil­aðar upp­töku af vitna­leiðslu fyrir hér­aði en málið var flutt munn­lega í gær af ákæru­valdi og verj­anda.

Helsti ágrein­ing­ur­inn snýr að frá­sögn lög­reglu­manns­ins sem skaut Árnmar, líkt og í hér­aði en tækni­skýrslur lög­regl­unnar sýndu að hann hefði staðið á öðrum stað en hann hefði talið sig hafa staðið. Í grein­ar­gerð hljóð­sér­fræð­ings bendir einnig til þess að sú stað­hæf­ing að Árnmar hafi skotið fyrst eigi ekki við rök að styðj­ast, heldur hafi þeir skotið á sömu milli­sek­únd­unni. Árnmar hefur haldið því fram að hann hafi alls ekki ætlað sér að hæfa lög­regl­una, heldur hafi hann ætlað að láta hana skjóta sig.

Ákæru­valdið sagði í gær að það teldi 8-10 ár vera hæfi­legan dóm fyrir slíkan verknað en verj­andi Árnmars benti þó á að hann hefði sýnt mikla iðrun og að hann hefði verið fluttur yfir á Kvía­bryggju eftir að hafa sýnt af sér fyr­ir­mynd­ar­hegðun í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Aust­ur­frétt spurði skrif­stofu Lands­réttar um það hvenær megi vænta nið­ur­stöðu í dómnum. Svarið var það að dómur skuli liggja fyrir eins fljótt og hægt er eftir aðal­með­ferð en þó ekki seinna en fjórum vikum eftir hana. Ef ekki þurfi jafn­vel að end­ur­taka hluta mál­flutn­ings­ins. Síðasta dóms­upp­kvaðn­ing Lands­réttar á árinu verður eftir tvær vikur og má því búast við því að dæmt verði í mál­inu í síð­asta lagi 16. des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil