Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lísu rak í rogastans í Fríhöfninni: „Þetta er orðið bara einn stór brandari!“

Lísu rak í rogastans í Fríhöfninni: „Þetta er orðið bara einn stór brandari!“

Lísa nokkur varð aldeilis hissa þegar hún upp­götv­aði verð­mun­inn á vöru sem hana lang­aði í, ann­ars vegar í Frí­höfn­inni og hins vegar í Hagkaup. Átti hún greini­lega von á því að varan væri ódýr­ari hjá fyrr­nefndri versl­un­inni en svo reynd­ist alls ekki vera.

Lísa bendir á verð­mun­inn í fjöl­mennu sam­fé­lagi á Facebook, Vertu á verði – eft­ir­lit með verða­lagi. Þar birtir hún mynd sem sýnir verð­mun­inn og segir ein­fald­lega:

„Fríhöfn v.s. Hagkaup.“
Þessa mynd birti Lísa eftir verð­könnun sína og þar kemur í ljós að snyrti­varan er ódýr­ari í Hagkaup en í Frí­höfn­inni.

Margir með­limir hóps­ins býsnast yfir verð­mun­inum sem Lísa bendir á og flestir þeirra hrauna yfir þjónstu Frí­hafn­ar­innar. Hildur er ein þeirra. „Rándýr búlla!,“ segir hún. Anna er líka hund­fúl. „Löngu hætt að versla hjá þeim!,“ segir Anna. 

Sigga líst illa á blik­una. „Það er eig­in­lega ekk­ert hægt að versla lengur þarna á betra verði. Þetta er orðið bara einn stór brand­ari,“ segir Siggi. En Egill veit hvað er til ráða. „Eina leiðin til að hafa áhrif á verð­lag í frí­höfnum er að versla ekki þar,“ segir hann.

Frí­höfnin rekur fjórar versl­anir með toll­frjálsan varn­ing í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar sam­kvæmt rekstr­ar­leyf­is­samn­ingi við móð­ur­fé­lagið Isavia. Vörur Frí­hafn­ar­innar eru und­an­þegnar virð­is­auka­skatti og aðflutn­ings­gjöldum (tax and duty free), fyrir utan áfengi og tóbak. Þar sem Ísland er utan Evr­ópu­sam­bands­ins er heim­ilt að selja vörur á frí­hafn­ar­verði til allra far­þega sem fara um flug­völl­inn.

Berglind bendir hins vegar á að verðin í Frí­höfn­inu end­ur­spegli ekki und­an­þág­una á sköttum og gjöldum.  „Mark­aðs­setn­ingin í Frí­höfn­inni eins og hún leggur sig er núll. Ég skil ekki hvernig þeir halda að þeir græði á því að hafa verð jafnan hátt. Til langs tíma þýðir þetta ein­fald­lega að fólk leitar annað. Maður er alla­vega löngu hættur að treysta því að maður geti gert góð kaup þarna,“ segir Berglind.

Og Sesselja veit greini­lega hvað hún er að tala um. „Allt nammi og snyrti­vörur ódýr­ara í Hagkaup og Bónus. Þegar ég var að vinna þarna sagði ég alltaf túrist­unum að kaupa frekar nammi í Bónus því það væri ódýr­ara. Ég versla aldrei sjálf þarna þegar ég fer erlendis eða kem heim….“ segir Sesselja.

Viðbrögð Fríhafnarinnar

Mannlíf innti svara hjá Frí­höfn­inni vegna þess­arar kvört­unar en Þor­gerður Þrá­ins­dóttir fram­kvæmd­ar­stjóri Frí­hafn­ar­innar segir að verð­lagn­ingin hafi verið mis­tök, búið sé að setja rétt verð á vör­una.

„Við skoðun hjá Frí­höfn­inni kom í ljós að um mis­tök í verð­lagn­ingu er að ræða. Í sölu var áður 50 ml glas af Ma Vie ilmi og þegar gjafa­kass­inn kemur í sölu, fyrir stuttu síðan, er fyrir mis­tök litið svo á að sama vara væri í gjafa­kass­anum og hann verð­lagður í sam­ræmi við það.

Í þessum gjafa­kassa sem hér um ræðir er hins vegar 30 ml glas. Verðið hefur verið leið­rétt og er 7.999 kr.

Frí­höfnin þakkar fyrir ábend­ing­una. Þrátt fyrir að svona mis­tök séu sjald­gæf þá geta þau gerst því miður og eru leið­rétt um leið og þau upp­götvast.

Við hvetjum við­skipta­vini sem hafa keypt gjafa­kass­ann á röngu verði að hafa sam­band við okkur. Verðinu hefur einnig verið breytt á vef Frí­hafn­ar­innar, en það kemur ekki þar inn fyrr en í fyrra­málið. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ