Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Geir Ólafs söng fyrir Vladimir Pútín: „Mér var hætt að lítast á blikuna“

Geir Ólafs söng fyrir Vladimir Pútín: „Mér var hætt að lítast á blikuna“
Geir Ólafsson.

Geir Ólafsson söngv­ari bauð sig nýlega fram í sveita­stjórn fyrir Mið­flokk­inn, eftir sím­tal sem hann hélt að væri símaat. Geir er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar og segir í þætt­inum meðal ann­ars frá þessarri und­ar­legu atburð­ar­rás:

„Ég fæ reglu­lega alls konar sím­töl frá alls konar fólki og ég svara oft­ast. Svo er það einn dag­inn að það er hringt í mig og ég beð­inn um að vera á lista fyrir Mið­flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum. Ég hugs­aði með mér að þetta væri enn eitt grínið og ákvað að taka bara þátt og sagð­ist vera klár í þetta og hlakka til. Svo pældi ég ekk­ert meira í þessu og hélt að þetta hefði verið símaat. En svo fæ ég sím­tal skömmu fyrir kosn­ingar þar sem ég er beð­inn um að skrifa undir ein­hver plögg og þá hugs­aði ég með mér að ég gæti ekki bakkað út úr þessu. Ég var settur í annað sætið á list­ann og það var bara mjög gaman að taka þátt í þessu. En almennt er ég ekki hrif­inn af hjarð­ar­hegðun og flokkapóli­tík og mér finnst að það ætti að gefa Íslend­ingum kost á að kjósa fólk með því að hafa per­sónu­kjör.“

Geir hefur glímt við kvíða síðan hann var barn og segir frá þeirri bar­áttu í þætt­inum:

„Ég er búinn að vera mik­ill kvíða­sjúk­lingur síðan ég man eftir mér og auð­vitað hefur það háð mér mikið í gegnum tíð­ina. Ég man eftir fyrstu kvíða­köst­unum mínum þegar ég var bara 6 ára og hefði lík­lega átt að fá alvöru aðstoð þá, sem ég fékk ekki. En það sem er kannski erf­ið­ast núna er félags­fælnin. Ég fæ oft van­líðan og ein­kenni þegar ég er í marg­menni og þarf að passa mig þegar ég kem fram og syng. Þá er ég ekki of nálægt fólk­inu og und­irbý mig vel og er yfir­leitt með ein­hverjum sem ég treysti. En almennt er ég ekki mikið í marg­menni og þegar ég fer í bíó verð ég að vera í sæti nálægt útgang­inum svo dæmi sé tekið. Það verður auð­vitað lýj­andi að glíma við svona lagað í langan tíma. En ég er þakk­látur fyrir það hvar ég er staddur í dag og hef lært að lifa með þessu.“

Í þætt­inum fer Geir einnig yfir eft­ir­minni­lega atburði frá ferl­inum. Meðal ann­ars þegar hann söng fyrir Vladimir Pútín og fleiri valda­menn í höll í Moskvu:

„Maður labbar ekk­ert bara í gegnum venju­lega hurð þegar maður hittir svona menn. Ég var leiddur af örygg­is­vörðum í gegnum einar dyr sem læst­ust síðan á eftir mér og svo aðrar dyr sem læst­ust líka og svo koll af kolli. Mér var hætt að lít­ast á blik­una þegar ég var kom­inn í gegnum helm­ing­inn af dyr­unum og kom­inn með inni­lok­un­ar­kennd á háu stigi. Þegar ég var svo mættur fyrir framan Putín og hina valda­menn­ina voru þeir allir frekar þungir á brún eins og Rússar eru oft og ég var orð­inn hálfsmeykur. En svo byrj­uðu þeir að brosa og létt­ast þegar ég byrj­aði að syngja ,,My Way” og það var mik­ill léttir. Eftir á að hyggja var þetta mjög skemmti­leg reynsla og eins og svo margt í mínu lífi hálf óraun­veru­legt. En ég er gríð­ar­lega þakk­látur fyrir það hvað ég hef fengið að koma fram víða og fyrir marga.“

Aðrir eft­ir­minni­legir tón­leikar hjá Geir áttu sér stað í Bógóta í Kólombíu, þar sem hann end­aði í sjúkra­bíl:

„Ég var bara nýkom­inn til Bógota þegar tón­leik­arnir áttu sér stað og hafði ekki und­ir­búið lík­amann nægi­lega vel. Þetta var stór kvik­mynda­há­tíð og mikið tæki­færi fyrir mig, en borgin er vel á þriðja þús­und metra yfir sjáv­ar­máli og fann það fljótt eftir að ég byrj­aði að syngja að eitt­hvað var að. Ég varð and­stuttur, fékk höf­uð­verk og sjón­trufl­anir og svo versn­aði það bara og verns­aði þar til ég var sendur á spít­ala með háfjalla­veiki. Ég þekki kvíða vel, en þetta var allt öðru­vísi og eig­in­lega bara ömur­leg van­líðan. Það er lík­lega ekki það sniðug­asta sem maður gerir þegar lík­am­inn er í hæða­að­lögun að fara upp á háa C-ið og það end­aði bara í sjúkra­bíl. En reynslan sem ég fékk af heil­brigð­is­kerf­inu í Kólombíu var frá­bær.“

Geir seg­ist gera sitt besta alla daga til að koma vel fram við náung­ann og finnst á köflum stemmn­ingin á Íslandi vera full grimm og nei­kvæð:

„Það er alltaf ein­hver að gagn­rýna ein­hvern og svo kemur ein­hver annar og gagn­rýnir þann fyrir að vera að gagn­rýna og þetta endar bara eins og hver önnur hringa­vit­leysa. Það leiðir mann ekki neitt að vera stans­laust með nei­kvæðar skoð­anir á öðru fólki. Ég held að eitt það besta sem ég hef lært er að verða betri í að halda kjafti. Það lagar mjög mörg vanda­mál að vera ekki alltaf með skoð­anir á öllu saman og læra að anda í mag­ann áður en maður hefur eitt­hvað mjög nei­kvætt til mál­anna að leggja. Skoðanir og gagn­rýni kallar mjög oft bara á fleiri skoð­anir og meiri gagn­rýni. Þetta er fámennt land sem við búum í og við hljótum að geta gert betur í að koma vel fram við hvort annað og róað okkur í að vera að segja eitt­hvað nei­kvætt um náung­ann.“

Geir seg­ist með árunum hafa lært að tileikna sér auð­mýkt og þakk­læti:

„Þegar maður eld­ist verður maður að nota skyn­sem­ina. Maður hefur ekk­ert leyfi til að setja sig á háan hest og þykj­ast betri en annað fólk. Besta leiðin til að ná til fólks er að vera hóg­vær, koma vel fram við fólk og draga úr dóm­hörku. Það eru allir að gera sitt besta við mis­jafnar aðstæður. Maður má ekki sofna á verð­inum og láta hrok­ann koma aftan að sér. Ég minni mig alla daga á að vera þakk­látur fyrir kon­una mína og dóttur mína. Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef ég hefði ekki kynnst kon­unnni minni og hún er það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég er líka gríð­ar­lega þakk­látur fyrir tæki­færin sem ég fæ í tón­list og fjöl­skyld­una mína og reyni að jarð­tengja mig alla daga og minna mig á að vera auð­mjúkur og þakk­látur.“

https://www.youtube.com/watch?v=B4zqRlqqYEw

Þáttinn með Geir og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ