Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Katrín Jakobs gifti sig í skyndi: „Brúðkaupsnóttin fór í að hjálpa gubbandi barni“

Katrín Jakobs gifti sig í skyndi: „Brúðkaupsnóttin fór í að hjálpa gubbandi barni“
Katrín Jak­obs­dóttir, Mynd: Róbert Reynisson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Íslands fagn­aði brúð­kaups­af­mæli sínu í gær en þau Gunnar Sig­valda­son hafa verið gift í 15 ár. Þau fögn­uðu þó í sitt­hvoru land­inu í ár.

Katrín skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hún segir frá brúð­kaups­af­mælis þeirra hjóna. Hún rifjar upp þegar þau ákváðu í skyndi að gifta sig árið 2007 en því héldu þau leyndu fyrir flestum. Segir hún að brúð­kaups­nóttin hafi ekki verið eins skemmti­leg og þær oft eru:

„Í dag höfum við Gunnar verið gift í fimmtán ár. Við fögnum þessu brúð­kaups­af­mæli hvort í sínu land­inu þar sem ég sit í dag leið­toga­fund JEF-sam­starfs­ins í Riga en hann er heima á Íslandi.

Við giftum okkur nokkuð skyndi­lega árið 2007 og sögðum örfáum frá þeirri àkvörðun, ég var þá komin á steypir­inn og sonur 2 kom í heim­inn á gaml­árs­dag sama ár. Við giftum okkur hjá Sýslu­manni og fórum svo með elsta syn­inum á Hornið og Ísbúð Vest­ur­bæjar. Við komumst að því þetta kvöld að lík­lega væri barnið með mjólk­urof­næmi þar sem brúð­kaups­nóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni sem hafði fengið sér ótæpi­lega af ís.“

Þá segir Katrín einnig í færsl­unni að síð­ustu 15 ár hafi verið við­burða­rík, stundum erfið en þó fyrst og fremst far­sæl. Talar hún einnig um þeirra verstu stundir og þeirra bestu:

„En fall er far­ar­heill og þetta 15 ára ferða­lag hefur verið við­burða­ríkt, stundum erfitt, oft skemmti­legt en fyrst og fremst far­sælt.

Verstu stund­irnar eigum við þegar við setjum saman hús­gögn eða erum saman í bíl því við eigum það sam­eig­in­legt að vita allt best. Bestu stund­irnar eru þegar við hlæjum saman að ein­hverri vit­leysu sem við gerum sem betur fer oft – og alltaf eftir þessar erf­iðu stundir!“

Næstu orð for­sæt­is­ráð­herr­ans sýna hversu lítið Ísland er því þar segir hún frá því er þau hjónin hjálp­uð­ust að við snjó­mokstur en í flestum löndum þyrftu þjóð­ar­leið­togar ekki að moka sjálfir snjó­inn í heim­reið­inni:

„Við sýndum til dæmis nokkra snilld­ar­takta núna á laug­ar­dag­inn þegar mér fannst það góð hug­mynd að keyra í ófærð og stór­hríð til að græja nokkrar jóla­gjafir. Eftir afar hægan akstur úr Vesturbæ í Kringl­una þar sem ég tók mitt hlut­verk sem aðstoðaröku­maður mjög alvar­lega við litlar vin­sældir vorum við sam­mála um að þetta hefði mögu­lega ekki verið frá­bær hug­mynd! Eftir að hafa kom­ist klakk­laust heim end­uðum við á kafi í snjó­mokstri (á meðan enn kyngdi niður snjó) þar sem við vissum að sjálf­sögðu bæði best hvernig ætti nákvæm­lega að moka snjó með sem skil­virkustum hætti og þessi mynd er tekin í miðju því sam­tali.Það eru allar þessar stundir sem láta kannski ekki mikið yfir sér en sem ég er þakk­lát fyrir alla daga og gera lífið svo mergjað.“

Katrín og Gunnar moka snjó.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ