Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hópbílar ætla að upplýsa frumhlaup bílstjórans: „Við ætlum að fá botn í málið, því get ég lofað“

Hópbílar ætla að upplýsa frumhlaup bílstjórans: „Við ætlum að fá botn í málið, því get ég lofað“
Myndin er sam­sett og teng­ist frétt­inni ekki beint

Rútu­bíl­stjór­inn hjá Hópbílum sem í tvígang virti ekki til­mæli björg­un­ar­sveita­manna né lög­reglu og þver­aði þjóð­veg 1 við Pétursey á jóla­dag hefur ekki enn skilað sér til borg­ar­innar. Mannlíf ræddi við Pálmar Sig­urðs­son, skrif­stofu- og starfs­manna­stjóra hjá Hópbílum, og spurði um stöðu mála:

„Það er í sjálfu sér afskap­lega lítið um það að segja eins og staðan er. Við erum nátt­úru­lega bara að vinna í þessu máli og erum að skoða þetta mál og fá að vita nákvæm­lega hvað gerð­ist þarna og af hverju það fór svona eins og fór.“

Björg­un­ar­sveitir aðstoð­uðu við að losa rút­una við Péturey en þrátt fyrir end­ur­tekin til­mæli hélt bíl­stjór­inn áfram og festi rút­una aftur við afleggjar­ann hjá Hótel Dyr­hólaey. Björg­un­ar­sveitir aðhöfð­ust ekki frekar í mál­inu eftir það.

„Þau eru sem sé enn þá á Hótel Dyr­hólaey, þessi hópur sem var þarna á ferð og við eigum von á þeim í bæinn í dag þar sem veðri er nú farið að slota,“ segir Pálmar hjá Hópbílum að fyr­ir­tækið muni í kjöl­farið senda frá sér yfir­lýs­ingu.

Þrýstingur frá ferðaskrifstofu

Mannlífi barst ábend­ing að hóp­ur­inn hafi verið á vegum ferða­skrif­stofu. Hópurinn átti bók­aða hót­elgist­ingu sem ekki fékkst end­ur­greidd. Bíl­stjóri og far­ar­stjóri áttu að hafa stað­fast­lega neitað að halda för­inni áfram en þrýst­ingur frá ferð­skrif­stof­unni hafi ráðið för.

Aðspurður hvort svo end­ur­greiðslu­skil­málar hót­els­ins og þrýst­ingur ferða­skrif­stof­unnar hafi ráðið för svarar Pálmar:

„Við erum að skoða af hverju þetta ger­ist. Það er mjög leið­in­legt hvernig þetta lítur út og ég vona að það rétta í stöð­unni komi svo í ljós og þá munum við að sjálf­sögðu senda eitt­hvað yfir það. Við erum að bíða eftir að fólk skili sér í bæinn og þá verður þetta tekið hérna fyrir.“

Pálmar útskýrir jafn­framt að margir þættir spili inn í.

„Þessi bíl­stjóri, þrátt fyrir að vera erlendur bíl­stjóri þá er hann vanur […] og svo ertu þarna með hóp og far­ar­stjóra og annað. Það er svo margt þarna inni sem að við þurfum að átta okkur á og hvað fór úrskeiðis.“

Á vegum hvaða ferða­skrif­stofu er hóp­ur­inn?

„Ég bara veit það ekki. Ég var bara að koma til vinnu og er bara að fá þetta hérna inn á borð til mín. Þess vegna er ég að kalla eftir upp­lýs­ingum. Við sendum frá okkur um leið og það er komið eitt­hvað. Þetta er ekki eitt­hvað sem við viljum að sé að dansa svona í kringum okkur – það er nokkuð ljóst.“

Að lokum vill Pálmar ítreka að engin slys urðu á fólki. Hópnum var komið fyrir á hót­eli var þar yfir jólin og er þar enn – eins og margir sem lentu í þessum vand­ræða­gangi.

„Við ætlum að fá botn í málið, því get ég lofað þér,“ segir Pálmar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ