Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Sé ég að sumir bregðast bálreiðir við orðum Agnesar biskups – fastir liðir eins og venjulega“

„Sé ég að sumir bregðast bálreiðir við orðum Agnesar biskups – fastir liðir eins og venjulega“
Guð­mundur Andri Thorsson rit­höf­undur.

Rit­höf­und­ur­inn Guð­mundur Andri Thorsson fjallar um ræðu bisk­ups sem sagði á dög­unum að á Íslandi væri þöggun í gangi í varð­andi Guð almátt­ugan og að ekki sé vin­sælt að nefna hann.

„Það er kona að reyna að lesa úr Lúk­asar­guð­spjalli í útvarp­inu en gengur á með eilífum trufl­unum. Veit ekki hvort þetta er tækið eða mót­töku­skil­yrði guðs kristni í land­inu, hall­ast að því síð­ar­nefnda; engar trufl­anir núna þegar fagn­að­ar­er­indi mark­aðs­hyggj­unnar hljómar í aug­lýs­ing­unum. Ég var ann­ars ánægður með jóla­predikun séra Elín­borgar Sturlu­dóttur í jóla­mess­unni á aðfanga­dags­kvöld, bæði inn­takið og flutn­ing­inn og ég raulaði milli­radd­irnar í sálm­unum svona eins og þvi varð við komið í því rösk­lega tempói sem kór­inn söng, eins og allir vildu drífa þetta af og flýta sér heim í steik­ina,“ segir Guð­mundur.

„Öllu meiri varð nú trú­ar­iðkun mín ekki þessa hátíð­ar­daga, en nú sé ég að sumir bregð­ast bál­reiðir við orðum Agnesar bisk­ups – fastir liðir eins og venju­lega þar. Almennt finnst mér að trú­mál eigum við að ræða af yfir­vegun og virð­ingu fyrir mann­rétt­indum. Virðingu fyrir þeim mann­rétt­indum að búa yfir trú­ar­sann­fær­ingu um teng­ingu við almættið, hvernig svo sem það er í lag­inu – en líka virð­ingu fyrir  tján­ing­ar­frelsi. skoð­ana­frelsi, kyn­frelsi og frelsi til að klæða sig að vild og vera sá/sú/það sem maður telur sig vera. Frelsi til að óhlýðn­ast og frelsi til að fara ekki að fyr­ir­skip­uðum siðum.“

Guð­mundur Andri segir að þó Agnesi hafi á réttu að standa hvað þetta varðar þá þýði það ekki að prestar geti ætl­ast til þess að þeir muni end­ur­heimta ítök sín:

„Ef for­ingi krist­inna manna á Íslandi segir að fólk veigri sér við að játa trú sina í opin­beru rými af ótta við aðkast og smánun þá getum við ekki bara afgreitt það sem ein­hverja vit­leysu og brugð­ist við með ein­hverju láttu­ekk­is­vona og hættessu­væli heldur þurfum við að taka þessa umkvörtun alvar­lega og líta í eigin barm og hug­leiða hvort okkur hætti til að smána fólk fyrir að vera kristið. En for­ingi krist­inna manna á á Íslandi þarf líka að gera sér grein fyrir því að sá tími er lið­inn að prestar og kirkj­unnar þjónar eigi greiða leið að heila­búum barn­anna með bibl­íu­sög­urnar sínar og boð­skap­inn sem í þeim felst.  Þannig bara er það og er full­kom­lega eðli­legt í sek­úlaríser­uðu sam­fé­lagi. Sjálfur ætla ég að ræskja mig og segja svo bráðum „na na na“ og kom­ast að því hvort ég sé enn með Wandering-star-rödd­ina mína og svo ætla ég að ganga út á vit höf­uð­skepn­anna og him­ins­ins og hafs­ins. Allt er þetta spöl­korn frá mér þar sem ég sit hér við eld­hús­borðið. Það er nokk­urs virði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ