Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimsmet á Íslandi: Skoruðu 160 stig í einum leik – „Ég reyndi alls ekki að setja met“

Heimsmet á Íslandi: Skoruðu 160 stig í einum leik – „Ég reyndi alls ekki að setja met“

Danny Shouse og Ívar Webster eru með eft­ir­minni­legri banda­rísku leik­mönnum sem hafa spilað í íslenska körfu­bolt­anum, en Danny spil­aði eitt tíma­bil með Ármanni í 1. deild og síðan tvö með Njarðvík í úrvals­deild. Ívar kom á sama tíma til Íslands og Danny og lék með Skalla­grím í 1. deild­inni eftir stutt stopp hjá KR. Ívar var öllu lengur á Íslandi en Danny, og fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 1984.

Báðir leik­menn áttu glæsi­legan feril hér á landi: Danny varð Íslands­meist­ari öll þrjú árin sem hann lék hér; meist­ari í 1. deild með Ármanni árið 1980 og Íslands­meist­ari í úrvals­deild árin 1981 og 1982 með Njarðvík, en þetta voru fyrstu stóru titlar Njarð­vík­inga í sög­unni og margir áttu eftir að fylgja í kjöl­farið.

Ívar lék lengst af með Haukum hér á landi og átti mik­inn þátt í að félagið komst um tíma á topp­inn í íslenskum körfu­bolta; færði félag­inu tvo bik­ar­meist­aratitla og einn Íslands­meist­ara­titil.

Lið þeirra Danny og Ívars mætt­ust í Borg­ar­nesi þann 1. des­em­ber árið 1979, í leik sem fór í sögu­bæk­urnar og verður þar um ókomna tíð.

Ármenn­ingar höfðu sigur í leiknum gegn Skalla­grími, loka­tölur urðu 118 stig gegn 109.

Danny skor­aði, eins og frægt er, 100 stig í leiknum, en fram að þeim tíma var aðeins vitað um einn leik­mann í heim­inum sem hafði gert 100 stig í einum leik; það var sjálfur Wilt Chamberlain sem skor­aði 100 stig með liði Phila­delphu gegn New York árið 1962 í NBA deild­inni.

„Danny Shouse hitti með ein­dæmum vel og þó reyndu Borg­nes­ingar allt til að stöðva hann. Þeir settu tvo menn á hann á köflum en allt kom fyrir ekki,“ sagði í frétt Morg­un­blaðs­ins um leik­inn fræga í des­em­ber árið 1979 í Borg­ar­nesi. Og einnig þetta:

„Ármannsliðið byggir ein­göngu á Danny – aðrir leik­menn eru í statista­hlut­verkum og kunna lítið fyrir sér í íþrótt­inni.“

Sjálfur var Danny undr­andi þegar hann heyrði eftir leik að hann hefði skorað 100 stig í leiknum:

„Ég reyndi alls ekki að setja met og hefði hæg­lega getað skorað fleiri körfur ef ég hefði vitað af því að heims­metið væri í hættu,“ sagði hann.

Á þessum tíma voru ekki komnar til sög­unnar 3ja stiga skot, en Danny var þekktur fyrir skot sem voru langt fyrir utan 3ja stiga lín­una sem varð að veru­leika nokkrum árum síðar.

En það sem gerir þennan leik enn eft­ir­minni­legri er sú stað­reynd að Ívar Webster skor­aði 60 stig í leiknum; þarna var því um að ræða met­jöfnun hjá einum leik­manni – Danny Shouse – sem jafn­aði met Wilt Chamberlain, en líka heims­met; aldrei hafa tveir leik­menn í körfu­bolta­leik skorað eins mikið í einum leik – 160 stig!

Ef ein­hver getur fundið leik þar sem tveir leik­menn í sama leik skora sam­tals 160 stig eða meira væri mjög áhuga­vert að lesa um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ