Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bændur segja varaþingkonu Pírata út á túni – Segir hesta deyja úr kulda: „Hahah er þér alvara?”

Bændur segja varaþingkonu Pírata út á túni – Segir hesta deyja úr kulda: „Hahah er þér alvara?”
Vara­þing­kona Pírata. Myndin er sam­sett

Val­gerður Árna­dóttir, vara­þing­kona Pírata og for­maður Samtaka græn­kera, full­yrðir á Twitter að það ætti að vera ólög­legt að hafa úti­gangs­hross úti í vondu veðri. Í það minnsta segir hún óeðli­legt að það sé lög­legt. Óhætt er að segja að tíst hennar hafi vakið sterk við­brögð meðal sumra á sam­fé­lags­miðl­inum og virð­ast flestir bændur.

Val­gerður birti mynd­ina sem sjá hér fyrir neðan á sunnu­dag­inn og skrif­aði: „Meðan við sitjum inni í hlýju hús­unum okkar og bölvum veðr­inu eru þús­undir úti­gangs­hrossa að blotna í þessu veðri og svo kemur frost og þeir frjósa. Versta mögu­lega ástand fyrir hesta og ekk­ert eðli­legt við að það sé lög­legt eða talið „boð­legt”.“

Nokkrir skrifa athuga­semd og spyrja hvort hún sé að grín­ast. Líkt og einn sem segir: „Hahah er þér alvara ? Þú ættir senni­lega frekar að vera að pæla í borg­ar­línu.“

Nemandi nokkur við Land­bún­að­ar­há­skól­ann er þó mál­efna­legur og skrifar: „Sem nem­andi við Land­bún­að­ar­há­skól­ann, langar mér ein­dregið að mæla með því að þú lesir þér til um atferli og þróun Íslenska hests­ins áður en þú ferð að spúa útúr þér mis­gáfu­legum “stað­reyndum”. Skal meir að segja bjóð­ast til þess að finna fræði­legar greinar á þessu sviði.“

Annar skrifar: „Mér finnst þetta mjög áhuga­verð pæl­ing. Ef hross væru ekki tamin eða eru villt. Væri þá ekki sama eða verri staða uppi? Er þá eina lausnin að losa landið alfarið við hross, sem og önnur villt dýr sem líður illa í svona veðri.“

Því svarar Val­gerður: „Hestar eru ekki villt dýr, þeir eru allir í eigu fólks sem á ekki að eiga fleiri hesta en þau geta komið á hús að mínu mati. Hest­arnir eru líka inn­fluttir og eiga ekki að vera villtir hér. Fjöldi þeirra deyr vegna kulda og vos­búðar ár hvert og þús­undir þeirra eru blóð­merar.“

Er einhver buinn að tékka á hagamúsinni?

Einn maður hefur Valgerði að háði og spotti og skrifar: „Jújú íslenski hest­ur­inn sem er buinn að vera herna í 1200 ár og fær vetra­feld er orðið kalt. er ein­hver buinn að tékka á ref­unum og hagamúsinni ætli þau séu ekki líka að krókna.“

Val­gerður svarar þessu fullum hálsi og segir: „Veistu hvað það eru margir hestar sem deyja vegna veð­urs árlega? Veistu hvað hestum er búið að fjölga mikið síðan fyrir 1200 árum?“

Kona nokkur efast um að margir hestar deyji úr kulda. „Væri mikið til í að sjá heim­ildir sem styðja við stað­hæf­ing­una þina um að þús­undir hrossa deyja á hverjum vetri á Íslandi vegna kulda.“

Þessu svarar Val­gerður: „Í fyrsta lagi sagði ég ekki að þús­undir deyja vegna kulda. Ég sagði að fjöldi þeirra deyr, en þar sem eig­endum er ekki skylt að til­kynna það þá veit ég ekki hve mörg, frétti bara reglu­lega af því. Úti­gangs­hross eru þús­undir og blóð­merar um 5000 af þeim.“

Frá Síberíu

Svo er ein kona sem svarar Valgerði í nokkuð löngu máli. Hún skrifar: „Það fer svo í mig þegar fólk sem veit svo greini­lega lítið um land­búnað fer að hrauna yfir bændur útaf því hvernig þau sinna dýr­unum sínum. Þetta er líka bara mjög slæmt lúkk og ég mæli með því að fræða sig aðeins um málin áður er man fer að predika yfir fólk.

Íslenski hest­ur­inn hefur verið hér á landi í 1200 ár og hefur þolað íslenskan vetur í allan þann tíma. Vala minn­ist á að Íslenski hest­ur­inn er upp­runa­lega inn­fluttur, sem rétt, hann kom fyrst frá Mongólíu og Síberíu, þar sem vetr­ar­veður er ekki mikið betra en hér.“

Hún heldur svo áfram og segir: „Annars hefur inn­flutn­ingur á hestum verið ólög­legur í það langan tíma að þessi stofn hefur hald­ist frekar óbreyttur síðan hann kom hingað og hjarð­eðli íslenska hests­ins og eig­in­leiki hans til að þola kaldar og snjó­miklar vetr­ar­að­stæður ekki verið ræktað eða þjálfað úr þeim

Svo lengi sem hrossin fá vel að borða og fá gott skjól er snjór og kuldi ekk­ert vanda­mál. Það fyrra leysa bændur með því að koma með hey í hólfin til hest­anna ef þarf og það seinna er leyst með því að byggja skjól­veggi ef þau finna ekki nátt­úru­legt skjól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ