Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Svaf Lorca hjá óvininum? – Spennandi hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í dag

Svaf Lorca hjá óvininum? – Spennandi hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í dag
Federico García Lorca

„Láttu þér ekki detta í huga að koma, þér er ekki óhætt hér.“ Þessi varn­að­ar­orð fékk skáldið Federico García Lorca að heyra þegar hann kvaðst ætla eyða sumr­inu árið 1936 á ætt­ar­setr­inu skammt fyrir utan borg­ina Granada. Kvað hann það óhugs­andi að sér staf­aði hætta af Falang­istum sem þá voru við það að hefja valda­rán sem síðan leiddi til borg­ara­styrj­ald­ar­innar á Spáni. Hvað sem því líður, þá var sú styrj­öld rétt hafin þegar hann er hand­tek­inn í Grana­da­borg og síðan tek­inn af lífi. Fréttin kom flestum í opna skjöldu því bæði var Lorca stór­stjarna í líf­anda lífi og, þó hann hefði skrifað eitt og annað sem falang­istum þótti miður, var hann ekki yfir­lýstur and­stæð­ingur þeirra. Reyndar var hann stór­vinur þess manns sem stofn­aði Falangista­flokk­inn, José Antonio Primo de Rivera. Og ekki nóg með það heldur halda einir því fram að þeir hafi átt í eld­heitu ást­ar­sam­bandi. Háskóla­pró­fess­or­inn Jesús Cotta hefur fengið bágt fyrir að skrifa um þetta mjög svo eld­fima mál. „Ég harma það að mér sé legið á hálsi fyrir að vilja gera Lorca að fas­ista og José Antonio að homma,“ segir hann. „Það er ekki það sem mér gengur til en gögnin varð­andi sam­band þeirra tala sínu máli og þeir sem and­mæla gera það frekar af hug­sjón en skyn­semi.“ Þar vísar hann til þeirra háværu radda sem telja óhugs­andi að þeir tveir hafi átt skap saman vegna ólíkra lífs­skoð­anna. Ekki er til nein ljós­mynd af þeim saman en Cotta hefur eftir Lorca í bók sinni Blýrósir (Rosas de plomo) að þeir félagar hafi farið út að borða um hverja helgi um nokk­urt skeið en þó með mik­illi leynd, „enda kemur það sér hvorki vel fyrir hann né mig að við sjá­umst saman,“ er haft eftir skáld­inu.

Jose Antonio Primo de RIvera

Það voru ekki einu tengsl skálds­ins við fas­istana því Lorca-fjöl­skyldan átti ætt­ingja og vini meðal hátt­setra falangista í Andalúsíu. Reyndar var skáldið einmitt í felum heima hjá einum slíkum þegar hann var hand­tek­inn. Það er því kannski ekki að undra að hann teldi sig hólp­inn þar sem tengsla­net hans virt­ist traust. Þess eru þó engin dæmi, hvort sem vitnað er í verk hans eða ævi­sögu, að hann hafi verið hlið­hollur fas­ista­hug­sjón­inni.

Engum sögum fer af við­brögðum José Antonios við aftök­unni en hann var sjálfur tek­inn af lífi í fang­elsi í Alicante rúmum tveimur mán­uðum á eftir Lorca. Sú borg, sem Íslend­ingum er af góðu kunn, var þá enn á valdi Lýð­veld­is­sinna.

Íslend­ingar kann­ast lík­lega flestir við leik­rit Lorca einsog Blóð­brullaup og Hús Bern­hörðu Alba sem bæði hafa verið sett á svið hér­lendis. Engin skortur er á þýð­ingum á ljóðum hans og má meðal ann­ars finna mikið safn þeirra í bók­inni Gustur úr djúpi nætur sem Stofnun Vigdísar Finn­bogadóttur í erlendum tungumálum í Háskóla Íslands gaf út árið 2007. 

Jón Sigurður fjallar um Lorca í þætti sínum Runtað á Rucio en þar er skáld­inu fylgt frá því hann ákvað að fara til Granada í sum­ar­frí þar til hann er svo hand­tek­inn og líf­lát­inn. Þar er líka spurt um jarð­neskar leyfar skálds­ins en þeir sem leita þeirra hafa fundið við­nám þar sem síst skyldi. Þátt­ur­inn birt­ist á vef Mannlífs upp úr klukkan 17 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ