Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Arnar Þór fékk ábendingu um flak Glitfaxa: „Ég tók Side Scan sónar með og kortlagði svæðið alveg“

Arnar Þór fékk ábendingu um flak Glitfaxa: „Ég tók Side Scan sónar með og kortlagði svæðið alveg“

Miklar vanga­veltur eru um nákvæma stað­setn­ingu flaks Glitfaxa sem fórst árið 1951 ásamt öllum inn­an­borðs, 20 manns. Kafari sem Mannlíf ræddi við seg­ist hafa farið niður að því en vill ekki gefa upp nákvæma stað­setn­ingu. Þá telur þyrlu­flug­maður sig hafa séð flak við Straums­vík árið 1978. Sér­fræð­ingur í flaka­köfun sem Mannlíf ræddi við dregur í efa að um flak Glitfaxa hafi verið um að ræða, þó hann úti­loki ekk­ert.

Þyrluflugmaðurinn

Fyrr­ver­andi þyrlu­flug­stjóri hjá Land­helg­is­gæsl­unni, Benóný Ásgríms­son segir í sam­tali við Mannlíf að hann hafi árið 1978 séð flak flug­vélar í Straums­vík. „Ég get ekki stað­fest að ég hafi séð flak Glitfaxa en ég sá eitt­hvað sem líkt­ist flug­vél, skammt undan Straums­vík. Þetta voru mjög sér­stök skil­yrði, glamp­andi sól og algjört logn,“ sagði Benóný og bætti því við að þetta hafi verið í kringum 1978. „Ég lét vita af þessu á sínum tíma, lét loft­ferða­eft­ir­litið vita minnir mig.“

Kafarinn

Mannlíf birti frétt á dög­unum þar sem sagt var frá kaf­ara nokkrum sem sagð­ist hafa kafað niður að flaki Glitfaxa-flak­inu en vildi ekki gefa nán­ari upp­lýs­ingar en þær að flakið sé á Faxaflóa. Ástæðan fyrir því að hann vildi ekki gefa upp frek­ari upp­lýs­ingar var sú að hann vildi ekki að „ein­hverjir kjánar færu að hræra í þessu“ en stjúp­móðir hans missti föður sinn og föð­ur­bróður í slys­inu.

Lögreglumaðurinn

Þá ræddi Mannlíf í dag við lög­reglu­mann­inn og kaf­ara­sér­fræð­ing­inn Arnar Þór Egilsson, sem sér­hæfir sig í að leita að flökum en hann hefur kafað í um 20 ár. Sagðist hann draga í efa að menn­irnir sem talað er um hér að ofan, hafi fundið flak Glitfaxa þó hann úti­loki það ekki. Segist hann ekki hafa heyrt af flaki í námunda við Straums­vík en að nokkur flök séu vissu­lega í Faxaflóa, önnur er en flak Glitfaxa. „Ef að hann sá flak þar hlýtur það að hafa verið á miklu grunn­sævi. Ef við skoðum það, þá erum við til dæmis með annað flug­vélaflak, Northrop-vél­ina sem er í Skerja­firði en hún er frá því í stríð­inu, sem sagt fyrir tíma Glitfaxa. Og það er á 12 til 14 metra dýpi og það er ekki sjens að sjá það nokkurn tím­ann. En svo er einnig flak við Álfta­ness af breskri her­flug­vél af gerð­inni Lockheed Ventura, sem fórst í stríð­inu líka. Hún er alveg í tætlum. Ég kaf­aði sjálfur að því flaki og þar er bara ekk­ert að sjá.“ Arnar Þór segir að miðað við sjón­stefnu Glitfaxa sem flug­vélin átti að vera í þegar sam­bandið rofn­aði, þá hafi hún farið í sjó­inn þar sem er um 30-35 metra dýpi. „Jú, það er mikið þannig séð en miðað við tækn­ina í dag þá er þetta ekki ómögu­legt.“

Vill skoða svæðið betur

Arnar Þór seg­ist hafa fengið ábend­ingu um flak Glitfaxa fyrir nokkrum árum. „Fyrir nokkrum árum fékk ég ábend­ingu um það að flak Glitfaxa væri að finna undan ströndum Kúa­gerðis. Og mér var gef­inn ákveð­inn punktur og full­yrt við mig að þarna væri vélin. Ég fór út að leita og ég tók Side Scan sónar með mér og kort­lagði svæðið alveg. Og ég sá ekki neitt. Bara alls ekki neitt. En nú er ég mjög vanur að leita að svona lög­uðu en ég myndi ekki segja að mínar mæl­ingar eða mín leit hafi verið 100 pró­sent, því að ef við tökum þessa sviðs­mynd sem átti sér stað undan ströndum Álfta­ness, að þá er ekk­ert eftir. Þegar ég not­aði side scan són­ar­inn við leit af því flaki sá ég ekki neitt en ég vissi að þarna var eitt­hvað því ég hafði kafað þangað niður. Þannig að það sem ég á eftir að gera í raun og veru er að kíkja á þennan stað þar sem full­yrt var við mig að flakið væri og fara með fjar­stýrða mynda­vél þangað niður og athuga hvort að sá staður reyn­ist réttur. Við erum ekk­ert að leita að vél sem er í heilu lagi, þetta eru bara bútar eða brot. Allt álefni er bara farið í gegnum tíð­ina. En það geta alltaf verið ein­hverjir hlutir eftir eins og lend­ing­ar­bún­aður og svo er það eitt­hvað sem fer aldrei og það eru mót­or­arnir.“

Hvað varðar full­yrð­ingu kaf­arns um að hann hefði kafað að flak­inu segir Arnar Þór að hann verði að heyra frekar um það til þess að trúa því: „Ég leyfi mér að draga þetta í efa. Segðu mér aðeins meira svo ég, sem er kaf­ari sem leitað hefur að flökum og fundið þau, geti fengið að vita þetta. Mér finnst þetta bara ótrú­verð­ugt.“ Þegar blaða­maður segir honum að kaf­ar­inn hafi ekki viljað segja hvar flakið væri að finna því stjúp­móðir hans missti föður sinn og frænda í slys­inu og vilji ekki að „hrært“ væri í þessu, sagð­ist Arnar Þór skilja það. „Það er alveg full­kom­lega skilj­an­legt og hann hefur sínar ástæðu en eins og ég segi, þá vil ég ennþá svo­lítið draga þetta í efa. Ég hef heyrt svona sögur í gegnum þennan bransa í gegnum árin en þar sem ég hef kafað niður að flökum, þar eru myndir og fleira skil­urðu? Ekki segja mér að það sé flak ein­hvers­staðar í sjónum og þú viljir ekki að neinn kafi þangað því þú viljir ekki að neinn hrófli við þessu því þetta sé vot gröf.“ Sagði Arnar einnig að hann skilji þá ætt­ingja sem vilji fá að vita hvar flakið er að finna, svo það fái frið í sál­ina. „Þá væri þetta bara staður í sjónum þar sem fór­ust 20 manns og ég veit að þeir kaf­arar sem ég þekki að minnsta kosti, þeir myndu full­kom­lega virða þetta.“

Áður en sam­tali blaða­manns­ins við Arnar Þór lauk vildi hann koma því á fram­færi að það „gæti vel verið að flakið sé löngu fundið“ en að hann hefði heyrt svo margar svip­aðar sögur í gegnum tíð­ina að hann þurfi sönnun svo hann trúi þessu. „Og ég er ekki sá eini sem vill það, heldur ætt­in­gj­arnir líka. Ég vil slá á sam­sær­is­kenn­ingar, ég vil slá á eitt­hvað sem er ekki satt,“ sagði Arnar Þór að lokum en hann heldur út hinni frá­bæru heima­síðu https://dive-explorer.com/ þar sem hann fjallar um skips- og flug­vélaflaka­köfun við Íslands­strendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ