Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð“

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð“

Séra Sigurvin Lárus Jónsson er prestur við Frí­kirkj­una í Reykja­vík, og hann ritar pistil sem ber yfir­skrift­ina: Jafn­rétti til að elska.

„Í bar­áttu­sálmi Desmond Tutu segir: „Gæskan er öfl­ugri en illskan, ástin gegn hatr­inu fer, ljós­geisl­inn lýsir upp myrkrið, lífið af dauð­anum ber. Sigurinn fæst, því ást Guðs er næst.“

Kristin kirkja í heim­inum er marg­breyti­leg og fjöl­breytt. Þessi fjöl­breyti­leiki krist­innar kirkju er í senn styrkur hennar og veik­leiki. Fjöl­breyti­leiki kirkj­unnar verður til þess að fleiri geta fundið sér stað í sam­fé­lagi læri­sveina Jesú og veik­leiki hennar er sá að afstaða kirkna til trú­ar­legra og sið­ferði­legra mála getur tekið á sig myndir öfganna á milli.“

Hann bendir á að „afstaða krist­innar kirkju til hinsegin fólks er jafn­framt fjöl­breytt en hluti krist­inna kirkju­deilda álíta sam­kyn­hneigð synd. Sú afstaða er í flestum til­fellum sett fram með þeim rökum að Biblían for­dæmi sam­kyn­hneigð og að Guð elski syndar­ann, í þessu til­felli hinsegin fólk, en for­dæmi eða hati synd­ina, sem eru hinsegin ástir. Þeir textar Bibl­í­unnar sem not­aðir eru til að for­dæma sam­kyn­hneigð eru ann­ars­vegar úr Móse­bókum Gamla testa­ment­is­ins og hins­vegar úr bréfum Páls post­ula.“

Heldur áfram:

„Þá texta Gamla test­ment­is­ins sem not­aðir eru til að rétt­læta andúð á sam­kyn­hneigð er að finna í laga­bálkum gyð­ing­dóms en mörg þeirra laga eru okkur full­kom­lega fram­andi og hafa aldrei verið haldin í heiðri í krist­inni hefð. Það vægi sem að þessir textar Mósebóka hafa fengið til að for­dæma hinsegin fólk er nýtil­komið og sprettur af þörf­inni til að upp­hefja gagn­kyn­hneigð­ar­hyggju á kostnað þeirra sem ekki passa inn í mótið. Páls­bréfin standa okkur nær en afstaða Páls til sam­kyn­hneigðar í Róm­verja­bréfi og Fyrra Kor­in­tu­bréfi er langt frá því aug­ljós. Páll for­dæmir kyn­hegðun grísk-róm­verskrar menn­ingar, meðal ann­ars drengja­ást (peder­a­stíu) og vændi karla, en gerir ekki ráð fyrir að um jafn­ingja ást­ar­sam­band tveggja ein­stak­linga af sama kyni geti verið að ræða.“

Séra Sigurvin segir að „það er sann­fær­ing mín að sá boð­skapur krist­inna manna í sam­tím­anum að sam­kyn­hneigð sé synd, sé vald­beit­ing og mann­rétt­inda­brot. Sú afstaða rétt­lætir og veldur gríð­ar­legri þján­ingu í heim­inum og kyndir undir ofsóknir og ofbeldi á hendur hinsegin fólki. Í ljósi sög­unnar mun hún flokk­ast með stuðn­ingi kirkna við þræla­hald, kyn­þátta-aðgrein­ingu (apartheid) og kven­fyr­ir­litn­ingu.“

Hann segir að íslenskt sam­fé­lag megi vera stolt af því að hafa horfst í augu við ofbeld­is­fulla for­dóma sína á þeim 44 árum sem liðið hafa frá stofnun Sam­tak­anna 78:

„Í dag tekur þriðj­ungur þjóð­ar­innar þátt í hátíð­ar­höldum Hinsegin daga og það er mik­ill minni­hluti sem heldur uppi eða styður for­dóma í þeirra garð. Sá minni­hluti talar því miður oft í nafni Jesú Krists og rétt­lætir sig á grund­velli þeirrar guð­fræði að Guð elski syndar­ann en hati synd­ina. Sú elska sem byggir á því að þú sem ein­stak­lingur afneitir sjálfum þér og gerir lítið úr ást þinni til ann­ara, er ekki elska heldur vald­beit­ing.“

Séra Sigurvin er á því að „ást sem byggir á jafn­ingja­tengslum er guð­leg og heilög, í hvaða mynd sem hún birt­ist, en vald­beit­ing og ofbeldi getur aldrei byggt á jafn­ingja­tengslum. Þess vegna getur kristin kirkja sam­tímis fagnað hinsegin fólki og ástum þeirra en for­dæmt ofbeldi. Það er ekki synd að elska en það er synd að for­dæma ást ann­arra og slík for­dæm­ing veldur og rétt­lætir ofbeldi gegn hinsegin fólki.

Í Jóhann­es­ar­bréfi er því haldið fram að boð­orð kær­leik­ans sé öllum boð­orðum æðri og að sá sem þyk­ist tala af kær­leika en hefur hatur í huga geti ekki staðið í ljós­inu. Þar segir: „Sá sem seg­ist vera í ljós­inu og hatar bróður sinn, hann er ennþá í myrkr­inu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljós­inu og í honum er ekk­ert er leitt geti hann til falls.”

Þegar kemur að grund­vallar mann­rétt­indum má engar mála­miðl­anir gera og afstaða kirkj­unnar í heim­inum til sam­kyn­hneigðar er ein af stóru syndum hennar í sam­tím­anum.“

Og svo loka­orðin:

„Að lokum vil ég halda á lofti orðum Desmond Tutu, aldr­aða erki­bisk­ups­ins í Suður-Afríku, en hann var einn vernd­ara alþjóð­legs átaks sem að Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu Þjóðanna hefur sett á lagg­irnar undir yfir­skrift­inni Free & Equal, eða Frjáls og jöfn. Átakinu er ætlað að berj­ast gegn for­dómum og laga­setn­ingum sem mis­muna hinsegin fólki um allan heim. Á stofn­fund­inum líkti hann afstöðu krist­inna til sam­kyn­hneigðar við þá sem á sínum tíma vörðu aðskiln­að­ar­stefnu svartra í Suður-Afríku og um þá guð­fræði segir hann:

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómó­fó­bískan Guð og ef mér yrði boðin vist á hómó­fó­bískum himnum myndi ég afþakka.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ