Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þorgerður:„Nema hann telji konur best geymdar bak við eldavélina líkt og forveri hans sagði forðum“

Þorgerður:„Nema hann telji konur best geymdar bak við eldavélina líkt og forveri hans sagði forðum“

Formaður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, segir á Facebook-síðu sinni að hún eigi „það stundum til að hækka róm­inn enda brýndi pabbi það fyrir mér að tala hátt og skýrt.“

Bætir við:

„Ekki vera feimin við það sem verið er að segja, sér í lagi ef málið er brýnt og á erindi við fólk, sagði karl­inn hann pabbi. Og það fannst mér í dag þegar ég spurði for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum um plan rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart verð­bólg­unni.“

Hún nefnir að „marg­ít­rekað hefur verið bent á aga­leysi rík­is­stjórnar í rík­is­fjár­málum þannig að eftir standa Seðla­banka­stjóri og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins dálítið einir í vörn­inni gegn verð­bólgu. Svörin voru rýr og frekar til þess fallin að ýta undir gagn­rýni um aðgerð­ar­leysi rík­is­stjórnar en hitt.“

Þor­gerður Katrín segir að „í raun voru einu svör for­manns Fram­sóknar að ég hækki róm­inn of mikið! Svei mér gott að hann sitji ekki hjá mér á lands­leikjum! Nema hann telji konur best geymdar bak við elda­vél­ina líkt og for­veri hans sagði forðum. Alla vega svörin voru rýr fyrir fólkið og fjöl­skyldur lands­ins á þessum verð­bólgu- og þenslu­tímum.“

Segir einnig:

„Það gilti þó ekki um aðra ráð­herra sem ég spurði líka í dag í und­ir­búnum fyr­ir­spurnum um önnur efni. Rafræn skil­ríki fyrir fatlað fólk eru í far­vatn­inu og félags­málarað­herra með augun á bolt­anum þótt gagn­rýna megi að ekki hafi verið gert ráð fyrir aðgengi allra að raf­rænum skil­ríkjum frá upp­hafi. En skiln­ingur, metn­aður og vilji ráð­herra er sann­an­lega til staðar. Það er gott.“

Þor­gerður Katrín færir í tal að „mat­væla­ráð­herra var ekki til­bú­inn með úrræði til að lækka tolla og gjöld svo mat­ar­k­arfan geti orðið ódýr­ari þrátt fyrir að ég hafi lagt þessa fyr­ir­spurn fram um aðgerðir stjórn­valda gegn verð­bólgu fyrir 5 mán­uðum síðan.

Ráðherra sagð­ist þó vera að skoða að stærstu fram­leið­endur land­bún­að­ar­vara gætu ekki boðið í toll­kvóta gagn­gert til að koma í veg fyrir að neyt­endur fái ábatann, af þó þeim litlu toll­kvótum sem eru fyrir. Þetta þarf ekki að vera svona og ráð­herra gerir sér grein fyrir því.“

Heldur áfram:

„Hefði auð­vitað kosið aðgerðir strax af hálfu stjórn­valda svo verð á mat­ar­körf­unni geti lækkað en þarna var von­ar­týra. Alveg eins og þegar fjár­mála­ráð­herra sagð­ist um dag­inn vera reiðu­bú­inn til að rýmka fyrir tollum og gjöldum á land­bún­að­ar­af­urðum gegn bein­greiðslum til bænda. Líkt og gert var með græn­metið á sínum tíma. Trúa á sam­keppni, frá­bærar íslenskar land­bún­að­ar­vörur og frelsi. Það er hyggi­legt að gera og öllum til hags­bóta, bændum sem neyt­endum.“

Hún segir að „áfram­hald af núver­andi íhalds­mennsku og úreltu kerfi í land­bún­aði er engum til góðs. Þriðju fyr­ir­spurn­ina um aðgengi fatl­aðra að háskóla­námi lagði ég einnig fram fyrir margt löngu síðan. Háskóla­ráð­herra hefur nýtt tím­ann vel og kom vel und­ir­bú­inn. Tækifæri fatl­aðs fólks eru of fá og hamlandi en lítið hefur verið gert eftir að starfstengt diplom­a­nám fyrir fólk með þroska­hömlun hófst í Háskóla Íslands haustið 2007. Þessu ætlar ráð­herra nú að breyta og er það mikið fagn­að­ar­efni því nú hefur form­legt skref verið stigið til að auka fram­boð háskóla­náms fyrir fólk með þroska­hömlun.

Er ætl­unin að virkja betur sam­vinnu háskóla og þau tæki­færi sem hægt er að bjóða þessum hópi fólks. Einnig er ætlun að end­ur­skoða reikni­líkanið og byggja inn hvata fyrir háskóla til að opna dyr sínar.“

Segir að end­ingu:

„Þetta gerir ráð­herra innan síns fjár­hags­ramma en með því að for­gangs­raða. Hér eiga Lands­sam­tökin Þroska­hjálp stóran hlut að máli með því að halda öllum við efnið. Vel gert öll. Þegar þetta eru svörin þá getur verið gaman í þing­inu þótt leynd­ar­hyggja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna vegna skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda um Lind­ar­hvol hafi sett dökk blett á dag­inn.

Ekki að þau maka­lausu vinnu­brögð komi samt á óvart hjá flokkum sem eru vanir að geta troðið skýrslum undir stól; og kom­ast upp með það. En það er rétt að draga fram það sem vel er gert. Og gott að finna metnað hjá ráð­herrum fyrir sínum mála­flokki. Þótt gam­al­kunnar og fram­sókn­ar­legar hrút­skýr­ingar hafi flotið inn á milli!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ