Fyrrverandi kennari nokkur fyrir austan blandaði sér í umræðuna um ósæmilegt orðaval í bókum og vill laga Íslendingasögurnar. Kaldhæðni má þó lesa úr orðum hans.
Ýmsir hafa tjáð sig eftir að fjölmiðlar sögðu frá því að breska útgáfufyrirtækið Puffin ætlaði að breyta þýðingum á bókum eftir Roald Dahl vegna ósæmilegs orðavals sem þar er að finna. Sitt sýnist hverjum en margir eru þessu mótfallnir, þar á meðal forsætisráðherra Bretlands, Rishi Sunak.
Eiginkona fyrrverandi kennara að austan skrifaði færslu á Facebook þar sem hún segir frá hugmyndum eiginmanns síns um breytingar á Íslendingasögunum. Nefnir hún svo dæmi um breytingu á Gísla sögu Súrsonar, þar sem minnst er á Ingjaldsfíflið. Færsluna má lesa hér að neðan:
„Í ljósi umræðu um ósæmilegt orðaval í bókum benti karl minn mér á að sjálfar Íslendingasögurnar, sem hann kann næstum utan að, eru fullar þessum ósóma.
Því hefur hann byrjað á að laga þessa texta.Hann byrjaði á Gísla Súrssyni en upphaflegi textinn er svona:„Helgi hét sonur Ingjalds og var afglapi sem mestur mátti vera og fífl; honum var sú umbúð veitt að raufarsteinn var bundinn við hálsinn og beit hann gras úti sem fénaður og er kallaður Ingjaldsfífl ; hann var mikill vexti nær sem tröll“.Þessi texti yrði svona:„Helgi Ingjaldsson skoraði ekki sérlega hátt á Standford Binet prófi að teknu tilliti til staðalfráviks. Ferðum hans voru takmörk sett, enda átti hann heima á eyju. Hann var íturvaxinn grænkeri „.Þar sem þetta er mikið verk vonumst við til að fleiri leggi hönd á plóginn.“































Athugasemdir