Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ferðafélag Íslands saklaust af ásökunum yfirtökufólks: Rétt viðbrögð við áreitismálum

Ferðafélag Íslands saklaust af ásökunum yfirtökufólks: Rétt viðbrögð við áreitismálum
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ferða­fé­lag Íslands er sak­laust af þeim grófu ávirð­ingum sem hópur tengdur Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, fyrr­ver­andi for­seta félags­ins, hefur haldið á lofti. Umrætt fólk hélt því fram að far­ar­stjórar og stjórn­ar­menn hefðu orðið upp­vísir að alvar­legum brotum gegn umbjóð­endum sínum. Nið­ur­staðan er áfell­is­dómur yfir for­set­anum fyrr­ver­andi.

Í úttekt sál­fræði­stof­unnar Lífs og sálar er farið ítar­lega í gegnum ávirð­ing­arnar og þau mál sem nefnd voru sem dæmi um yfir­hylm­ingu og brot. Nið­ur­staðan er sú að félagið hafi staðið rétt að úrlausn mála. Sigrún Val­bergs­dóttir, frá­far­andi for­seti Ferða­fé­lags Íslands, upp­lýsti á fjöl­mennum aðal­fundi félags­ins í gær­kvöld að með þess­ari nið­ur­stöðu væri komið nýtt upp­haf og ömur­legum tíma inni­halds­lausra ásak­ana lokið.

Sigrún Val­bergs­dóttir.

„Í febr­úar 2023 var svo end­ur­skoðað það fyr­ir­komu­lag og sam­þykkt af hálfu stjórnar FÍ,
upp­færð við­bragðs­á­ætlun, þar sem fram kemur að þrír utan­að­kom­andi aðilar skipi fagteymi sem vísi málum í úttekt hjá fag­að­ila ef ástæða þykir til. Telur und­ir­rituð að slík skipan mála sé mjög af hinu góða og tryggi betur fag­lega fjar­lægð og hlut­leysi í þessum við­kvæmu og flóknu málum og betri sátt ríki um nið­ur­stöður. Að því sögðu er ekki verið að gefa í skyn að hlut­leysi hafi verið ábóta­vant í þeim málum sem hér hefur verið fjallað um.“
Undir þetta ritar Þórkatla Aðal­steins­dóttir, sál­fræð­ingur hjá Lífi og sál.“

Sigrún Val­bergs­dóttir fagnar nið­ur­stöð­unni.

„Þessum nið­ur­stöðum fögnum við að sjálf­sögðu um leið og við gerum okkur ljóst að það er framundan mikil vinna við að end­ur­heimta trú­verð­ug­leika félags­ins eftir nei­kvæða umræðu síð­ast liðið haust. En til þess er stjórnin reiðu­búin – öll sem eitt – í sam­starfi við félags­menn. Án þeirra er ekk­ert félag,“ sagði hún á fund­inum í gær­kvöld.

Harðskeytt umfjöllun

Gríð­ar­leg aðför var gerð að félag­inu og stjórn­endum þess síð­ast­liðið haust. Frétta­blaðið birti gagn­rýn­is­laust for­síðu­við­tal við Önnu Dóru þar sem hún bar starfs­fólk og stjórn félags­ins alvar­legum sökum og til­greindi að far­ar­stjórar hefðu framið alvar­leg brot. Blaða­mað­ur­inn Björk Eiðs­dóttir tók við­talið. Fylgj­endur Önnu Dóru fengu mikið pláss í fjöl­miðlum með ávirð­ingar á hendur félag­inu.

Gísli Marteinn, sjón­varps­maður. Mynd/Skjáskot. Vísir

Sem dæmi um harð­skeytta umfjöllun má nefna að Gísli Marteinn Bald­urs­son upp­nefndi félagið í sjón­varps­þætt­inum Vikunni sem Feðra­fé­lag Íslands. Kristín I Páls­dóttir, for­maður kven­fé­lags­ins Rót­ar­innar, gekk hvað lengst í ásök­unum á stjórn og far­ar­stjóra. Hún bar upp van­traust á stjórn­ina á fjöl­mennum félags­fundi en til­lagan fékk ekki hljóm­grunn. Aftur á móti sam­þykkti gríð­ar­legur meiri­hluti fund­ar­manna trausts­yf­ir­lýs­ingu við stjórn­ina. Kristín sagði sig úr félag­inu áður en til aðal­fundar kom.

Átakasagan

Átökin innan Ferða­fé­lags Íslands hófust á síð­asta ári. Þáver­andi for­seti félags­ins, Anna Dóra Sæþórs­dóttir, vann leynt og ljóst að því að koma Páli Guð­munds­syni, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, úr starfi með aðferðum sem túlk­aðar voru sem ein­elti. Enginn annar innan níu manna stjórnar félags­ins var sam­mála því að reka fram­kvæmda­stjór­ann sem um ára­bil hafði skilað félag­inu með hagn­aði og í far­sælum rekstri.

Á fundi í höf­uð­stöðvum Ferða­fé­lags­ins voru Róbert Marshall, þáver­andi far­ar­stjóri Ferða­fé­lags Íslands, og Þórey Vil­hjálms­dóttir ráð­gjafi mætt og sögð­ust vera þar í umboði Önnu Dóru. Tví­menn­ing­arnir sátu fyrir fram­kvæmda­stjór­anum við vinnu­stað hans og kröfð­ust fund­ar­ins. Þórey er þekkt sem aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur dóms­mála­ráð­herra á þeim tíma sem Leka­málið kom upp. Það mál kost­aði ráð­herr­ann emb­ættið. Á fund­inum settu tví­menn­ing­arnir fram þá kröfu að Páll viki úr starfi sínu.

Þórey Vil­hjálms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Í fram­hald­inu fengu þau fund með fjórum stjórn­ar­mönnum og kröfð­ust þess, með und­ir­liggj­andi hót­unum, að Páll yrði lát­inn fara, að öðrum kosti yrðu trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr starfi félags­ins birtar opin­ber­lega. Síðasta vor gekk svo mikið á í sam­skiptum Páls og Önnu Dóru að hann hafði við orð að hann gæti ekki sinnt starfi sínu við þær aðstæður og myndi láta af störfum frekar en sæta áfram­hald­andi áreiti Önnu Dóru.

Nokkru eftir fund­inn í höf­uð­stöðvum Ferða­fé­lags­ins bauð Anna Dóra Róberti Marshall starf fram­kvæmda­stjóra, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Þetta gerð­ist í hálend­is­ferð á vegum Ferða­fé­lags­ins. Anna Dóra gat ekki staðið við boð sitt  því aðrir í stjórn félags­ins féllust ekki á að Páll hætti störfum. Úr varð að stjórnin skip­aði for­set­anum að láta fram­kvæmda­stjór­ann og aðra á skrif­stofu félags­ins í friði og hætta ein­elt­inu. Þetta má í raun túlka sem nálg­un­ar­bann. Jafn­framt kærði Páll Önnu Dóru fyrir ein­elti á hendur sér og týndi til fjöl­mörg dæmi. Upp úr þessu var ríkj­andi stjórn­ar­kreppa í félag­inu.

Sáttin

Fram­ganga Önnu Dóru gagn­vart Páli þótti vera grafal­var­leg. Síð­ast­liðið sumar var leitað sátta í mál­inu og bað hún Pál um að draga mál sitt til baka gegn því að málið yrði leyst á far­sælan hátt með hags­muni Ferða­fé­lags­ins að leið­ar­ljósi. Lögmenn þeirra gerðu sátt um þetta mál. Páll skil­aði skrif­legri sátt frá sinni hlið en for­set­inn munn­legri. Sá skiln­ingur var uppi að Anna Dóra myndi hætta með reisn og ekki yrði rætt frekar um ein­eltið. Í fram­hald­inu dró Páll til baka kæruna á hendur for­set­anum í þeirri trú að sam­komu­lagið héldi og þannig staðið vörð um orð­spor félags­ins.

Páll Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri.

Grun­semdir spruttu svo um að Anna Dóra hygð­ist ekki standa við sam­komu­lagið. Rætt var um að bera þar upp van­traust­s­til­lögu á Önnu Dóru sem for­seta ef hún stæði ekki við afsögn­ina sem sáttin hafði verið gerð um. Grun­semdir reynd­ust síðan réttar og Anna Dóra sagði af sér emb­ætti í lok sept­em­ber síð­ast lið­ins með miklum hvelli. Lýsti hún afsögn sinni sem afleið­ingu þess að innan félags­ins hefði þrif­ist kyn­ferð­is­legt áreiti án þess að brugð­ist hefði verið við. Stjórn félags­ins hefur upp­lýst að sex mál af þessum toga hafi komið upp á und­an­förnum fimm árum. Öll hafi þau verið leidd til lykta, ýmist með áminn­ingu, skrif­legri áminn­ingu, til­tali, eða afsögn úr stjórn eða starfi. Anna Dóra nefndi í engu ein­elti sitt á hendur fram­kvæmda­stjór­anum.

Hallarbyltingin

Nokkru fyrir afsögn­ina kynntu Róbert Marshall og Bryn­hildur Ólafs­dóttir, eig­in­kona hans, nýtt félag um úti­vist. Félagið nefna þau Úti­hreyf­ing­una. Bæði hafa þau starfað um langt ára­bil innan Ferða­fé­lags­ins við ýmis verk­efni. Hæst ber þar Land­vætta­prógram­mið sem hefur verið fjöl­sótt. Þegar nýja hreyf­ingin var kynnt sögðu þau jafn­ramt lausum störfum sínum hjá Ferða­fé­lag­inu. Um ára­mót fór síðan Kolbrún Björns­dóttir, far­ar­stjóri Ferða­fé­lags Íslands, út úr félag­inu með verk­efni sem tengd­ust kvenna­göngum.

Róbert Marshall átti að verða fram­kvæmda­stjóri.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs töldu að nauð­syn­legt væri að setja hina nýju hreyf­ingu í sam­hengi við atburða­rás­ina í sumar og afsögn Önnu Dóru. Þetta fólk hafi reynt hall­ar­bylt­ingu í Ferða­fé­lag­inu en þegar það mistókst hafi þau ákveðið að kljúfa sig frá félag­inu og taka með sér verk­efnin. Aðrir sem hafa verið við­loð­andi málið eru Karen Kjart­ans­dóttir, almanna­teng­ill og fyrr­ver­andi frétta­maður, og Magnús Orri Schram, eig­in­maður Þóreyjar. Magnús Orri hyggur á hót­el­rekstur í Þjórs­ár­dal.

Tómas í sigtinu

Anna Dóra lýsti á sínum tíma fram­göngu Tómasar Guð­bjarts­sonar, stjórn­ar­manns og far­ar­stjóra, sem hafi sótt fast að fá Helga Jóhann­es­son, stjórn­ar­mann aftur til liðs við félagið.

Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Helgi sagði af sér eftir að ásak­anir komu fram í fjöl­miðlum á hendur honum. Tómas hefur rekið til baka þessi ummæli og segir að hann hafi aðeins beðið um að Helgi fengi að hitta stjórn­ina og skýra sín mál.

Á aðal­fund­inum í gær­kvöld kom fram mik­ill ein­hugur. Enginn þeirra sem gagn­rýnt hafa stjórn og starfs­fólk félags­ins voru staddir á fund­inum. Ólöf Síverts­sen, sem setið hefur í stjórn, var kosin sem for­seti félags­ins. Þá komu inn tveir nýir stjórn­ar­menn í stað Önnu Dóru og Mar­grétar Hall­gríms­dóttur. Það eru þær Salvör Nordal og Elín Björk Jón­as­dóttir.

Ný stjórn FÍ. Myndin er á FB síðu Gísla Más, stjórn­ar­manns. F.v. Pétur Magn­ús­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, ný í stjórn, Sigrún Val­bergs­dóttir, Gísli Már Gíslason, Ólöf Kristín Sívert­sen, nýr for­seti FÍ, Tómas Guð­bjarts­son, Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri, Sigurður Ragn­ars­son og Gestur Pét­urs­son. Á mynd­ina vantar Salvöru Nordal, sem einnig er ný í stjórn. Í bak­sýn er svo mynd af Skag­fjörs­skála, en stærsta verk­efni FÍ framundan er að end­ur­nýja hann frá grunni. Nýr skáli með sama útliti mun rísa á grunni gamla skál­ans.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð