Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjaðrafok með frægum í færslu hjá Agli: „Prófið að setja æjatollatúrban á Frosta“

Fjaðrafok með frægum í færslu hjá Agli: „Prófið að setja æjatollatúrban á Frosta“
Fjöl­margir frægir skrif­uðu athuga­semd undir færslu Egils. Myndin er sam­sett

Bubbi Morthens, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Hall­grímur Helgason, Jón Trausti Reyn­is­son, Björn Leví Gunn­ars­son og fleiri frægir tjá sig undir færslu hjá Agli Helga­syni fjöl­miðla­manni hjá RÚV. Færsluna birti Egill í gær en í henni segir:

„Ég á frekar erfitt með afstæð­is­hyggjuma sem felst í því að sann­leikur skipti minna máli en hverjir segja hlut­ina. Ég er ekki viss um að það sé hollt fyrir sam­fé­lög og alls ekki fjöl­miðla.“

Þetta ritar Egill í kjöl­far ásak­ana Frosta Loga­sonar á hendur Eddu Falak, upp­ljóstrun á ósann­indum og yfir­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar sem Edda starfar hjá. Málið hefur farið víða og mik­ill hiti skap­ast í umræð­unni.

Færslan er ekki löng en fjöldi athuga­semda hafa verið skrif­aðar og hafa rokk­stjörnur, pólítikusar og fleiri frægir lagt orð í belg. Hér verður stiklað á stóru en færslu Egils má nálg­ast neðst í frétt­inni.

Bubbi Morthens er kjarn­yrtur og kveður: „Samála“

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir virð­ist ekki vita um hvað færslan snú­ist, segir hana vísa í ýmsar áttir og spyr hvort hann hafa eitt­hvað sér­stakt í huga.

Jón Trausti Reyn­is­son virð­ist taka færsl­una til sín, en hann er fram­kvæmda­stjóri Heim­ild­ar­innar. Hann seg­ist vera sam­mála þó óljóst sé en útskýrir að alltaf hafi það skipt máli hver talar:

„[…] Hvað varðar fjöl­miðla, er það einmitt afstaða gegn afstæð­is­hyggju sem hefur verið tekin. Gangast við mis­tökum og röngum stað­hæf­ingum, leið­rétta, fram­fylgja vinnu­brögðum óháð hags­munum. Um leið eru íslenskir frétt­miðlar mikið til að vinna eftir afstæð­is­hyggju, að því leyt­inu að stór hluti þeirra afritar mark­visst ásak­anir á sam­fé­lags­miðlum á víxl og býr til fréttir í röðum án þess að kanna nokkuð sann­leiks­gildi eða gefa færi á and­mælum, nema þeim sé troðið upp á þá.[…]“

Hart er vegið að Jón Trausta og virð­ast þó nokkrir þungt hugsi yfir skrifum hans. Blaða­mað­ur­inn Jakob Bjarnar Grét­ars­son bendir honum á að eitt sé að ljúga en annað sé að ljúga að blaða­mönnum:

„[…] Sann­leik­ur­inn er fundem­ent fags­ins. Fólk verður að geta treyst þeim upp­lýs­ingum sem er að finna í fjöl­miðlum. Ef svo er ekki hlýtur að hrikta í stoðum lýð­ræð­is­ins sem grund­vall­ast á upp­lýstri afstöðu. Ég þyk­ist vita að vinir mínir á Heim­ild­inni hljóti að for­dæma afdrátt­ar­laust lygar sem svo blaða­menn bera á borð fyrir les­endur?“

Jón Ólafsson nýtir tæki­færið og deilir lagi eftir sig.

 Hall­grímur Helgason virð­ist sjá hlut­ina mynd­rænt, og upp­sker tölu­verða gagn­rýni fyrir sína athuga­semd:

„Þetta er bara feðra­veldið að sparka í óþægi­lega konu. Same old shit. Klerka­veld­is­stemn­ing. Prófið að setja æja­tolla­t­úrban á Frosta og þá fáiði réttu mynd­ina.“

Í svari við spurn­ingu hvort Frosti hefði í svo mik­illi ákefð kannað mis­fellur í for­tíð ann­arra blaða­manna segir Egill Helgason:

„ég hef verið blaða­maður í mörg ár og man lítt til þess að kollegar hafi sagt ósatt um feril sinn. Í nútíma­sam­fé­lagi kemst slíkt yfir­leitt upp – auk þess sem varla er þess virði að taka áhætt­una. Það þarf dálítið sér­staka per­sónu­leika til að fara með svona fleipur. Blaða­maður sem missir trú­verð­ug­leik­ann á óhægt um vik í starfi – og það er erfitt að ná honum aftur.“

Út frá spurn­ing­unni sem Anna María Sverr­is­dóttir varpar fram og svari Egils spann­ast heil­miklar umræður og stígur Margrét Tryggva­dóttir þar inn og spyr:

„Ekki að ég sé að afsaka neitt en var hún blaða­maður þegar hún sagði þetta?“

Margréti virð­ist í mun að vita hvort Edda hafi verið blaða­maður á þeim tíma sem hún laug og hvort það sé blaða­mennska ef hún starf­aði ekki á þeim tíma sem blaða­maður: „var hún blaða­maður þá eða bara kona úti í bæ?“

Björn Leví Gunn­ars­son skrifar heill­anga athuga­semd og ræðir þar um störf þing­manna, breyt­ing­ar­til­lög­una og setur meðal ann­ars hlekk að atvinnu­rétt­indum útlend­ingar.

Þá skrifar Þor­varður Goði Guð­rún­ar­son tvær athuga­semdir en hér er brot úr fyrri:

„Það er samt vont ef máls­met­andi ein­stak­lingar varpa ábyrgð frá sér með því að ein­falda sann­leik­ann niður í hvað sem þeir sjá og skilja sjálfir á því augna­bliki sem eitt­hvað ger­ist. Þá gæti maður farið að velta fyrir sér hvað hug­takið sann­leikur raun­veru­lega þýðir, er það upp­lifun þessa sama ein­stak­lings, sýn eða skoðun á ákveðnu atriði eða atburða­rás? […]“

Í seinni skrifar hann:

„Veit bara að Edda Falak skuldar syni mínum og fyr­ir­tæk­inu okkar fyrir fram­leiðslu og sam­starf að fyrstu 32 þáttum af Eigin Konum, eða þangað til Gísli Marteinn tók hana undir sinn vernd­ar­væng og hamp­aði henni í þætt­inum sínum. Í sömu viku breytti hún aðgangs­orðum að öllum sam­fé­lags­miðlum þeirra, skrif­aði sjálfa sig sem eina aðstand­anda og eig­anda verk­efn­is­ins og síðan hef ég ekki heyrt meira, þrátt fyrir að hún hafi fengið reikn­ing og bréf frá lög­fræði­stofu um að gera upp sínar skuldir.“

Færslu Egils og athuga­semd­irnar má lesa hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ