Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nærmynd af Magnúsi Aroni sem sakaður er um morð: „Bjó einn hjá mömmu sinni, brjálaður út í lífið“

Nærmynd af Magnúsi Aroni sem sakaður er um morð: „Bjó einn hjá mömmu sinni, brjálaður út í lífið“
Magnús Aron Magn­ús­son í Hér­aðs­dómi í apríl Mynd: Björgvin Gunnarsson

Loftið var raf­magnað í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær er réttað var yfir Magnúsi Aroni Magn­ús­syni í Barða­vogs­mál­inu. Hann er sak­aður um kald­rifjað morð. Í salnum var tals­verður fjöldi aðstand­enda fórn­ar­lambs­ins, Gylfa Berg­manns Heim­is­sonar, og þó nokkir blaða­menn. Magnús virt­ist hinn örugg­asti. Hann fór í störu­keppni við blaða­menn sem þar voru staddir til að skrifa um málið. Augnaráð hans var ögrandi. Ekki var að sjá merki um iðrum í augum hans.

Var á skilorði

Eins og fram kom í fréttum í gær hófst aðal­með­ferð í hinu svo­kall­aða Barða­vogs­máli en Magnús Aron Magn­ús­son varð valdur að dauða nágranna síns, Gylfa Berg­manns Heim­is­sonar eftir átök sem brut­ust út á milli þeirra eftir að Gylfi bank­aði á dyr Magnúsar. Í rétt­ar­salnum voru meðal ann­ars aðstand­endur Gylfa og blaða­menn frá nokkrum miðlum, þar á meðal frá Mannlífi. Magnús Aron fór ítrekað í störu­keppni við blaða­menn þar sem hann starði stíft í augu þeirra þar til þeir litu undan til að halda áfram vinnu sinni.

Mannlíf tók saman nær­mynd af Magnúsi. Frekar lítið er vitað um hann en ýmis­legt í fari hans gaf vís­bend­ingu um að hræði­legur atburður væri í vændum.

Magnús hlaut dóm árið 2020 fyrir of­beld­is­brot og brot á barna­vernd­ar­lög­um en sam­kvæmt heim­ildum mbl.is veitt­ist hann með ofbeldi, yfir­gangi og van­virð­andi hátt­semi að ungum dreng árið 2019. Var Magnús tæp­lega átján ára er atvikið gerð­ist. Fyrir brotið hlaut hann 30 daga fang­els­is­dóm sem var skil­orðs­bund­inn til tveggja ára en dóm­ur­inn var kveð­inn upp 24. júní 2022, sem þýðir að Magnús var enn á skil­orði er hann var hand­tek­inn grun­aður um mann­drápið þann 4. júní í fyrra. Þá var hann einnig hand­tek­inn árið 2019 vegna ofbeld­is­fullrar hegð­unar í garð mót­mæl­enda á Aust­ur­velli sem þá lýstu stuðn­ingi við flótta­menn. Einnig höfðu borist kvart­anir yfir honum vegna þess að hann spark­aði í hunda sem hann mætti á göngum.

Vissi að eitthvað alvarlegt myndi gerast

Skúli Þór Hilm­ars­son sem bjó í þrettán ár í sama húsi og Magnús, sagði í sam­tali við Mannlíf að hann hafi vitað að eitt­hvað alvar­legt ætti eftir að ger­ast tengt Magnúsi. „Það var svona fjöldamorð­ingja vibe frá honum, allan tím­ann sem ég bjó þarna. Við töl­uðum oft um það að þetta ætti eftir að enda með ósköpum, alveg pott­þétt. Ég tudd­aði hann aðeins niður. Hann lét okkur alveg í friði en ég man að hann spurði mig ein­hvern tíma „Hvað ertu þungur?“ og ég sagði „Ég er svona 85 eitt­hvað svo­leiðis“. Þá svar­aði hann „Ég er 90“. Hann var með svona dólg. Og hann tók geð­rof­sköst alveg greini­lega, maður sá hann stundum labba fram og til baka uppi í her­berg­inu sínu. Eins og hefur komið fram fór hann bara út á nótt­unni en aldrei út á dag­inn en gaur­inn sem var í kjall­ar­anum á undan Gylfa sagði mér að hann hefði verið oft að væfl­ast og kíkja inn um glugg­ana og svo­leiðis. Hann tók alltaf göngutúr upp úr ell­efu, hálf tólf til eitt – tvö á nótt­unni. Hann tikk­aði bara í öll box­inn, bjó einn hjá mömmu sinni, brjál­aður út í lífið, pín­andi dýr.“

Aðspurður hvað hann meinti með að hafa „tuddað hann niður“ svar­aði Skúli Þór: „Hann kom til dæmis inn á gang­inn þar sem ég stóð með dætrum mínum, vorum að klæða okkur í skóna. Þá hrinti hann upp hurð­inni og ætl­aði bara að labba okkur niður. Þá stóð ég upp og ýtti á bring­una á honum og sagði „Hey, slak­aðu aðeins á maður, við erum að klæða okkur hér“ og hann bara „Já“. Ég setti hann bara á sinn stað.“

Þá segir Skúli að móðir Magnúsar hafi þrisvar sinnum hringt í lög­regl­una á meðan hann bjó í hús­inu.

Erfið æska

Fram kemur í frétt mbl.is að for­eldrar Magnúsar hafi skilið þegar hann var ung­lingur og að það hafi verið honum afar þung­bært. Lára Björg­vins­dóttir geð­læknir sinnti geð­mati á Magnúsi, ásamt teymi geð­lækna og sál­fræð­inga. Bar hún vitni fyrir dómi í dag í mál­inu en mbl.is hefur eftir henni að aðstæður Magnúsar hafi verið erf­iðar er hann var að alast upp: „Hann ólst upp við erf­iðar aðstæður. Hann átti erfitt í grunn­skóla og eign­að­ist ekki vini. Eft­ir grunn­skóla fer hann í skóla og reyn­ir eitt­hvað að vinna. Það ein­hvern­veg­in geng­ur ekki upp. Það sem ger­ist síðan er að það kem­ur Covid. Þá ein­angr­ast hann enn meira. Hann vill ekki fá spraut­ur. Hann er hrædd­ur og ein­angr­ar sig.“ Þá hafi systur hans slitið sam­skiptum við hann þegar hann var um 15, 16 ára því þær upp­lifðu óör­yggi í sam­skiptum við hann. Þá sagði Lára einnig að svo virð­ist sem for­eldrar Magnúsar hafi staðið í vegi fyrir því að hann fengi við­eig­andi hjálp þegar hann var að alast upp en Lára sagði hann sýna merki um væga ein­hverfu og per­sónu­leika­röskun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ