Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brynjar og Björn Leví rifust á Facebook: „Þú ert semsagt í hugtakaútúrsnúningum?

Brynjar og Björn Leví rifust á Facebook: „Þú ert semsagt í hugtakaútúrsnúningum?
Athugið, myndin er sam­sett.

Brynjar Níelsson og Björn Leví Gunn­ars­son áttu í rit­deilu á Facebook í gær. Ástæðan er færsla Brynjars um van­traust­s­til­lög­una á dóms­mála­ráð­herr­ann þar sem Brynjar seg­ist hafa verið „þving­aður í leik­húsið við Aust­ur­völl“.

„Ég hef aldrei verið sér­stak­lega hrif­inn af leik­húsi og allra síst þegar það er fært niður á Aust­ur­völl og þjóð­kjörnir full­trúar taka að sér stærstu hlut­verkin í end­ur­sýndum verkum. Ég var þving­aður í leik­húsið við Aust­ur­völl þegar end­ur­sýnt var verkið „Van­traust­s­til­laga á dóms­mála­ráð­herra“ í annað sinn á skömmum tíma. Ástæða sýn­ing­ar­innar núna var sú að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið þing­skap­ar­lög sam­kvæmt minn­is­blaði lög­fræð­ings á skrif­stofu Alþingis með því að neita Útlend­inga­stofnun um að afhenda þing­inu gögn.“ Svona byrjar færsla Brynjars. Heldur hann svo áfram og segir að minn­is­blaðið segi ekk­ert til um lög­brot Jóns Gunn­ars­sonar og þá full­yrðir Brynjar að Útlend­inga­stofnun hafi ekki neitað að afhenda gögn til þings­ins.

„Nú er það svo að minn­is­blaðið segir ekk­ert um meint lög­brot ráð­herra og svo er það alrangt að Útlend­inga­stofnun hafi neitað að afhenda gögn til þings­ins. Þingið fær öll umbeðin gögn sem til eru og yfir­lit um þau ef þess er óskað, en það á engan rétt til að krefj­ast þess að stofn­unin sinni efn­is­legri með­ferð mála í for­gangi fyrir þingið, eins og var ástundað áður en núver­andi ráð­herra tók við emb­ætti. Þegar stofn­unin hefur lokið lög­bundnu verk­efni að gera umsagnir vegna umsókna um rík­is­borg­ara­rétt er þing­inu afhent þær umsvifa­laust. Ástæða fyrir breyttu verk­lagi af hálfu ráðu­neyt­is­ins var sú að ekki mætti mis­muna fólki við afgreiðslu mála eftir því hvort sótt var um rík­is­borg­ar­rétt til Alþingis eða til Útlend­inga­stofn­unar. Þessi for­gangur þings­ins leiddi einnig til þess að veru­legur dráttur varð á úrlausn mála þeirra sem sóttu um rík­is­borg­ar­ar­rétt til stofn­unar, sem Umboðs­maður Alþingis hafði gert athuga­semdir við. Þetta breytta verk­lag er því í sam­ræmi við jafn­ræð­is­reglu í stjórn­ar­skrá og ákvæði stjórn­sýslu­laga. Þetta ætti öllum að vera ljóst, meira að segja þessum sér­kenni­legu lög­spek­ingum stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Stóra vanda­málið sem við ættum að vera að ræða er það að Alþingi er að taka að sér stjórn­sýslu­störf í stórum stíl og ákvarða um rík­is­borg­ara­rétt fram­hjá almenna kerf­inu með handa­hófs­kenndum og geð­þótta­legum hætti. Það var aldrei til­gang­ur­inn heldur að málin væru afgreidd af stjórn­völdum(ÚTL) og fyrir þingið kæmu ein­staka mál sem sér­stök rök ættu við um veit­ingu rík­is­borg­ar­réttar án þess að umsækj­andi upp­fyllti skil­yrði laga um að fá rík­is­borg­ara­rétt. Ég skil ekk­ert í því að Íslands­deild Transparency International hafi ekki gagn­rýnt þetta fyr­ir­komu­lag hjá þing­inu og látið til sín taka.

Þessi upp­á­koma í þing­inu kringum van­traust­s­til­lög­una er lýsandi dæmi fyrir störf stjórn­ar­and­stöð­unnar og gagns­leysi hennar. Þau er ekki í póli­tík sem snertir hags­muni þjóð­ar­innar. Nú eru víð­sjár­verðir tímar í efna­hags­málum og verð­bólga mikil. En þetta lið hefur ekk­ert fram að færa í þeirri glímu. Það er eins og það líti svo á að það hafi verið kosið á þing til að gæta hags­muna allra ann­arra en íbúa þessa lands. Og það er sér­stak­lega sorg­legt að sjá Viðreisn hoppa á Pírata­vagn­inn í póli­tík. Það er erfitt að taka af stað upp brekku í fjórða gír og verður enn erf­ið­ara þegar helsta mál­gagn þeirra hefur lagt upp laupana.“

Þessari færslu svar­aði fjöldi manns, flestir voru á því að Brynjar færi með rétt mál og ein­hver hrós­aði honum fyrir mál­efna­lega færslu. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata var ekki í þeim hópi.

„Mjög sætir útúr­snún­ingar hjá þér. Hvar fékkstu upp­skrift­ina?“ skrif­aði Píratinn í athuga­semd sem Brynjar svar­aði um hæl: „Þetta er kjarni máls­ins og þarf því engar upp­skriftir.“

Björn Leví var ekki lengi að svara með laga­bók­staf­inn með sér í liði: „nú?

Á 51. gr. ekki við af því að hún er í kafla um eft­ir­lit Alþingis? Þrátt fyrir að kafl­inn fjalli um eft­ir­lit Alþingis og almennar umræður?Getur Alþingi bara óskað eftir gögnum sem þarf ekki að „búa til“?Geta stjórn­völd bara ákveðið að bíða með að svara gagna­beiðni frá Alþingi þangað til það hentar þeim?

Hvaða aðili er með for­ræði á veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar með lögum sam­kvæmt stjórn­ar­skrá? Getur ráð­herra ákveðið það ein­hliða að breyta því?“

Þessu svar­aði hinn lög­lærði aðstoð­ar­maður: „Alþingi getur óskað eftir hvaða gögnum sem er. Það á hins vegar engan rétt á því að fram­kvæmda­valdið klári sín störf eftir 51. gr. þing­skap­ar­laga. Krafa um efn­is­lega . með­ferð fram­kvæmda­valds­ins á málum er alveg ótengt gagna­beiðni þings­ins. Umsögn er ekki hluti að gagna­beiðni þings­ins. Alþingi veitir rík­is­borgrarétt sam­kvæmt stjórn­ar­skrá. Þingið getur gert­það sem það vill með lögum og ráð­herra er ekk­ert að reyna breyta því. Þið eruð stífluð úr frekju. Mér finnst sér­kenni­legt að flokkur sem berst gegn spill­ingu er fremstur í flokki að vilja að þingið veiti rík­is­borg­ara­rétt eftir geð­þótta og órök­studd.“

Pírata­þing­mað­ur­inn spurði þá hvort Brynjar sé í hug­taka­út­úr­snún­ingum: „Þú ert sem­sagt í hug­taka­út­úr­snún­ingum? Af því að það er bara sagt gögn og upp­lýs­ingar í 51. gr. en ekki umsögn þá virki 51. greinin ekki?

Þú áttar þig á því hversu rosa­lega þunn rök það eru, ekki satt? Svona miðað við að það er ítrekað beðið um minn­is­blað skv. heim­ild 51. gr.Ertu þá að segja að stjórn­völd ætli að hætta að skila minn­is­blöðum sem beðið er um í krafti 51. gr (þriðj­ungur nefndar) út af því að það eru ekki gögn eða upp­lýs­ingar?

… ég hlakka mikið til þess að heyra lög­fræði­lega útúr­snún­inga um þetta.“

En aldrei komu lög­fræði­legu útúr­snún­ing­arnir frá Brynjari því hann virð­ist hafa kúp­lað sig út úr rifr­ild­unum. Skoð­ana­bræður hans hins vegar möld­uðu í móinn en það mun ekki vera rakið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ