Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“

Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Rebekka Guð­leifs­dóttir Mynd: Rebekka Guðleifsdóttir. Myndin hefur verið klippt til.

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi.

Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn og aftur að hækka stýri­vexti bank­ans. Óánægj­una má helst mæla á færslum á sam­fé­lags­miðlum sem og í mót­mælum sem haldin hafa verið á Aust­ur­velli und­an­farna laug­ar­daga.

„Ísland er á ein­tómum villi­götum, gott fólk. Það eru flestir sem raun­veru­legt vald hafa á þess­ari pínu­litlu eyju, að gera allt vit­laust, og kom­ast upp með það. Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli. Þetta stefnir í óíbúð­ar­hæft land. Með þessu áfram­haldi verður bara ríkt fólk hérna í ein­hverjum ljótum gler­hýsum, og turistar að ráfa um í rok­inu að leita sér að kaffi­bolla á 5000 kall, og batt­er­íið rekið afram ein­göngu af inn­fluttu vinnu­afli sem telur sig vera að koma sér á betri stað í líf­inu, en er þrælað út og litið niður á það i ofaná­lag,“ segir Rebekka meðal ann­ars í færsl­unni. Þar er henni einnig tíð­rætt um sið­blint fólk í valda­stöðum sem „kann ekki að skamm­ast sín.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Nú velti ég dálitlu fyrir mer. Ég, líkt og margir aðrir, hef löngum þjáðst af svoköll­uðum „imposter syndrome“. Á mörgum sviðum. Finnst ég ekki nógu flink að prjóna (þó svo peysur minar hafi vakið gríð­ar­lega mikla athygli og selst útum allan heim) Var að drep­ast úr kvíða i hvert sinn sem mér var falið að mynda brúð­kaup, þegar ég var enn að vinna við slíkt, þrátt fyrir að hafa aldrei klúðrað mynda­töku að neinu almenni­legu ráði. Er í augna­blik­inu með hálf­kláraða teikn­ingu sem beðið er eftir, og efast um getu mina til að klára hana, þrátt fyrir að hafa teiknað síðan ég man eftir mér og alltaf fengið mikið og ein­lægt hrós fyrir. Alltaf efast ég þó.

Gæinn á mynd­inni hins­vegar, með óað­finn­an­lega skeggið sitt, í rán­dýru jakka­föt­unum sínum og með hroka­fullt blik í augum. Hann er alveg örugg­lega ekki með imposter syndrome. Ekkert frekar en allt hitt ríka fína sið­blinda fólkið sem treður sér i valda­stöður, og fær að sitja þar eins lengi og því þókn­ast. Þrátt fyrir að sann­leik­ur­inn sé aug­ljós flestum: Yfir­þyrm­andi meiri­hluti ráða­manna hér á landi er að standa sig FÁRANLEGA ILLA í starfi sínu . Ef ég hefði ein­hvern tima klúðrað jafn feitt og sumt af þessu liði sem alltaf fær að vera áfram ríkt og flott og lifa í öðrum veru­leika en meiri­hluti íslend­inga, myndi ég skamm­ast min svo mikið að ég eig­in­lega get ekki sett það í orð.En sið­blint folk kann því miður ekki að skamm­ast sín.Ísland er á ein­tómum villi­götum, gott fólk. Það eru flestir sem raun­veru­legt vald hafa á þess­ari pínu­litlu eyju, að gera allt vit­laust, og kom­ast upp með það. Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli. Þetta stefnir í óíbúð­ar­hæft land. Með þessu áfram­haldi verður bara ríkt fólk hérna í ein­hverjum ljótum gler­hýsum, og turistar að ráfa um í rok­inu að leita sér að kaffi­bolla á 5000 kall, og batt­er­íið rekið afram ein­göngu af inn­fluttu vinnu­afli sem telur sig vera að koma sér á betri stað í líf­inu, en er þrælað út og litið niður á það i ofaná­lag.Staðan í dag er svona: Börn fá ekki leik­skólaplass. Ung­lingar eru komnir í hyldjupa lægð þung­lyndis og von­leysis ólíkt því sem áður hefur þekkst, og ganga um með hnífa og berja hvort annað til skemmt­unar. Fólk vinnur 2 vinnur en er að slig­ast úr fátækt, fast í leigu­mark­aðs­gildru. Búið að rústa heilsu­gæslu kerf­inu og heil­brigð­is­kerf­inu almennt. Og enn eru örfaar hræður hérna að murka lífið úr lang­reyð, sem er í ÚTRÝMINGARHÆTTU, í óþökk flestra sem hér búa. Af því bara.Ég mun aldrei skamm­ast mín fyrir að vera íslend­ingur, enda ber ég enga ábyrgð a þessu glóru­lausa ástandi. En ég er orðin ansi sorg­mædd yfir því hversu illa hefur verið farið með þetta und­urfagra fámenna land okkar þar sem gæti verið svo gott að búa.Ef sið­blindu, gráð­ugu eig­in­hags­muna­seggirnir myndu bara drull­ast úr stýr­is­hús­inu og leyfa skyn­sömu, heið­ar­legu og traustu folki að taka við skip­inu sem þeir hafa verið að kepp­ast við að sigla í strand með öllum hrok­anum sínum og frekju­gangi.En þeir munu aldrei víkja sjálf­vilj­ugir. Það er í valdi og verka­hring okkar, kjós­enda, að hætta að vera bull­andi með­virk eða áhuga­laus um póli­tík, hætta að dæsa „svona er þetta bara“ (því þetta VAR EKKI svona) og gefa skýr skila­boð um að þetta látum við ekki bjóða okkur lengur. Að þeir sem eiga minnst eiga altaf að skila meir og meir af því litla sem það fær, og í leið gefa afslátt af sjálf­sögðum mann­rétt­indum sínum, meðan rík­asta fólkið heldur afram að græða meiri pen­ing en það veit hvað það á að gera við.Það ger­ist ekki nema fólk hætti að kjósa – ítrekað – sið­blint fólk sem gæti ekki verið meira sama um hinn almenna borg­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ