Egill Helgason hefur beðið Kristján Hreinsson afsökunar á sínum þætti í pistlamálinu sem upp kom um daginn. Skáldið fyrirgefur honum fúslega og birtir vísu af tilefninu.
Í morgun skrifaði Skerjafjarðaskáldið Kristján Hreinsson færslu á Facebook sem hann kallar Orðræða í öngstræti. Þar segir hann að Egill Helgason hafi beðið hann afsökunar eftir að Kristján skrifaði færslu á Facebook þar sem hann talaði um þá tilgátu sína að umræðan væri á villigötum sem sannaðist smátt og smátt. Tók hann ummæli Egils sem dæmi í færslunni þar sem hann segir Egil hafa verið að reyna að verja hann en hafi notað óheppilegt orðalag og gert lítið úr honum sem skáldi.
Kristján segist hafa nú eytt færslunni því honum hafi þótt ómaklega að Agli vegið. Af tilefninu birti skáldið vísu sem hann orti til Egils.
Færsluna má lesa hér að neðan:
„ORÐRÆÐA Í ÖNGSTRÆTI
Í gær gerði ég mér það að leik að sýna enn og aftur að tilgáta mín um umræðu á villigötum er smátt og smátt að sanna sig sjálf. Ég tók sem dæmi ummæli Egils Helgasonar, þar sem hann var reyndar að reyna að verja mig en notaði óheppilegt orðalag og gerði reyndar lítið úr mér sem skáldi. Nú hef ég eytt þeirri færslu, fyrst og fremst vegna þess að ómaklega var að Agli vegið. Ég ýtti af stað umræðunni með því að draga fram það sem sjá má sem niðrandi ummæli. Það sem síðan gerðist fór langt yfir strik velsæmis. Egill er ágætur, litríkur og skeleggur maður, jafnvel þótt hann vilji meina að ég sé ekkert merkilegt skáld.Hér hefur það gerst að Egill Helgason hefur beðist afsökunar og ég fyrirgef honum fúslega. Um afsökunarbeiðnina orti ég vísu til Egils:Þín beiðni virkjar vopnahléog veldur engum tregaen þótt hún rýr í roði séhún reynist ágætlega.“































Athugasemdir