Leitin að Sigrúnu Arngrímsdóttur hefur enn engan árangur borið. Skipulögð leit hefst að nýju eftir helgi.
Enn hefur ekkert spurst til Sigrúnar Arngrímsdóttur, sem er á 52 aldursári, en leit hófst að henni 13. júní síðastliðinn, eftir að bifreið hennar fannst á Suðurstrandarvegi.
Samkvæmt upplýsingum sem Mannlíf fékk frá lögreglunni á Suðurnesjum hefur leitin ekki enn borið árangur og engar vísbendingar, svo sem munir í hennar eigu, hafa fundist.
„Gert er ráð fyrir að skipulögð leit hefjist að nýju eftir næstu helgi að öllu óbreyttu,“ segir í svari lögreglunnar til Mannlífs.
Lögreglan segir að leitin hafi stax hafist 13. júní. „Og hafa tugir björgunarsveitamanna ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar komið að leitinni á svæði allt frá Eyrarbakka að Krísuvíkurbergi. Leit hefur haldið áfram síðustu daga.“
Leitin hefur verið ansi umfangsmikil, samkvæmt svari lögreglunnar:
„Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið notuð, drónar, bátar björgunarsveita og fjörur gengnar. Leitað var í gær frá Svörtuloftum vestur að Stóru-Sandvík. 56 björgunarsveitarmenn komu að leitinni í gær og voru drónar og slöngubátar notaðir við leitina og fjörur gengnar.“
En hafa ábendingar borist vegna hvarfsins?
„Ábendingar hafa borist sem ekki hafa skilað árangri við leitina,“ segir í svari lögreglunnar.
Lögreglan ítrekar að ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hennar að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444 2299 eða neyðarlínuna 1-1-2































Athugasemdir