Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Svanur vill leggja niður strandveiðar: „Vissu varla hver þeir voru meðan leitað var að þeim.““

Svanur vill leggja niður strandveiðar: „Vissu varla hver þeir voru meðan leitað var að þeim.““
Svanur Guð­munds­son skrif­aði pistil um strand­veiðar. Myndin er sam­sett

Í gær var smá­bátum lagt um allt land eftir að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra gaf út að ekki væri frekara svig­rúm til að bæta við veiði­heim­ildum til strand­veiða. Í kjöl­farið hefur Land­sam­band smá­báta­eig­anda skorað á Svandísi að auka veiði­heim­ildir. Boðað hefur verið til mót­mæla á við Hlemm í Reykja­vík, klukkan 12 á laug­ar­dag­inn næst­kom­andi.

Ekki eru þó allir á móti tak­mörk­unum Svan­dísar og þeirra á meðal er Svanur Guð­munds­son, sonur Guð­mundar heit­ins Run­ólfs­sonar. Svanur er fram­kvæmda­stjóri Bláa hag­kerf­is­ins. Í pistil sem birt­ist á vísi.is gerir Svanur að því skóna að kvót­anum sem ráð­stafað er til strand­veiðar smá­báta­eig­anda sé betur varið hjá stór­út­gerð­inni:

„Það má einnig hafa í huga að þann afla sem þessir 750 bátar drógu inn hefði verið hægt að taka inn á þeim 42 tog­urum sem eru skráðir sem slíkir á aðeins 8 dögum með mun hag­kvæm­ari og örugg­ari hætti en gert er með smá­bátum.“

Gagnrýni Svans er óvægin og vill hann meina að ekki sé á allra færi að stunda slíkar veiðar:

„Það vita þó ekki allir að það er ekki á færi ann­arra en efn­aðra manna í vel laun­uðum störfum að hefja slíkar sport­veiðar því fæstum dugar til við­ur­væris að vinna bara 40 daga á ári. Meðal smá­báta­sjó­manna eru því fyrr­ver­andi emb­ætt­is­menn og fyr­ir­tækja­eig­endur sem láta þarna draum sinn ræt­ast.“

Þá bendir hann á mann­tjón og slysa­hættu af smá­báta­veiðum séu tölu­verðar meðal ann­ars sökum hás ald­urs sjó­manna og bendir á að ein­hverjir bátar hafi verið dregnir í land fyrstu daga ver­tíð­ar­innar:

„Bless­un­ar­lega urðu ekki mann­tjón við veið­arnar þetta árið en ein­hverjir bátar voru dregnir í land fyrstu dag­anna. Hjá Rann­sókn­ar­nefnd sjó­slysa er ara­grúi atvika skráður, sumir sjó­menn­irnir voru ald­ur­hnignir mjög og vissu varla hver þeir voru meðan leitað var að þeim.“

Svanur vill meina að strand­veið­arnar, sem hann kallar ólympískar veiðar, bitni illa á fisk­verk­un­ar­fólki og hafi vinn­una af 600 – 800 manns vinn­una sem starfi á 42 tog­urum:

„Gera má ráð fyrir að það hafi verið í heild­ina 750-850 manns sem stund­uðu veiðar á smá­bátum í þessa 40 daga sem veið­arnar stóðu yfir. Um leið má segja að tekin sé vinna af 600 til 800 manns sem eru á þessum 42 tog­urum. Jafn margt fisk­verka­fólk þarf í landi til að vinna fisk­inn af smá­bát eða tog­ara. Aftur á móti er vinnan skipu­lögð út árið hjá vinnslu sem er með tog­ara til hrá­efn­is­öfl­unar og fær fisk­verk­un­ar­fólk frí í júlí en ekki ef afl­inn er tek­inn á smá­bát.“


Hér má lesa pistil Svans í heild:

Nýlokin er ólympískum veiðum smá­báta sem er tíma­bil þar sem fal­legir hrað­fisk­bátar setja mark sitt á nokkrar hafnir lands­ins. Um leið birt­ast fal­legar myndir af þessum drauma­heimi smá­báta­sjó­manns­ins sem siglir um í veð­ur­blíð­unni eins og lands­menn hafa notið síð­ustu daga. En það getur verið fróð­legt að skoða nokkrar töl­fræði­legar sviðs­myndir í kringum þessa drauma­ver­öld.

Alls lönd­uðu 750 bátar nærri 15 þús­und sinnum, sam­tals yfir 11 þús­und tonnum af fiski á þessum 40 dögum sem þeir höfðu til veiða. Það vita þó ekki allir að það er ekki á færi ann­arra en efn­aðra manna í vel laun­uðum störfum að hefja slíkar sport­veiðar því fæstum dugar til við­ur­væris að vinna bara 40 daga á ári. Meðal smá­báta­sjó­manna eru því fyrr­ver­andi emb­ætt­is­menn og fyr­ir­tækja­eig­endur sem láta þarna draum sinn ræt­ast. Svo eru hinir sem bíða eftir að strand­veiðar hefj­ist og bölva þegar 10 þús­und tonna þorsksafla­markið klár­ast. Þeir eru ekki að leika sér.

Bless­un­ar­lega urðu ekki mann­tjón við veið­arnar þetta árið en ein­hverjir bátar voru dregnir í land fyrstu dag­anna. Hjá Rann­sókn­ar­nefnd sjó­slysa er ara­grúi atvika skráður, sumir sjó­menn­irnir voru ald­ur­hnignir mjög og vissu varla hver þeir voru meðan leitað var að þeim. Það má einnig hafa í huga að þann afla sem þessir 750 bátar drógu inn hefði verið hægt að taka inn á þeim 42 tog­urum sem eru skráðir sem slíkir á aðeins 8 dögum með mun hag­kvæm­ari og örugg­ari hætti en gert er með smá­bátum.

Uppsett afl í opnum bátum hér á landi er 84 Mw en til sam­an­burðar er upp­sett afl tog­ara hér við land 74 Mw. Gera má ráð fyrir að ein­hverjir smá­báta­sjó­menn hafi náð inn yfir 10 millj­ónum króna á þessum 40 dögum en sumir þurfa að leggj­ast í við­gerðir á sínum bátum og hafa að öllum lík­indum lítið eftir þegar skatt­ur­inn og við­halds­reikn­ing­ur­inn er greiddur.

Gera má ráð fyrir að það hafi verið í heild­ina 750-850 manns sem stund­uðu veiðar á smá­bátum í þessa 40 daga sem veið­arnar stóðu yfir. Um leið má segja að tekin sé vinna af 600 til 800 manns sem eru á þessum 42 tog­urum. Jafn margt fisk­verka­fólk þarf í landi til að vinna fisk­inn af smá­bát eða tog­ara. Aftur á móti er vinnan skipu­lögð út árið hjá vinnslu sem er með tog­ara til hrá­efn­is­öfl­unar og fær fisk­verk­un­ar­fólk frí í júlí en ekki ef afl­inn er tek­inn á smá­bát.

Höfundur er fram­kvæmda­stjóri Bláa hag­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ