Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýtt Barbie-æði í vændum: „Ég er bandbrjálað spenntur“

Nýtt Barbie-æði í vændum: „Ég er bandbrjálað spenntur“
Skjót­skot úr Barbie-mynd­inni

Íslenska þjóðin er að titra úr spenn­ingi fyrir nýju Barbie-mynd­inni. Mannlíf ræddi við Tómas Val­geirs­son, fjöl­miðla­mann og bíónörd, um eft­ir­vænt­ing­una og mynd­ina

Barbie kvik­myndin verður frum­sýnd á Íslandi 20. júlí en leik­konan Margot Robbie leikur Barbie en hún er þekk­ust fyrir leik sinni í kvik­mynd­inni Wolf of Wall Street og sem per­sónan Harley Quinn í DC-kvik­mynda­heim­inum. Ryan Gosling leikur aðal­karl­hlut­verkið, en það er per­sónan Ken. Kvik­myndin hefur verið í bígerð síðan árið 2015 en upp­haf­lega stóð til að Amy Schumer myndi leika Barbie og um tíma var Anne Hathaway orðuð við hlut­verkið. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Greta Gerwig leik­stýrir mynd­inni og skrifar, ásamt Noah Baumbach, en hún þykir ein af bestu leik­stjórum heims­ins í dag. Hún hefur gert mynd­irnar Little Women og Lady Bird en báðar mynd­irnar fengu Ósk­ar­stil­nefn­ingu fyrir besta hand­rit. Gerwig skrif­aði þær myndir einmitt sjálf.

Gífurleg spenna og áhugi, bæði hér­lendis og erlendis, er fyrir Barbie-mynd­inni en þykir aug­lýs­inga­her­ferð mynd­innar hafa verið ein sú besta sem sést hefur í áraraðir. Sumir hafa spáð að nýtt Barbie-æði muni ganga yfir heim­inn í kjöl­far mynd­innar hjá ungum sem öldnum

„Ég ólst upp sem Spice Girls aðdá­andi og bíófík­ill en í senn sem miðju­barn umkringdur sjö hálf­systk­inum. Þetta þýðir meðal ann­ars það að við mér lá ógrynni af leik­föngum; frá Turtles kalla til Rambo fígúra og að sjálf­sögðu laum­uð­ust nokkrar Barbie með. Ég djóka stundum með það að þegar ég lék mér að Barbie-dúkkum í æsku að í mínum leik hafi hún alltaf haldið fram­hjá Ken með Action Man. Fannst það ein­hvern veg­inn meika mest ‘sense’, fyrir utan það að Ken var aldrei til á mínu heim­ili,“ sagði Tómas um upp­lifun sína á Barbie í gegnum árin.

Tómas er fullur af spennu fyrir mynd­inni og telur að hún verði fín til­breyt­ing. „Ég er band­brjálað spenntur fyrir þess­ari Barbie mynd. Leik­ara­valið og tónn­inn virð­ist vera algjör negla og ég er mik­ill aðdá­andi Gretu Gerwig sem leik­stjóra með meiru. Hef alla trú á að hún mat­reiði eitt­hvað hresst og gúrme úr þessu, jafn­vel eitt fers­kasta sum­ar­bíó til margra ára. Fín til­breyt­ing líka frá átt­ræðum eða sex­tugum karlpungum að stökkva á milli lesta.“ 

Kvik­myndin Opp­en­heimer, í leik­stjórn Christopher Nolan, kemur út á sama degi og Barbie og hefur fólk á inter­net­inu mikið spáð í hvor myndin verði vin­sælli.

„Það er klár­lega ‘hæp’ fyrir mynd­inni en enn­fremur finnst mér brill hvernig er búið að sjóða saman spenn­ingnum fyrir Barbie og Opp­en­heimer í þessa ‘Bar­ben­heimer’ maníu. Við erum svo vön því að aðeins ein bíó­mynd fái að kom­ast að í einu á hverri helgi sum­ars en þarna hafa netheimar sýnt að það sé til pláss fyrir fleiri í sömu röð. Barbie verður klár­lega vin­sælli myndin; aðgengi­legri, hress­ari og sam­einar bæði bíónör­dana og almenn­ing. Auk þess er ‘brandið’ of sterkt til að hafa ekki yfir­hönd­ina. Ég get líka farið á Barbie með 11 ára dóttur minni til dæmis, en get ekki sagt hið sama um nýjasta stór­virki Nolans. En hvor þeirra verður betri á sinn veg á hins vegar eftir að koma í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ