Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Handboltastjarna sem þarfnast orkudrykkja: „Klæði upp og niður eftir þörfum“

Handboltastjarna sem þarfnast orkudrykkja: „Klæði upp og niður eftir þörfum“
Hafdís Shizuka Iura er kenn­ari og hand­bolta­stjarna sem gerir pít­sa­sóu og drekkur orku­drykki

Hafdís Shizuka Iura er 29 ára Íslend­ingur, Japani og Þjóð­verji. Hafdís er grunn­skóla­kenn­ari við Álfta­mýr­ar­skóla og hand­bolta­leik­maður með Víkingi. Hafdís er í sam­búð með Andra Þór Helga­syni, hand­bolta­manni, saman eiga þau Sól Akari og bón­us­barnið Elmu Láru og búa þau saman í Foss­vog­inum. Hand­bolti er stór hluti af hennar lífi en hún hefur æft hand­bolta frá sex ára aldri og þjálfað frá 19 ára aldri. Hafdís er upp­al­inn Framari sem seg­ist vera með blátt hjarta. Hafdís er neyt­andi vik­unnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já geri það sér­stak­lega með nauð­synja­vörur eins og mat­vörur. Versla oft­ast í Bónus en fer svo í Krónuna ef mig vantar eitt­hvað sem fæst ein­ungis þar. Ég er síðan svaka­lega metn­að­ar­full í að finna besta verðið á öðrum vörum og þjón­ustu sem ég kaupi og get eytt alltof löngum tíma í að flakka á milli vef­síðna. En það borgar sig alltaf að lokum og hefur sparað mér marga þús­und­kalla í gegnum tíð­ina. Ég er samt líka til­búin að borga aðeins hærra verð fyrir vörur og þjón­ustu þegar aðrir þættir spila inn í, til dæmis þjón­ustu­lund, þæg­indi og stefna fyr­ir­tækja.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Fyrst og fremst með því að gera inn­kaupa­lista áður en ég fer í búð­ina og versla í lág­vöru­versl­unum. Það er magnað hvað endar í körf­unni þegar list­inn er ekki til staðar. Ég kaupi frosnar vörur sem eru tölu­vert ódýr­ari og ég finn ekki mun á flestu, enda ekki Gordon Ramsey. En hef komið auga á mik­inn verð­mun á til­búnum vörum og reyni frekar að mart­reiða frá grunni. Er orðin svaka­lega góð í að gera pizzu- og pastasósur! En ann­ars er ég búin að finna ágætan takt í að velja ákveðnar mat­vörur frá hinum og þessum vöru­merkjum og hef þá betur til­finn­ingu fyrir verði og verð­breyt­ingum.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já það geri ég – en mætti að sjálf­sögðu bæta. Ég fór þó ekki að huga almenni­lega að því fyrr en við fluttum í okkar eigin hús­næði og síðar þegar ég eign­að­ist barn. Þá fór ég að skoða síður með not­uðum vörum og þar er mjög oft hægt að finna alls kyns hluti sem eru í topp­standi og á lægra verði en nýjar vörur. Mamma er líka með fullan lager af alls kyns dóti heima hjá sér og ef mig vantar eitt­hvað þá hringi ég í hana fyrst. Yfir­leitt á hún það til! Annars er ég að finna mér nýja ástríðu í líf­inu og það er að gera upp hús­gögn og annað. Ég lakk­aði eld­húsinn­rétt­ing­una okkar og hef verið að dunda mér með gamlar kommóður og hirslur. Ef ég ætti að gefa eitt ráð varð­andi end­ur­nýt­ingu er að fólk sé dug­legra að fá lánað, skipt­ast á hlutum, spyrj­ast fyrir um eða bjóða fram það sem ekki er not fyrir lengur.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Gæði umfram magn. Með mat­vörur er það þó að spara eins og ég get en leyfi mér líka af og til að kaupa meiri gæði. Ég kaupi miklu minna af fatn­aði í dag en ég gerði áður. Núna á ég bara ákveð­inn grunn­fatnað sem vinn með og klæði upp og niður eftir þörfum. Ég spái mikið í nota­gildi þegar ég fjár­festi í flík og reyni eftir bestu getu að kaupa end­ing­ar­góðar vörur. Sömu­leiðis huga ég mikið að nota­gildi þegar ég kaupi gjafir. Ég elska sjálf að fá gjafir sem ég sé mikil not fyrir. Mér finnst alltaf góð hug­mynd að gefa upp­lifun í gjöf – það þarf ekki alltaf að vera hlutur.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég hugsa að það væri barna­vörur. Þetta er mitt fyrsta barn og ég á stundum erfitt með að átta mig á því hvað er nauð­syn­legt og hvað ekki. Ég hef stundum keypt föt og vörur sem við höfðum svo lítil sem engin not fyrir. En ég er þó dug­leg að gefa það áfram í von um að ein­hver nýti það betur. Svo má einnig nefna orku­drykki. En eins og staðan er núna er einn slíkur oft það sem bjargar þreyttri konu og ég er ekki alveg til­búin að gefa það frá mér alveg strax.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já hún gerir það. Ég lifi samt ekki hinum full­komna lífs­stíl hvað varðar það mál­efni en ég er með­vituð og reyni að gera mitt besta til að skilja eftir eins lítið kolefn­is­spor og ég get. Við þurfum öll að taka þátt í breyttum lífs­háttum sem snúa að vel­ferð nátt­úr­unnar. Það er betra að gera eitt­hvað en ekk­ert! Hins vegar vona ég að stjórn­völd og fleiri fyr­ir­tæki fari að grípa til frek­ari aðgerða í stað þess að ábyrgðin liggi ein­ungis hjá ein­stak­lingum.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég vona að við sjáum fram á bjart­ari tíma hvað varðar verð­lag og sendi hlýjar kveðjur út í „kosmós­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ