Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Saga úr lífi Eflingar-konu: „Við hljótum öll að bíða spennt eftir næsta frekjukasti auðvaldsins“

Saga úr lífi Eflingar-konu: „Við hljótum öll að bíða spennt eftir næsta frekjukasti auðvaldsins“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir sögu úr lífi Eflingar-konu í nýrri færslu á Facebook.

Í pistl­inum lýsir hún því hvernig Eflingar-konan þurfi að þræla myrkr­anna á milli en neyð­ist svo til að greiða um 70 pró­sent af tekjum sínum í leigu. Segir hún kon­una hafa ein­falt hlut­verk í sam­fé­lag­inu árið 2023: „Hún á vinna, hún á að hlýða og hún á að borga“. Þá tekur hún til töl­fræði um stöðu Eflingar-kon­unnar í dag. Þar kemur meðal ann­ars fram að um 55 pró­sent Eflingar-kvenna geti ekki mætt 80.000 óvæntum útgjöldum, um 27 pró­sent þeirra hafi ekki efni á jóla- og afmæl­is­gjöfum handa börnum sínum og sama pró­sentu­tala hefur ekki efni á nauð­syn­legum fötum handa börnum sínum. Að lokum segir hún að fólk hljóti að vera spennt fyrir kom­andi hausti en þá renna kjara­samn­ingar út en hún segir meðal ann­ars: „Við hljótum öll að bíða spennt. Spennt eftir næsta frekjukasti auð­valds­ins“

Pistil­inn má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Saga úr lífi Eflingar-konu:

Full­orðin kona, aðflutt. Búsett lengi á Íslandi. Upp­fyllir öll skil­yrði um „góða“ inn­flytj­and­ann; talar frá­bæra íslensku og vinnur fulla vinnu sem ómissandi starfs­kraftur í umönn­un­ar­starfi. Er ein­stæð móðir. Föst á leigu­mark­aði. Búin að fá til­kynn­ingu um að leigan hækki um að allt að 30% næstu mán­að­ar­mót. Hún getur ekki annað en „borgað og hlýtt“. Hún getur ekki lagt fyrir og mögu­leikar hennar um að kom­ast í eigin íbúð verða minni og minni við hver mán­að­ar­mót. Þó að hún standi í skilum við leigu­sala og sýni fram á að hún geri allt til að tryggja sér og sínum þak yfir höf­uðið á hún ekki séns á því að kom­ast í gegnum greiðslu­mat. Þrátt fyrir að 70% af ráð­stöf­un­ar­tekjum hennar fari í að greiða leigu. Þrátt fyrir að vera góður og gegn þjóð­fé­lags­þegn, ein af þeim sem að íslenskt sam­fé­lag þarf á að halda ein­fald­lega til að geta rekið grund­vall­ar­þjón­ustu vel­ferð­ar­sam­fé­lags­ins. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir hitt, þrátt fyrir öll orð íslensk­unnar og allt staf­rófið.

Hlutverk þess­arar Eflingar-konu í sam­fé­lagi okkar á því herr­ans ári 2023 er ein­falt: Hún á vinna, hún á að hlýða og hún á að borga. Og ef að hún dirf­ist að standa með sjálfri sér og krefj­ast þess að til­veru­skil­yrði hennar séu bætt, ef hún dirf­ist að berj­ast, ef hún dirf­ist að nýta lögvarin grund­vall­ar­mann­rétt­indi sín og gera það sem þarf til að eiga mögu­leika á að öðl­ast betra líf gerir fram­ferði hennar með­limi borg­ara­stétt­ar­innar veika af hryll­ingi. Samkvæmt helsta post­ula borg­ara­stétt­ar­innar, fyrrum fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, fyrrum félags­mála­ráð­herra Við­reisnar og eilífum föður Jafn­launa­vott­un­ar­innar (nýj­ustu inn­leið­ing­unni á „íþyngj­andi“ hug­mynda­fræði­legu reglu­verki stjórn­valda; fyrir þau sem að hafa gaman af yfir­gengi­lega þver­sagna­kenndu eðli kap­ít­alista er það skemmti­leg skemmti­saga; í það minnsta hjart­næm tragík­ó­medía) er bar­átta Eflingar-kon­unnar fyrir betra lífi ekk­ert annað en and-lýð­ræð­is­legt lög­brot. En slík hegðun þekk­ist ekki í íslenskum efri lögum sam­fé­lags­ins.

Stað­reynd úr lífi Eflingar-konu: Þrátt fyrir að vera ómissandi kona, ein af þeim konum sem að gerir öðrum kleift að stunda vinnu með því rog­ast um með umönn­un­ar­kerfin okkar á sínum konu-herðum á hún ekk­ert inni hjá stjórn­völdum. Ekkert inni hjá leigu­söl­unum. Ekkert inni hjá bank­anum. Ekkert inni hjá fínum mönnum. Ekki einu sinni þeim fínu mönnum sem meyrir og mjúkir af kven-vin­semd gleymdu því sem snöggvast að þeir hata ekk­ert meira en afskipti stjórn­mál­anna af kjara­málum og útbjuggu heilan laga­bálk um jöfn laun og sér­stakt launa-stjórn­unar-vott­un­ar­kerfi þegar þeir um stund dund­uðu sér við stjórn­mála-frama. Nei, allra síst þeim. Enda er Eflingar-konan lág­launa­kona, ekki hálauna­kona. Hún er verka­kona, vinnu­kona, „hlýddu og borg­aðu“ kona. Og það á hún að vera alla sína ævi, alla sína strit­andi verka­konu-ævi.

Staðan í lífi Eflingar-konu: Fríið er búið. Nú hefst biðin eftir næstu mán­að­ar­mótum. Nú er konu-heil­inn á yfir­snún­ingi við að reikna hvernig í ósköp­unum verður hægt að láta hlut­ina ganga upp. Hvernig verður það hægt? Hafið þið ein­hver svör við því? Ekki veit ég það. Samkvæmt nið­ur­stöðum Vörðu um stöðu Eflingar-fólks geta 55,4% Eflingar-kvenna ekki mætt óvæntum 80.000 króna útgjöldum. 27,8% Eflingar-kvenna hafa ekki efni á afmælis eða jóla­gjöfum handa börnum sínum. 27,2% Eflingar-kvenna hafa ekki efni á nauð­syn­legum klæðn­aði fyrir börnin sín. 53,8% Eflingar-kvenna búa við þunga byrði af hús­næð­is­kostn­aði. Þær vinna og vinna en launin þeirra eru í raun aldrei þeirra, nei, með­limir eigna­stétt­ar­innar gera þau að mestu upp­tæk um hver mán­að­ar­mót. Í skiptum fyrir þau grund­vall­ar­mann­rétt­indi sem að húsa­skjól hlýtur að vera. Gera þau upp­tæk með sam­þykki og vel­þóknun stjórn­mála­stétt­ar­innar. Sem er auð­vitað fyrir löngu búin að afmá öll mörk á milli lýð­ræðis og kap­ít­al­isma og vinnur ein­ungis fyrir hin ríku. Á kostnað Eflingar-kon­unnar.

Verður er verka­mað­ur­inn launa sinna? Nei, ekki í Reykja­vik. Í Reykja­vík er leigusal­inn verð­ugur launa verka­kon­unnar.

Framtíð Eflingar-kon­unnar: Hver er hún? Hvað ger­ist í haust og vetur? Við hljótum öll að bíða spennt. Spennt eftir næsta frekjukasti auð­valds­ins. Hverju finna þau upp á? Spennt eftir við­brögðum stjórn­mála­stétt­ar­innar; felur, flótti, forðun, fárán­leg­heit? Allt þetta; fundir í útlöndum? En allra spennt­ust hljótum við að bíða eftir afstöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar: Munu menn geta gert hið eina rétta í stöð­unni? Munu menn geta staðið með Eflingar-kon­unum, verka­konum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fórn­ar­lömbum leigu­mark­að­ar­ins, fórn­ar­lömbum lög­legrar mán­að­ar­legrar eigna­upp­töku. Munu menn geta við­ur­kennt að ekk­ert er á þessum tíma­punkti mik­il­væg­ara en að berj­ast fyrir þessar konur, arð­rændar verka­konur sam­fé­lags okkar, sýna mann­dóm og berj­ast fyrir þær en auð­vitað fyrst og fremst með þeim. Berjast og bakka ekki við fyrsta bökk­unar-tæki­færi. Berjast fyrir Eflingar-kon­una og um leið gera hana að bar­áttu-fyr­ir­mynd. Fara alla leið. Munu hálauna-karlar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar gera það? Vilja þeir gera það? Á Eflingar-konan eitt­hvað inni hjá þeim?

Eflingar-konan akkúrat núna: Hún horfir í kringum sig og sér að sam­fé­lagið sem hún býr í og heldur uppi, lætur sig hana engu varða. Kannski vill sam­fé­lagið halda henni jað­ar­settri og fátækri? Kannski er þög­ult sam­þykki fyrir því að best sé ein­fald­lega að fórna henni fyrir hags­muni þeirra ríku og inn­fæddu? Það er sífellt meira sem bendir til þess. Hún veltir því fyrir sér hvort að hægt verði að láta rík­is­stjórn­ina sjá hana, sjá aðstæður hennar, við­ur­kenna að það er ekk­ert annað en ógeðs­legt að láta konu strita til þess eins að geta tryggt sér þak yfir höf­uðið. Að láta full­orðna konu lifa við stöðugar fjár­hags­á­hyggjur vegna sið­lauss leigu­mark­aðar. Hún heyrir enda­laust þvaður og engar efndir. Hún vonar að eitt­hvað breyt­ist en hún er líka full af von­brigðum. Hún horfir á verka­lýðs­hreyf­ing­una og hugsar með sér: Kannski geta þeir staðið með okkur. Kannski geta þeir staðið með Eflingar-konum. Kannski vilja þeir berj­ast með okkur. Kannski. Vonandi. Því að hún getur ekki meira. Það er ekki hægt að biðja hana um að fórna meiru. Það er kom­inn tími til að hennar hags­munir verðir settir í fyrsta sæti. Eflingar-konan á ekk­ert minna skilið en það. Það eru ein­fald­lega hennar kvenna-mann­rétt­indi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ