Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna getur ekki þagað lengur: „Svo þykjast Samtökin 22 ekki vera transfóbísk“

Anna getur ekki þagað lengur: „Svo þykjast Samtökin 22 ekki vera transfóbísk“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir svarar Sam­tök­unum 22 fullum fetum í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook.

Anna Krist­jáns­dóttir, sem er senni­lega þekktasta trans kona Íslands, skrif­aði færslu í morgun á Facebook þar sem hún tjáir sig um trans­fó­bíu. Er um að ræða fram­hald af því sem hún byrj­aði á um dag­inn en þá tal­aði hún um það sem hún kallar „trans­fó­bíu Sam­tak­anna 22“ en Anna seg­ist hafa verið beðin um að tala ekki um að sam­tökin ætl­uðu sér að halda „trans­fó­bíska ráð­stefnu“ í Reykja­vík, sama dag og gleði­gangan var haldin. „Og ég varð við því, þótt helst hefði ég viljað mæta á stað­inn og láta þau heyra það frá fyrstu hendi.“

Sjá einnig: Formaður meintra hat­urs­sam­taka svarar Önnu Krist­jáns: „Ágrein­ingur er ekki hatur“

Anna segir síðan frá ungri íslenskri trans konu sem hún hitti á Tenerife um dag­inn en henni hefði hún kynnst er konan var trans barn. „Hún er nú komin vel yfir tví­tugt, gull­fal­leg og bros­andi, geislandi af lífs­ham­ingju, er í háskóla og á sinn kærasta og allt leikur í lyndi. Hún er að mestu búin að ljúka flestum eða öllum aðgerðum, en sem­sagt, hún er þar sem hún vildi kom­ast, þökk verið kyn­þroskatefj­andi lyfjum,“ skrif­aði Anna og sagði að stúlkan hefði fengið slík lyf þar til hún var orðin nógu gömul til að ákveða hvað hún vildi. Bætti svo við: „Hér skulum við athuga eitt. Kyn­þroska­hamlandi lyf tefja kyn­þrosk­ann og eru aft­ur­kræf, en án hans kemur kyn­þrosk­inn á fullu og hann er óaft­ur­kræfur öfugt við kyn­þroska­hamlandi lyf.“

Því næst snýr Anna orðum sínum að Sam­tök­unum 22. „Samtökin 22 segj­ast ekki hafa neitt á móti trans­fólki, en hvernig á að túlka orð eins með­lims umræddra sam­taka er hann vildi tjá sig um orð fyrrum for­manns Trans-Ísland, Uglu Stefaníu sem lauk aðgerð­ar­ferli fyrir meir en 11 árum síðan. Það sem hann sagði var ein­fald­lega þetta:

Friðgeir Sveins­son Hvað heitir hann aftur þessi ?“ Þá lýsir Anna hverju hún sjálf hefur þurft að ganga í gegnum sem trans kona. „Ég þarf vart að taka fram að ég hefi oft fengið við­líka skila­boð, verið lamin auk þess sem fólk hefur hrint mér, keyrt yfir tærnar á mér, hellt yfir mig úr glösum sínum á veit­inga­stöðum og margt fleira, en sem betur fer hefur flest fólk séð að sér, en það er greini­legt að sumir eru enn fastir i gamla far­inu með sína trans­fó­bíu, þar á meðal með­limir Sam­tak­anna 22 sem virð­ast ala á trans­fó­b­í­unni.“

Í lokakafla færsl­unnar seg­ist Anna hafa verið löngu hætt í bar­áttu sinni fyrir rétt­indum trans­fólks en „þegar Samtökin 22 sem virð­ast ein­blína á hatur sitt gagn­vart trans­fólki í stað þess að ein­blína á bar­áttu fyrir rétt­indum sam­ky­hneigðra láta í sér heyra, get ég ekki þagað lengur.“

Færsluna má lesa hér í heild sinni:

Dagur 1463 – Enn um trans­fó­bíu.

Um dag­inn fjall­aði ég aðeins um trans­fó­bíu Sam­tak­anna 22, en var beðin um að sleppa því að nefna það að þau ætl­uðu að halda trans­fó­bíska ráð­stefnu í Reykja­vík sama dag og gleði­gangan (af hverju sama dag?) og ég varð við því, þótt helst hefði ég viljað mæta á stað­inn og láta þau heyra það frá fyrstu hendi.

Um dag­inn hitti ég unga íslenska konu hér á Tenerife sem var á ferð hingað ásamt fjöl­skyldu sinni. Ég kynnt­ist henni sem trans­barni fyrir rúmum fimmtán árum síðan, en móðir hennar hefur stutt hana alla tíð í þrá sinni að fá að vera það sem hún vissi alla tíð og höfum ég og móðir hennar þekkst jafn­lengi, enda kynnt­umst við vegna þessa. Ég hafði ekki hitt stúlk­una í nokkur ár fyrr en við hitt­umst um dag­inn og af því að ég vil ekki hnýs­ast of mikið og spyrja fólk hvernig gengi, vissi ég ekki hvernig henni gengi fyrr en ég hitti hana ásamt fjöl­skyldu sinni.

Hún er nú komin vel yfir tví­tugt, gull­fal­leg og bros­andi, geislandi af lífs­ham­ingju, er í háskóla og á sinn kærasta og allt leikur í lyndi. Hún er að mestu búin að ljúka flestum eða öllum aðgerðum, en sem­sagt, hún er þar sem hún vildi kom­ast, þökk veri kyn­þroskatefj­andi lyfjum.

Þegar hún komst á kyn­þroska­aldur fékk hún lyf sem ollu töfum á kyn­þroska hennar og var á þeim uns hún var nógu gömul til að ákveða sjálf hvað væri best fyrir hana sjálfa og gekk þá alla leið með kyn­leið­rétt­ingu og það er ekki hægt að ímynda sér að hún hafi nokkru sinni verið lík­am­legur strákur.

Hér skulum við athuga eitt. Kyn­þroska­hamlandi lyf tefja kyn­þrosk­ann og eru aft­ur­kræf, en án hans kemur kyn­þrosk­inn á fullu og hann er óaft­ur­kræfur öfugt við kyn­þroska­hamlandi lyf.

Samtökin 22 sem segj­ast vera ein­asti alvöru­bar­áttu­hóp­ur­inn fyrir sam­kyn­hneigða hafa lagt mikla bar­áttu í að lækna þessi börn frá trans­sexu­al­isma í stað þess að ein­beita sér að bar­áttu fyrir rétt­indum sam­kyn­hneigðra. Ég þarf vart að taka fram að þessi unga stúlka fyr­ir­lítur þessi sam­tök og for­mann þeirra af öllu sínu hjarta, enda vill hún ekki hugsa til þess hvað hefði gerst ef skoð­anir for­manns Sam­tak­anna 22 hefðu orðið ofan á varð­andi með­ferð trans­barna fyrir rétt­indum sínum.

—–

Samtökin 22 segj­ast ekki hafa neitt á móti trans­fólki, en hvernig á að túlka orð eins með­lims umræddra sam­taka er hann vildi tjá sig um orð fyrrum for­manns Trans-Ísland, Uglu Stefaníu sem lauk aðgerð­ar­ferli fyrir meir en 11 árum síðan. Það sem hann sagði var ein­fald­lega þetta:

Friðgeir Sveins­son Hvað heitir hann aftur þessi ?

Ég þarf vart að taka fram að ég hefi oft fengið við­líka skila­boð, verið lamin auk þess sem fólk hefur hrint mér, keyrt yfir tærnar á mér, hellt yfir mig úr glösum sínum á veit­inga­stöðum og margt fleira, en sem betur fer hefur flest fólk séð að sér, en það er greini­legt að sumir eru enn fastir i gamla far­inu með sína trans­fó­bíu, þar á meðal með­limir Sam­tak­anna 22 sem virð­ast ala á trans­fó­b­í­unni. Eftir þetta komu athuga­semdir, allar jafn trans­fó­bískar þar sem gefið var í skyn að Samtökin 78 hefði beitt sér fyrir trans­líkum áróðri gegn því að Samtökin 22 fengju að halda sína trans­fó­bísku ráð­stefnu.

Svo þykj­ast Samtökin 22 ekki vera trans­fó­bísk.

Ég gæti tínt til mörg svona dæmi þótt ekki nenni ég að lesa í gegnum öll óvin­veittu orðin um mig eftir að ég rit­aði um trans­fó­bíu í síð­ustu viku þó að þau jákvæðu séu marg­falt fleiri. Síðasta dæmið um bar­áttu Sam­tak­anna 22 gegn rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks er það að þau ákváðu að halda ráð­stefnu í Reykja­vík, síðar í Kópavogi, um stefnu sína og bar­átt­una gegn því að trans­börnum yrðu gefin kyn­þroska­hamlandi lyf þar til þau hefðu sjálf þroska til að meta hvað væri þeim fyrir bestu. Að sjálf­sögðu var ráð­stefnan haldin á sama degi og gleði­ganga Reykja­vík Pride var haldin og þá í sal Mið­alda­flokks­ins í Kópavogi.

Svo kemur önnur spurn­ing: Ef Samtökin 22 sem telja sig vera sam­tök sem eru að reyna að verja hags­muni sam­kyn­hneigðra, eyða öllu sínu púðri í að tala niður til trans­fólks, hver eru þá mark­mið þeirra?

Er hægt að líta á orð þeirra á annan hátt en sem fyr­ir­litn­ingu gagn­vart trans­fólki?

—–

Ég var löngu hætt þátt­töku í bar­áttu trans­fólks fyrir rétt­indum sínum og við­ur­kenn­ingu, en þegar Samtökin 22 sem virð­ast ein­blína á hatur sitt gagn­vart trans­fólki í stað þess að ein­blína á bar­áttu fyrir rétt­indum sam­ky­hneigðra láta í sér heyra, get ég ekki þagað lengur.

Með þessum orðum ætla ég að halda áfram að vera elli­líf­eyr­is­taki sem fylgist samt með þjóð­fé­lags­um­ræð­unni á Íslandi, en samt úr hæfi­legri fjar­lægð frá Paradís þar sem trans­fóbía fær ekki að dafna, ekki frekar en hómó­fóbía, en ég er til­búin að berj­ast fyrir rétt­indum okkar sem og bar­átt­unni þar til að eldur for­dómanna verður slökktur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð