„Er stutt í að sögu VG ljúki?“ spyr Björn Birgisson í nýrri Facebook-færslu og segir að það megi gera ráð fyrir því. Vitnar hann í kveðjuorð Guðmundar J. Guðmundssonar, til flokksins.
Grindvíski samfélagsrýnirinn Björn Birgisson segir í nýrri færslu á Facebook að Vinstri grænir hafi „núorðið nánast ekkert eftir á stefnuskránni til að svíkja.“ Þar veltir hann fyrir sér mögulegum endalokum flokksins og vitnar í Guðmund J. Guðmundsson, sagnfræðing og menntaskólakennara sem kveður flokkinn með þeirri ósk að sögu hans ljúki í næstu kosningum.
Færsluna má lesa hér að neðan:
„Er stutt í að sögu VG ljúki?
Það má alveg gera ráð fyrir því.Flokkurinn á núorðið nánast ekkert eftir á stefnuskránni til að svíkja.Hér kveður Guðmundur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og menntaskólakennari flokkinn.**********„V.G. varð til á sínum tíma á ákveðnum forsendum. Ýmislegt af því sem flokkurinn hefur hins vegar tekið þátt í á síðustu árum bendir til að þær forsendur séu að mestu brostnar og flokkurinn eigi sér því tæplega tilverurétt.Okkur sem glæpst höfum á að kjósa flokkinn á síðustu árum ber skylda til að gera okkar til þess að sögu hans ljúki í næstu kosningum og hann fari niður í Pilsnerfylgi.Það mun hins vegar ekki væsa um ráðherra flokksins, þau fá örugglega þægilegt sendiherrastarf einhvers staðar.Það er hins vegar fróm ósk þess sem þetta skrifar að það verði í Langtbortistan“.“































Athugasemdir