Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Kjökrandi kjagaði ég með kúkinn minn heim“

„Kjökrandi kjagaði ég með kúkinn minn heim“
Myndin er sam­sett

Sal­ern­is­að­staða á vinnu­stöðum er víða bág­borin. Glugga­laus rými í horni opinnar skrif­stofu. Þar sem hljóðin marg­fald­ast og magn­ast í dauða­þögn­inni. Lyktin á sér enga und­an­komu­leið nema að læð­ast inn í vit vinnu­fé­laga – sem lítt þurfa að geta sér til um hvaðan hún kemur. Eigin skíta­lyktin ku vera sæt en að deila henni og/eða búk­hljóð­unum forð­ast ég í lengstu lög – svo ég kúka heima.  

Ég er fyrir lengstu komin í full­orð­inna manna tölu. Tek eigin ákvarð­anir, greiði reikn­ing­ana mína, sinni heim­il­is­störfum og almennum skyldum. En ég kúkaði samt á mig.

Atvikinu gleymi ég seint. Ég hafði haldið í mér í svolitla stund og ákveðið að gjörn­ing­ur­inn skyldi venju sam­kvæmt vera hald­inn heima. Ég bjó stein­snar frá vinnu­staðnum mínum og var því fót­gang­andi. Dags­verk­inu skil­aði ég með ágætum og fór að arka heim. Þrátt fyrir mag­ann fann ég ekki fyrir verk, þetta var ekki þannig. Enginn ofsi, eng­inn asi … svo ég ákvað að reka inn nefið í verslun sem var með ágætis útsölu í gangi. Það var ansi margt sem heill­aði og spenn­andi flíkur föng­uðu augað. Ég greip með mér nokkrar meðan ég ark­aði um versl­un­ina og skund­aði í átt að mátun. Ég fann mag­ann herp­ast: „Nei, ann­ars ég kem við seinna,“ hugs­aði ég og lagði flík­urnar frá mér og struns­aði í humátt í átt að útgang­inum.

„SHIT!“

Þessi lykkja á leið mína hafði kostað mig dýr­mætar mín­útur og ég fann hvernig þarm­arnir spörk­uðu í mig inn­an­verða. Við hvert skref, var bankað upp á. Við hvert fót­mál fann ég  hvernig þyngd­ar­lög­málið jók á þrýst­ing­inn. Ég klemmdi saman á mér rasskinn­arnar og herti á göng­unni. Allar æðru­leysis- og and­legar bænir voru rifj­aðar upp. Allar hug­leiðslu­æf­ingar og þol­in­mæð­is­þrautir dregnar fram. Við hvert skref færð­ist ég nær heim­ili mínu. Við hvert skref færð­ist ég nær lang­þráðri skál­inni.

„Þú getur þetta,“ klapp­stýrði ég fyrir sjálfa mig. „Þú ert alveg að ná í mark,“ keppn­is­skapið var skrúfað í botn. 

Vopnuð hús­lyklunum og ekki nema um það bil hund­rað metrum frá heim­ili mínu, varð mér ósig­ur­inn óþægi­lega ljós. Ég átt­aði mig á að ég hafði enga stjórn. Enginn herp­ingur, ekk­ert hald­reipi, engin bæn gat sigr­ast á þeim velsmurða and­skota sem lædd­ist niður í þröngar bux­urnar hjá mér. Fæðingu lík­ast. Hann ein­fald­lega kom, sá og sigr­aði.

Skömmin var óbæri­leg. Mér fannst eins og allir gestir veit­inga­húss­ins sem ég gekk fram hjá  vissu hvaða ófögnuð ég bæri utan á mér. Kjökrandi kjag­aði ég með kúk­inn minn heim.

Reynslan kenndi mér sosum fátt, þar sem ég neita enn að kúka nema heima. Lær­dóm­inn sem má draga af þessu öllu, ef lær­dóm skyldi kalla, er að: fátt í þessu lífi er jafn­gott og spennu­los­andi en að kúka – þegar mikið liggur á.

Lestu þennan pistil og fleiri í nýjasta tölu­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ